Læknablaðið - 01.08.1972, Blaðsíða 35
LÆKNABLAÐIÐ
71
LÆKNABLAÐIÐ
58. árg. Ágúst 1972
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN H.F.
AUKIN ÞJÓNUSTU-
TENGSL RÍKISSPÍTALA
VIÐ DREIFBÝLIÐ
Hinn 15. mai sl. samþykkti
Alþingi frumvarp heilbrigðis-
stjórnarinnar um breytingu á
læknaskipunarlögum nr. 23 frá
12. maí 1965, sem miða að
því, að ráða til bráðabirgða
nokkra bót á vandkvæðum
heilbrigðisþjónustu í dreifbýli.
Gerðar voru breytingar á þrem
greinum læknaskipunarlaga
þannig, að við 7. gr. bætist:
„Ráðherra er lieimilt í samráði
við fjármálaráðuneytið að
stofna við ríkisspítalana allt að
sex sérstakar læknisstöður, sem
bundnar eru skilyrði um á-
kveðna þjónustu í héraði. Ráð-
herra setur reglugerð um þessar
stöður að fengnum tillögum
Læknafélags Islands og' Stjórn-
arnefndar ríkisspítalanna.“
Á 9. gr. læknaskipunarlaga
var gerð breyting, sem felur í
sér skyldu fyrir ríkissjóð að
greiða 2/3 eða jafnvel öll laun
héraðshjúkrunarkvenna. Þá var
gerð breyting á 13. gr. laganna,
og heimilað að veita læknanem-
um ríkisstyrki til náms g'egn
skuldbindingu um læknisþjón-
ustu í dreifbýli að loknu námi.
Sett hefur verið reglugerð varð-
andi þessa heimild, en eigi hef-
ur enn verið gengið frá reglu-
gerð fyrir hinar sex sérstöku
læknastöður við ríkisspítalana.
Heilbrigðisstjórn hefur haft
samvinnu við Félag' læknanema
um breytingu á 13. gr. lækna-
skipunarlaga, varðandi heimild
fyrir ríkisstyrkjum til lækna-
nema. Áður höfðu læknanemar
átt kost á því að fá námslán
1 sambandi við læknisþjónustu
í dreifbýli.
Viðbótin við 7. greinina fel-
ur í sér lagalegt nýmæli, að
læknisstöður við stærstu beil-
brigðisstofnanir, þ. e. ríkis-
spítalana, verði tengdar beil-
brigðisþj ónustu dreifbýlisins.
Hugmyndin um þetta fyrir-
komulag er engan veginn
ný, oft hefur verið rætt
um nauðsyn þess, að Lands-
spítalinn veitti landsbyggðirini
víðtæka þjónustu. Gerð hefur
verið tilraun í þá átt með sér-
fræðilegri þjónustu á síldar-
flotanum og sérfræðiþjónustu
við sjúkrabús úti á landi.
Hugmyndin um það sér-
staka fyrirkomulag, sem felst í
áðurnefndri breytingu á 7. gr.
læknaskipunarlaga, mun fyrst
bafa verið sett formlega fram í
bréfi, sem stjórn Læknafélags
Islands ritaði Heilbrigðis- og
félagsmálanefnd efri deildar