Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1969, Page 61

Læknablaðið - 01.08.1969, Page 61
NYUNG! Abalgin Retard Hvað er sársauki? Viðbragð við sársauka er mjög breytilegt meðal einstaklinga. Auk þess getur sami einstaklingur brugðist misjafnlega við sama styrk af sársauka - þetta er meðal annars háð umhverfi og sálarástandi við- komandi einstaklings. Þessi staðreynd er að miklu leyti grund- völlur síðari ára rannsókna á langvirkum verkjastillandi lyfjum. Þegar notuð eru skammvirk verkjastil- landi lyf, mun sársaukinn oft gefa sig til kynna milli hinna einstöku skammta. Þetta hefur i för með sér verulega áhættu á að sjúklingurinn ímyndi sér sársaukann kröftugri en hann er í raun og veru. Langvirk verkjastillandi lyf geta hjálpað til þess að leysa þennan vanda, þar eð jöfn og viðvarandi verkun i langtum ríkari mæli hindrar sársaukann í að gefa sig til kynna milli skammtanna og hugur sjúk- lingsins beinist því sjaldnar að því ástan- di, sem kennsla sársaukans hefur i för með sér. Hinar víðtæku rannsóknir, sem gerðar eru i baráttunni gegn sársauka, stefna því bæði að uppgötvun nýrra verkjastillandi lyfja og að betri nýtni þeirra, er þegar þekkjast. Hvað er Abalgin Retard? Abalgin Retard er verkjastillandil lyf með hreinni miðtaugakerfisverkun, sem varir i 10-12 klukkutíma eftir skammt. Hver belgur er þannig gerður að sem næst þriðjungur innihaldsins (50 mg dextróprópoxýfen) leysist strax, þannig að full verkun næst innan eins klukku- tíma eftir gjöf. Eftir það leysist restin með jöfnum hraða, þannig að verkun helst óskert í 10-12 klukkutíma. Notkun: Minni og meðalsterkur, tímabundinn eða langvarandi sársauki, t. d. gigtverkir verkir eftir fæðingar verkir eftir uppskurði höfuðverkir (vissar tegundir) tannverkir vöðvaverkir sáraverkir með bútazónum eða salicýlötum gegn bólguverkjum gegn tíðaþrautum er lyfið sérlega hentugt vegna þess að dextróprópoxýfen verkar einnig krampaleysandi. Skammtur: 1 belgur kvölds og morgna, ef til vill 1 belgur 3 svar á sólarhring. Umbúðir: Belgir með 150 mg dextróprópoxýfen Öskjur með 10 belgjum Glös með 25 og 100 belgjum Einkaumboð á íslandi: Hermes s/f, Reykjavik Framleiðandi: a/s mmmm mmm Kobenhavn

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.