Læknablaðið - 01.08.1969, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
125
ist n:cgja að vefja um ]jað líndúk, en ])ó reyndist cellophan enn
betur, það veitti sem næst fulla vörn gegn 3,4-benzopyrene.1 ■’>
1 Vestmannaeyjum var staðlað dánar-blutfall (SMR) mun
bærra en annars staðar á Suðurlandi, eða 124,3. Hækkunin var
aðallega meðal kvenna, en tölfræðilegt sönnunargildi var að vísu
ekki fullnægjandi. Dungal liafði þó grun um, að þarna kenndi
áhrifa sótmengnnar neyzluvatnsins, sem var regnvatn, safnað í
þar til gerða brunna.
Vatn var tekið til rannsóknar úr 102 brunnum, og fannst mæl-
anleg mengun af fjölhringa kolvatnsefna-samböndum í sýnum
úr 13 brunnum, en 3,4-benzopvrene þó aðeins í fjórum þeirra,
0,1 pg/1 í tveimur, en 0,5 pig/1 í hvoru binna tveggja (befur ekki
enn verið birt).
5. Tilraunir á rottum
Áðu r en Níels Dungal féll frá, bafði bann liafið á ný tilraunir á
rottum líkt og fvrr.3 Fengu sumar revktan ál, aðrar reykta síld
og enn aðrar bangikjötsflot. Hinar fengu venjulegt fóður. Þó
var sá munur þar á, að vatnið, sem belmingur þeirra fékk að-
gang að, var blandað fenóli að einum bluta móti 10.000. Guð-
mundur Þórðarson bafði umsjón með þessum tilraunum í veik-
indaforföllum Dungals og að honum látnum. Niðurstöður hafa
enn ekki verið birtar.
Lokaorð
Sýnt hefur verið fram á, að dánartala magakrabbameins liafi
farið lækkandi síðan um eða l’yrir 1950. Hún er lægri í kaup-
stöðum, og þó sérstaklega í Reykjavík, en í sveitum og kaup-
túnum, og blutfallsleg dánartíðni er meiri meðal bænda en ann-
arra starfshópa. Þá hefur og dánartalan verið mun hærri á
norðvestur-bluta landsins en annars staðar.
Allt þetta gæti komið beim við tilgátuna um orsakasamband
milli magns fjölbringa kolvatnsefna-sambanda í mat og tíðni
krabbameins í maga. Þáttur heimareykts matar í fæðu lands-
manna hefur farið minnkandi á undanförnum áratugum, og
niunar þar mest um hangikjöt. Með vaxandi fólksfjölda liefur
nokkuð dregið úr nevzlu sviða, en sviðnir selsbausar og breifar
(síðan súrsað) munu nú fágætir. Af þessum sökum m. a. má
gera ráð fyrir, að magn fjöllhringa efnanna hafi farið þverrandi,
þegar á beildina er litið, og fremur i kaupstöðum en í sveitum.
Þá var og árangur af samanburðaratbugunum í tveimur sýsl-