Læknablaðið - 01.08.1972, Blaðsíða 22
64
LÆKNABLAÐIÐ
Mynd 9
Tvöfalt hliðarstreymi: Milli aorta og a) til vinstri: a. coronaria dxt.
og b) til hægri: r. descendens.
ÁRANGUR HLIÐARSTREYMISAÐGERÐARINNAR
Árangur mismunandi skurðaðgerða er því aðeins sambærilegur,
að forsendur fyrir vali sjúklinga séu þær sömu, og enn fremur, að
aðferðirnar til þess að meta árangurinn séu sambærilegar. Þá eru
önnur atriði, sem einnig hafa áhrif á árangurinn, svo sem þjálfun
lækna og hjálparfólks, meðferð og eftirlit fyrst eftir aðgerðina (in-
tensive care) og ýmis útbúnaður og aðstaða. Við mat á gildi aðgerða,
eins og skurðaðgerðum á hjarta vegna kransæðakölkunar, hefur lang-
frama árangur mjög mikla þýðingu og ekki minni en frumárangux.
Það er ástæða til að rifja þetta upp hér, því að eftir greinum að
dæma, sem birtar hafa verið um árangur hliðarstreymisaðferðarinnar,
frá ýmsum hjartaskurðdeildum í Bandaríkjunum, virðast forsendur
fyrir vali sjúklinga til aðgerðarinnar vera nokkuð mismunandi, enda
er það mjög eðlilegt, þar sem aðferðin hefur verið á tilraunastigi, en
er nú nokkuð vel reynd, með 4-5 ára reynslu að baki. En þrátt fyrir
að þannig gæti nokkurs misræmis, hefur árangurinn af þessum skurð-
aðgerðum samt yfirleitt verið á sama veg eða mjög jákvæður. Það
er því beðið eftir langframa árangri með mikilli eftirvæntingu.