Læknablaðið - 01.08.1972, Síða 28
70
LÆKNABLAÐIÐ
var hann ekki aðeins mikill fræðari heldur einnig lifandi fyrirmynd
í dagsins önn. í íramhaldsnámi sínu hafði hann einkum lagt stund á
hjartasjúkdóma og á Landspítalanum varð eitt meginverkefni hans
baráttan við kransæðasjúkdómana. Bæði honum og vinum hans mun
því hafa þótt það kaldhæðni örlaganna að hann skyldi sjálfur verða
fyrir spjótalögum þessa höfuðóvinar, og varla getur hjá því farið að
hann grunaði hvert stefndi hin síðustu misseri. Ég sá hann í síðasta
sinni við útför aldavinar síns og skólabróður Þórarins Sveinssonar
og fannst ég varla þekkja hann fyrir sama mann og áður, enda átti
hann þá skammt eftir ólifað.
Theódór var dagfarsprúður og ljúfur maður, en einarður og fastur
fyrir þegar honum þótti við eiga; hversdagslega hlédrægur, en flest-
um mönnum færari um að standa röggsamlega fyrir máli sínu, ef svo
bar undir.
Hann var sómi stéttar sinnar og harmdauði öllum, sem til hans
þekktu.
Þórarinn Guðnason
FÉLAG ÍSLENZKRA LÆKNA
í BRETLANDI
íslenzkir læknar í Bretlandi hafa stofnað félag. Stofnfélagar eru
13, en rétt til inngöngu í félagið eiga allir íslenzkir læknar, sem greiða
félagsgjald og ætla að dveljast á Bretlandseyjum sex mánuði eða
lengur.
Megintilgangur félagsins er að stuðla að því, að félagsmenn verði
virkari íslendingar, meðan þeir dveljast erlendis. Er ætlunin að stofna
til tjáskipta við íslenzka kollega í öðrum löndum og örva upplýsinga-
streymi milli íslenzkra lækna á Bretlandseyjum og íslandi.
Félagið hefur samið álitsgerð vegna væntanlegs frumvarps til laga
um heilbrigðismál og sent stjórn L. L, heilbrigðismálaráðherra og heil-
brigðismálanefndum Alþingis. Þá er ráðgert að safna upplýsingum um
nám og námsaðstöðu íslenzkra lækna í Bretlandi og senda Læknablaðinu
síðar til birtingar. Enn fremur hafa félagsmenn rætt um framhalds-
menntun í læknisfræði á íslandi, og er ætlunin að semja greinargerð
um það mál. Þá hyggjast félgsmenn beita sér fyrir könnun á því, hvern-
ig efla megi styrki handa íslenzkum læknum til rannsóknastarfa
og framhaldsnáms heima og erlendis.
Stjórn félagsins skipa: Gunnar Sigurðsson, formaður, Helgi Valdi-
marsson, ritari og Þórður Harðarson, gjaldkeri.
Heimilisfang félagsins er: 8, Marryatt Court, Green Vale, Hanger
Vale Lane, London W. 5.