Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1972, Síða 27

Læknablaðið - 01.08.1972, Síða 27
LÆKNABLAÐIÐ 69 Theódór Skúlason I\ \1EIVIORIAIVI Theódór Jón Skúlason læknir andaðist hinn 27. júlí 1970 og vil ég, þótt seint sé, biðja Læknablaðið fyrir fáein minningarorð um hann. Theódór fæddist 28. febrúar 1908 á Borðeyri við Hrútafjörð, sonur Skúla Jónssonar kaupfélagsstjóra og Elínar Theódórsdóttur konu hans. Hann lauk stúdentsprófi með 1. einkunn í Reykjavík vorið 1928, en sneri sér ekki að háskólanámi fyrr en nokkrum árum síðar og inn- ritaðist þá í læknadeild og varð kandídat veturinn 1936, einnig með 1. einkunn. Skömmu síðar sigldi hann til Kaupmannahafnar og stund- aði þar framhaldsnám í lyflækningum, en eftir fjögurra ára dvöl er- lendis kom hann heim og gerðist praktiserandi læknir í Reykjavík og vann jafnframt á rannsóknastofu próf. Jóns Steffensen. Árið 1942 varð hann læknir við lyíjadeild Landspítalans og starfaði þar til dauðadags, fyrst sem aðstoðarlæknir, en síðar deildarlæknir og yfir- læknir og kennari við læknadeild Háskólans. Hann átti um skeið sæti í stjórn Læknafélags Reykjavíkur og var formaður þess 1946-47, en formaður Félags lyflækna á íslandi 1961 og Félags sérfræðinga í Reykjavík um allmörg ár. Fyrri kona hans var Guðlín Ingiríður Jónsdóttir, en þau skildu og hann kvæntist öðru sinni, Rósu Margréti Steingrímsdóttur. Við Theódór bjuggum í nokkur ár undir sama þaki þegar við vorum ungir menn, hann í læknadeild, en ég í menntaskóla, og kynnt- ist ég honum þá allvel. Þegar hann fór utan til framhaldsnáms skrifuð- umst við á öðru hvoru og á ég einvörðungu hlýjar minningar frá þess- um kynnum. Hann skrifaði mér um margt skemmtilegt, sem fyrir augu og eyru bar í útlandinu. Það leyndi sér ekki, að hann stundaði nám sitt vel og bjó sig undir ævistarfið af mikilli kostgæfni. „Gaman er að lesa monografíur specialistanna, þar sem þeir skrifa digrar bæk- ur um einn einasta sjúkdóm,“ sagði hann í einu bréfa sinna. Síðar æxlaðist svo til, að við sáumst heldur sjaldan og unnum aldrei saman. Um það réðu mestu þær námsbrautir, sem við völdum, og svo vita- skuld straumur lífsmóðunnar, sem stundum klofnar á eyrum eins og önnur fljót og eftir það rennur sinn állinn upp að hvorum bakka. Ekki er vafi á því að starf hans og kennsla á Landspítalanum var honum mjög að skapi. Þar var hann réttur maður á réttum stað; duglegum og hugmyndaríkum lækni nýttust þar enn betur hæfileikar og þekking ep í erilsömum bæjarlækningum, og lærisveinum sínurr)
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.