Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.08.1969, Page 68

Læknablaðið - 01.08.1969, Page 68
146 LÆKNABLAÐIÐ greiningarupplýsingar öðruvísi en í samhæfingu við aðrar rann- sóknaraðferðir, svo sem t. d. æðarannsókn. Önnur notkun geislavirkra samsætna er svonefnd scintigrafia eða „renal scanning“, sem byggist á því, að geislavirkt efni lileðst upp í starfhæfum nýrnavef. Þannig má sýna fram á upphleðslu- rof í nýrnarvefnum, t. d. við æxli eða stíflu (infarcta), en hins vegar er ekki unnt að greina þar á milli. Kvikmyndun og myndsegulband: Með upptöku á röntgenkvik- mynd eða myndsegulband má fá mjög góðar og órofnar upplýs- ingar um einstaka hreyfiþætti i rannsókninni á þann hátt, sem ekki er gerlegt með einstökum myndum. Við þvagfærarannsókn- ir hafa þessar aðferðir einkum gildi í sambandi við hreyfimat á nýrnaskjóðum og þvagleiðurum, en einkum og sér í lagi þó við rannsóknir á starfsemi blöðru og tæmingu hennar, eins og nán- ar verður vikið að síðar. RÖNTGENRANNSÖKNIR Á BLÖÐRU OG URETHRA Þvaghlaðran er algengasta vaxtarsvæði illkynja æxla í þvag- færum, en um raunverulega úthreiðslu slíkra æxla í hlöðruveggn- um og út fyrir hann verður lítið sagt án æðarannsókna.1 Pneumocystografia, eða tvískuggarannsókn á hlöðru, er í þvi fólgin að skuggaefnisþekja slímhúðaryfirborð blöðrunnar, en fylla hlöðruna því næst af lofti eða súrefni.3 Þessar rannsóknir veita mjög mikilvægar upplýsingar um bæði fjölda og útbreiðslu æxla í blöðrunni sjálfri og einnig úthreiðslu og tegund blöðru- hálskirtilsstækkana, og er sem slík rannsókn mikilvæg viðhót við Urethrocystografia: Þessi rannsókn hefur verið gerð hjá körl- um um rúmlega þriggja áratuga skeið eða frá því, að Knutsson lýsti fyrst tækjabúnaði til framkvæmda hennar. Auk mikilvægra upplýsinga um útbreiðslu og tegund blöðruhálskirtilsauka veitir þessi rannsókn upplýsingar um hvers konar meðfæddar eða á- unnar lokanir, útpokanir (diverticula) eða þrengsli í urethra sjálfri. Venjuleg urethrocystografia, sem gerð er með inndælingu skuggaefnis upp um urethra skiptir mestu máli sem rann- sóknaraðferð hjá karlmönnum. Við rannsókn á urethrasvæðinu hjá konum og börnum er liins vegar oftast mestar upplýsingar að fá við mictionscystografiu. Mictionsystografia: Þessi rannsóknaraðferð, sem er í því fólg- in að fylla þvagblöðruna skuggaefni og taka síðan röntgen-

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.