Læknablaðið - 01.08.1972, Blaðsíða 24
66
LÆKNABLAÐIÐ
HLIÐARSTREYMISAÐFERÐIN — KOSTIR OG GALLAR
Hinir miklu kostir við hliðarstreymisaðferðina eru í fyrsta lagi
þeir, að hægt er að nota hana gegn æðakölkun í öllum aðalgreinum
kransslagæða hjartans, andstætt eldri aðferðum, eins og lýst hefur
verið hér að framan.9 Þá er einnig kostur við þessa aðferð, að blóð-
streymið til hjartavöðvans eykst samstundis með þeim afleiðingum,
að óþægindi sjúklingsins minnka strax eða hverfa alveg, þegar vel
tekst, jafnframt því sem þol og úthald eykst aftur.9 17 22 Við ígræðslu
á innri brjóstslagæðinni aftur á móti, kemur árangur ekki í ljós fyrr
en eftir nokkra mánuði, en á meðan getur æðakölkunin versnað, og
geta orðið dauðsföll af þeim orsökum á þessum biðtíma, áður en
hliðargreinarnar hafa myndazt. í þeim tilfellum, þar sem æðaþrengslin
eru of mikil og dreifð, svo að ekki er hægt að nota hliðarstreymis-
aðferðina eina, má sameina hana með endarterectomia, sem þá er gerð
fyrst, eða þá að nota ígræðsluaðferðina.3 Það, sem helzt er að óttast
í sambandi við hliðarstreymisaðferðina er, að æðakölkunin heldur
áfram, og kynni það að gera aðgerðina endingarlitla, og eins hitt, að
kölkun verði á bláæðabútnum, sem græddur var í og myndaði hliðar-
streymið.2 13
Svar við þessu mun fást endanlega á næstu árum.
Hér hefur eingöngu verið fjallað um skurðaðgerðir á hjarta til
að endurbæta blóðstreymi vegna kransæðakölkunar. En samtímis þess-
um aðgerðum eru aðrir hjartagallar iðulega lagfærðir, og af þeim
munu vera algengastir aneurysma ventriculi sin., afleiðing af hjarta-
drepi, svo og skiptingar á hjartalokum. Þessum aðgerðum verður þó
ekki lýst frekar hér að sinni.
LOKAORÐ
Fjallað var um skurðaðgerðir á hjarta vegna æðakölkunar í krans-
slagæðum og gerð er grein fyrir því, hvernig þeim málum er háttað
nú á dögum á þessu sviði skurðlækninga. Lýst er nýrri aðferð, hliðar-
streymi með bláæðaígræðslu milli meginslagæðar og kransslagæðar
(aorta-coronary artery vein bypass graft), sem hefur valdið straum-
hvörfum á þessu sviði hjartaskurðlækninga. Loks er minnzt á árangur
aðgerðanna.
HEIMILDIR
1. Adam, M., Mitchel, B. F. & Lambert, C. J. Intermediate Revascularization
of the Heart. Circulation 41:73. (Suppl. 11.) 1970.
2. Aldridge, H. E. & Trimble, A. S. Progression of Proximal Coronary Artery
Lesion to Total Occlusion after Aorta-Coronary Saphenous Vein Bypass
Grafting. J. Thorac. Cardiovasc. Surg. 62:7-11. 1971.
3. Cooley, D. H., Hallman, G. L. & Wukeisch, D: C. Myocardial Revascu-
larization, Using Combined Endarterectomy and Vein Bypass Autograft.
Internat. Surg. 56:373-380. 1971.
4. Danielson, G. K. Early Results of Vein Bypass Graft for Coronary Artery
Disease. Clinical Reviews. [Presented by the Mayo Clinic and the Mayo
Foundation]. Nov. 1, 2, 3. 1971.