Læknablaðið - 01.02.1976, Blaðsíða 80
44
LÆKNABLAÐID
bóluefnis, bólusetja aðeins fáa vandlega
valda hópa þjóðfélagsins og hafa þá alla
á sérstakri bólusetningarskrá, er auðvelt
að greina þá, sem verða jákvæðir eftir
bólusetningu, frá hinum, sem verða það
vegna venjulegrar smitunar. Berkladeild
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur hefur
vegna reynslu sinnar og góðs árangurs á
þessu sviði gengið svo langt á síðustu ár-
um að taka upp þá nýlundu að fram-
kvsema berklapróf á skólabörnum 6-13 ára
tvisvar sinnum á ári, þ. e. haust og vor, við
byrjun og lok skólagöngu.84 Með þessu
hefur á auðveldan og ódýran hátt fengist
aukið öryggi gegn því, að smitunarupp-
sprettur leynist lengi meðal almennings,
eins og altítt var áður fyrr og enn gerist,
einkum meðal þjóða, þar sem fólk almennt
er berklabólusett á unga aldri. Þar missir
berklaprófið það gildi sitt að hafa upp á
hinum nýsmituðu og sjúku (smitunarupp-
sprettunum) í tæka tíð.
Til þess að fylgjast sem nánast með
berklasmitun þjóðarinnar, verður að telj-
ast nauðsynlegt, að gert verði einnig öðru
hvoru, t. d. á 25 ára fresti, berklapróf á
eldri aldursflokkum, jafnvel til 40-50 ára
aldurs. Til slíks prófs verður að velja
marktækan fjölda íbúa í hverjum aldurs-
flokki af báðum kynjum og úr ýmsum
landshlutum, svo að sem jafnast verði val-
ið milli dreifbýlli og þéttbýlli héraða lands-
ins.
Þá ber að lokum nauðsyn til, að vand-
lega verði gætt 4. og 5. gr. berklavarna-
laganna um skrásetningu berklasjúklinga
(berklabækur og héraðslæknaskýrslur D
og DA). Stjórn berklavarna í landinu
verður síðan að fá skýrslur þessar sam-
ræmdar um hver áramót til að koma í veg
fyrir tvítalningu, svo sem gert hefur verið
frá og með árinu 1939. Ennfremur ber að
fara yfir dánarskýrslur berklaveikra frá
Hagstofu íslands og gera þær upp sam-
kvæmt gildandi alþjóðlegri dánarmeina-
skrá.
Um 6. lið: Með hinni miklu og tíðu
notkun berkiaprófs, sem að framan hefur
verið lýst, má gera ráð fyrir, að flestar
nýsmitanir barna og unglinga komi furðu
fljóitt í ljós. Er því auðvelt að fylgjast
með því, hvort hinn nýsmitaði nær sér
fljótt eða verður berklasjúklingur með
greinileg sjúkdómseinkenni. Enginn lækn-
ir hikar þá við notkun berklalyfjanna.
Undanfarin ár hefur talsvert verið að því
gert og einnig hér á landi að gefa ný-
smituðum berklalyf í varnarskyni, áður en
sjúkdómseinkenni koma í ljós. Mætti nefna
slíka meðferð sjúkdómsvarnir. Er þá lyfja-
meðferðin mun styttri en ef um meðferð
berklasjúklings er að ræða, eða aðeins 6-12
mánuðir (secundær chemoprophylaxis,
sjúkdómsvarnir). Ef vissa er fyrir því, að
ósmitaðir hafi dvalist með smitandi berkla-
sjúklingum, hafa sumir læknar þegar í stað
notað hin sérhæfðu berklalyf og gefið þau
jafnvel áður en vitað var um smitun og
jákvætt berklapróf. Er slíkt nefnt primær
chemoprophylaxis, smitunarvarnir.
Þegar þetta er ritað, eru enn ýmsir
þeirra, sem mikla reynslu hafa fengið af
notkun berklyfjanna, sem ráða frá þessari
tegund smitunarvarna.150Lyfjagjöfinni geta
fylgt alvarlegar aukaverkanir43 68 og auð-
vel't er fyrir lækna og heilsugæslustöðvar
að fylgjast svo vel með fólki, sem er í smit-
unar- eða sýkingarhættu, að lyfjameðferð
geti byrjað þegar í stað, ef sjúkdómsein-
kenni koma í ljós.
f sl. 18 ár hefur enginn sjúklingur látist
úr heilahimnu- né bráðaberklum hér á
landi.
Ber því að gæta fyllstu varkárni við
notkun berklalyfjanna í varnarskyni. Með-
an varasamar aukaverkanir fylgja þeim tel
ég eigi réttlætanlegt að nota lyfin til smit-
unarvarna, nema í fáum undantekningum
og þá að mjög vel athuguðu máli. Boðorð
læknisins hlýtur ávallt að vera: nihil no-
cere.
Af því, er að framan greinir, er ljóst, að
sá er þetta ritar, telur að berklavarnir hér
á landi verði fyrst um sinn reknar með
mestum árangri og á auðveldastan og
ódýrastan hátt með tíðum og vandlega
gerðum berklaprófum, vel íhugaðri notk-
un hinna sérhæfðu berklalyfja til með-
ferðar sjúkdómsins og í einstökum völdum
tilfellum til sjúkdómsvarna, auk mjög tak-
markaðrar BCG-bólusetningar á þeim ein-
staklingum þjóðfélagsins, sem líklegastir
eru til að verða fyrir berklasmitun og sýk-
ingu.
Væntanlega mun á næsta mannsaldri
fást úr því skorið, hvort happadrýgra reyn-