Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.08.1972, Síða 64

Læknablaðið - 01.08.1972, Síða 64
94 LÆKNABLAÐIÐ Þá hefur verið rætt við Lyfjaverzlun ríkisins um stöðlun á ýmsum hjúkrunarvörum, umbúðum og einnotavörum, og enn fremur hefur ritari L.í. haft samband við þá Árna Björnsson og Ólaf Ingibjörnsson, er nú vinna að því á vegum opinberra aðila að láta útbúa „slysa- pakka“, sem notaðir verða, þegar stórslys ber að höndum. b) sérhæft starfsfólk. Að sjálfsögðu verður hjúkrunarkonum falið að vinna öll þau störf, sem þær eru sérstaklega þjálfaðar til. Öðru sérhæfðu starfsíólki, (eins og t. d. læknaritara og sjúkraþjálfara) er að jafnaði ekki til að dreifa utan stærstu bæja. Er það verðugt verkefni fyrir L.í. að taka upp baráttu fyrir, að kennsla í þessum greinum verði tekin upp og þarfir landsbyggðarinnar allrar hafðar í huga. c) rannsóknaraðstaða. í hverri heilsugæzlustöð verði komið upp þeirri rannsóknar- aðstöðu, sem nauðsynleg er til sjúkdómsgreininga eftir nútímakröfum. Það fer eftir tengslum við sjúkrahús, hvaða tækjabúnaður telst nauð- synlegur í heilsugæzlustöð, bví að ástæðulaust er að setja upp flókinn tækjaútbúnað og dýran, ef þjónustuna er auðveldlega hægt að fá í nærliggjandi rannsóknarstofu. Þá þarf að koma upp eftirlitsþjónustu, þannig að minni rann- sóknarstofurnar geti fengið mælingar til samanburðar (reference laboratory), og er hér með auglýst eftir aðila, sem getur komið slíkri þjónustu á stofn. Öðrum þætti hefur og ekki verið nægilega sinnt, en það er að þjálfa fólk í röntgenþjónustu. Nú er verið að kaupa tæki handa mörg- um stöðum úti á landi, en hætt er við, að notkun þeirra verði víða lítil og ófullnægjandi. Hér er enn komið verðugt verkefni fyrir L.í. Því það hlýtur óneitanlega að skjóta nokkuð skökku við að tala í sömu andránni um bætta þjónustu og tækjakost, en láta viðgangast, að menn séu að fást við hluti, sem þeir hafa lítið sem ekkert vit á. d) húsnæði fyrir heilsugæzlu. Á vegum heilbrigðisráðuneytisins er verið að vinna að gerð teikn- inga að ,,prototypu“ fyrir heilsugæzlustöðvar og virðist þar vera vel unnið og haganlega á málum haldið. Er því trúlega ekki ástæða til að setja fram ákveðnar kröfur um húsnæði, en hins vegar nauðsyn- legt fyrir L.í. að fylgjast með á hvern hátt ráðuneytið staðlar húsnæði heilsugæzlustöðva. LYFSALA Stefna ber að því að læknar verði með öllu leystir undan þeirri áþján að þurfa að annast lyfjasölu sjálfir. í frumvarpinu, grein 16, 3, er gert ráð fyrir lyfjaútbúnaði eða lyfjaútsölu í heilsugæzlustöðvum, ef lyfjabúð er ekki á staðnum. Þá kröfu þurfa læknasamtökin að setja fram, að læknar hafi ekkert með
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.