Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1969, Síða 24

Læknablaðið - 01.08.1969, Síða 24
118 LÆKNABLAÐIÐ Þessar rannsóknir Dungals vöktu allmikla athygli, og á árinu 1962 fékk hann styrk frá National Cancer Institute í Bandaríkj- unum til að standa fyrir frekari rannsóknum á vegum Krabba- meinsfélags Islands. Jafnframt veitti sama stofnun styrk til F. Sargents, prófessors við Illinois-háskóla, til sérstakra rannsókna i sambandi við krabbamein hér á landi. Á vegum hans dvaldist dr. R. W. Armstrong frá Nýja Sjálandi hér sumarið 1962. Ferðaðist hann víða um Rangárvalla- og Skagafjarð- arsýslur og tók sýni af neyzluvatni, jarðvegi og jarðargróðri frá býlum. þar sem sjúklingar með krabbamein i maga höfðu verið langdvölum, áður en sjúkdómurinn kom fram, en einnig frá nálægum bæjum, þar sem svo var ekki háttað. Seinna fékk hann svo send mjólkursýni frá flestum hinna sömu heimila. Magn fjölmargra steinefna, aðallega snefilefna, var ákvarðað (B, Al, Cr, Mn, Fe, Cu, Zn, Mo, Pb, Co, Mg o. fl.), og reynd- ist það sem vænta mátti nokkuð breytilegt, en varla á þann veg, að grun vekti um samband við tíðni krabbameins. 5 6 Verður nú aðalþátta rannsóknanna getið að nokkru, en ýtar- legri greinargerðir hafa verið birtar annars staðar. 7-s n-is 1. Endurskoðun skráningar bananieina Athuguð voru öll dánarvottorð og dánarskýrslur presta frá árunum 1921 til 1963. Þegar um illkvn ja mein var að ræða (nr. 140-205 skv. hinni alþjóðlegu banameinaskrá, 1957), voru allar helztu upplýsingar þar um skráðar á gatakort, en síðan aukið við þær, eftir því sem efni stóðu til, og flokkunartala ákveðin eftir áðurnefndri banameinaskrá. Eins og þegar hefur verið getið, var skráningin, einkum áður fyrr, oft ófullkomin, m. a. að því leyti, að meinið var ekki —- eða illa staðfært. Þessi tilfelli voru athuguð nánara, og var mik- inn stuðning að fá af skrám héraðslækna yfir krahbameinssjúkl- inga, er hófust 1932, en einnig var leitað upplýsinga frá öðrum læknum, sjúkrahúsum, Rannsóknastofu Háskólans i meinafræði o. fl. 7 Dánartölur tíu-ára bila frá 1921-60 voru reiknaðar eftir kyni og aldri, og eru þær sýndar í 1. og 2. töflu, að viðbættum tölum 5-ára bilsins 1961-65. Meðalstærð aldursflokka hverju sinni var áætluð eftir tölum manntalsskýrslna og mannfjöldaskýrslna. Gera má ráð fyrir, að fyrstu áratugina tvo, og jafnvel lengur, hafi horið meira á vantalningu krahhameins í efstu aldursflokk- unum en síðar varð, því að þá var algengt, að „elli“ væri skráð sem banamein. Fyrsta áratuginn, 1921-30, voru og ókunn eða illa greind hanamein tiltölulega mörg. Þegar þetta er haft í huga og miðað við aldursflokka neðan 75 ára aldurs, verður ekki séð,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.