Læknablaðið - 01.02.1976, Page 27
LÆKNABLAÐIÐ
11
Fig. 5. — Ferrying of x-ray equipment across a Iarge glacial lagoon (Jökulsá á Breiða-
merkursandi). July 1944.
börnum tók alls til 43 læknishéraða á
þessu ári.
Tvær nýjar berklavarnastöðvar tóku
enn til starfa á árinu 1939 á ísafirði og
Siglufirði. Voru þær nú orðnar 6 alls, en
stöðin í Reykjavík náði einnig til Hafnar-
fjarðar og Suðurnesja og hefur slíkt verið
fram á síðustu ár. Starfsemi stöðvanna
jókst smám saman og beindist mjög að
því að hafa upp á nýjum sjúklingum og
að fylgjast með útskrifuðum sjúklingum
og veita þeim göngumeðferð, t. d. loft-
brjóstsmeðferð (pneumothorax), er þess
þörfnuðust. Kostnað við rekstur stöðvanna
báru viðkomandi bæjar- eða sveitarfélög,
sjúkrasamlag á staðnum og ríkið, hvert
að 1/3 hluta.
I strjálbýli voru rannsóknirnar gerðar
með ferðaröntgentækjum og þá að undan-
gengnum berklaprófum og síðan gegnlýs-
ingum á hinum jákvæðu, en athugaverðir
sjúklingar voru sendir til frekari rann-
sókna á aðra staði, er voru betur útbúnir
rannsóknartækjum og þá einkum röntgen.
í mörgum þeim héruðum, sem rannsókna
þörfnuðust, var á þessum árum ekkert
rafmagn. Var þá rafall (dýnamór) settur
í samband við bifreið þá, sem berklaleið-
angurinn haíði til afnota og venjulega
var fólksflutningsbifreið (mynd 2 og 3).
Ef bifreið varð eigi komið við vegna ófull-
komins vegakerfis, var röntgentækjunurn
komið fyrir í bát (mynd 4 og 5) eða skipi
(strandferðaskipi eða varðskipi), sem
sigldi með ströndum fram, og voru
rannsóknirnar framkvæmdar um borð.
Ef eigi varð náð til fólks á þennan
hátt, voru röntgentækin í einstökum til-
vikum flutt á hestum (mynd 6). Til að
byrja með var örðugt að útvega æft starfs-
lið til framkvæmda berklavarnanna. En
árið 1939 réðust tveir ungir sérfræðingar
í berklasjúkdómum til berklavarnanna,
annar til berklavarnastöðvarinnar í Reykja-
vík, dr. Óli P. Hjaltested, sem æ starfaði
þar síðan, en hinn, Ólafur Geirsson, til
berklayfirlæknis. Vann hann þar um
tveggja ára skeið. Bætti þetta mjög alla
aðstöðu til framkvæmda. Óx nú fjöldi
læknishéraða þeirra, sem voru rannsökuð