Læknablaðið - 01.08.1969, Blaðsíða 55
LÆKNABLAÐIÐ
137
3. mynd
Séð inn í kviðarhol konunna.r við aðgerðina og sést, hvar
Lippes-Iykkjan liggur gróin inn í netjuna, en eðlilegur leg-
botninn neðan við.
Sást gat í legbotninum vinstra megin við miðlínu, en annars var
legið eðlilegt. Konunni heilsaðist vel og fór heim á 12 degi eftir
aðgerð.
Þegar prófaður var krafturinn, sem ANTIGON er skotið með
út úr pípunni, sem notuð er til þess að koma því inn í legholið,
spýttist Jjað nærri því tvo metra áfram. Ekki er ólíklegt, að slík-
ur kraftur geti stundum skotið Antigon upp í gegnum legvegg-
inn, þegar tækinu er stungið inn í legið. Margt hendir því
til þess, að sérstaklega heri að varast ANTIGON-getnaðar-
vörn innan legs, því að stærri slys og lífshættulegri eru vart
hugsanleg en í þessu umrædda tilviki.
Flestum læknum, sem nota I.U.D., ber saman um, að þegar
tækið hefur Iiorizt út í gegnum legvegginn og inn í lífhol kon-
unnar, hafi slysið orðið, um leið og tækinu er stungið upp í leg-
holið.
Aðalatriðið við þá aðgerð, eins og við allar aðgerðir í legholi,
er, að lega legsins sé greind fullkomlega með innri rannsókn,
áður en aðgerð er framkvæmd. Senni'ega er ekki til það I.U.D.,