Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1972, Side 60

Læknablaðið - 01.08.1972, Side 60
90 LÆKNABLAÐIÐ sig inn í, hvernig kerfið í heild verkar og hvernig æskileg þróun þess sé. Nauðsyn ber til þess, að læknar sýni víðsýni í þessum efnum og sjái vel út fyrir sína eigin sérgrein. (2) Á deildunum ráða læknar yfir og stýra miklu fjármagni. Hin læknisfræðilega ákvarðanataka þeirra um lyfjagjöf, að- gerð og meðhöndlun hefur kostnaðarhlið, sem ekki má gleym- ast. Læknar taka mikilvægar ákvarðanir um nýtingu sjúkra- rýmis. Þeir eru stjórnendur og verða að gera sér ljósa ábyrgð sína sem slíkir. Leyfið mér að láta í ljós ósk um, að þetta ráðstefnuhald stuðli að skilningi á þessum tveimur atriðum. *■ VÍNMÁLIÐ Magnús læknir Pétursson barðist mjög fyrir því í efri deild, að læknar fengi fullt frelsi til þess að nota vín til lækninga. Sú varð niðurstaðan, að löggilda skyldi Rauðvín, Malaga, Sherry, Portvín og Cognac. Þetta ætti að nægja þeim læknum, sem nota vín til lækninga, en eftir sem áður fer því fjarri, að sú krafa sé uppfyllt, að læknum sé heimilt að fá hver vín, sem þeir vilja. Úr þeirri meginreglu var mikið gert, og mætti því búast við, að ýmsum þætti hér of skammt farið. Hvað sem þessu líður, þá hafa læknar fengið vínið og ætti það ekki að vera neinum vafa undirorpið, að þeim væri trúandi fyrir því. Því hefir það, því miður, komið í ljós, að tæpast eru allir læknar svo varkárir í þessum efnum sem skyldi. En hvað sem þessu líður, þá liggur sómi stéttarinnar við, að læknar haldi nú vel á víni sínu. (Guðmundur Hannesson, Lbl, október 1915). ÍSLENZKT LÆKNAFÉLAG Tímarnir breytast. Til skamms tíma hefur verið tilfinnanlegur læknaskortur. Nú eru hér fleiri læknar en embætti eru til, og eftir fáein ár verða sennilega embættislausir læknar víðs vegar um land. Vér rekum oss þá á samkeppnina, kosti hennar og lesti. Það verður vandlifaðra en áður og sama nauðsyn hér sem annars staðar að fylgja föstum reglum í allri framkomu. Mér þykir ekki ólíklegt, að nú væri kominn tími til þess að stofna á ný „íslenzkt læknafélag". Tilgangur þess yrði þá sem fyrr, að efla samvinnu og bróðerni milli lækna, og auk þess að gefa út blað eða tímarit fyrir lækna eingöngu. ÍGuÖmundur Hannesson, Islemkt lœknafélag. Lbl. 1915). Þess má geta, að tilraun hafði verið gerð að stofnun „Islenzks lækna- félags“ 16 árum fyrr, en það félag varð litið annað en nafnið.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.