Læknablaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 8
88
LÆKNABLAÐIÐ
Mynd 1. — „Gas-liquid chromatogram“ af fitusýrum (methylesterum) í húðfitu. Fitu-
sýrumar er,u auðkenndar á keðjulengd og fjölda tvibindinga. 12:0, Lauric sýra, 14:0,
Myristic, 16:0, Palmitic, 16:1, Palmitoleic, 18:0, Stearic, 18:1, Oleic, 18:2, Linoleic,
20:0, Arachidic, sýra. Aðrar fitusýrur fundust í aðeins óverulegu magni.
fengið úr amerískum töflum.0 42 þátttak-
endur, á aldrinum 37-66 ára, í hóprann-
sókn Hjartaverndar í Árnessýslu (Selfossi
og sveitum), sem komu til skoðunar fyrstu
viku maímánaðar 1973, voru beðnir að út-
fylla 7 dagslista hver um allt, sem þeir
neyttu næstu vikuna, Af þeim skiluðu 28
þátttakendur (67%) a. m. k. 5 nægilega
vel útfylltum dagslistum til að verða tekn-
ir með í niðurstöðum, alls 16 karlar og 12
konur.
60 Reykvíkingar úr sama aldurshópi,
sem þátt höfðu tekið í fyrri hóprannsókn
Hjartaverndar, voru kallaðir á Rann-
sóknarstöð Hjartaverndar að nýju. Þessi
hópur var valinn af handahófi úr úrtaki
Hjartaverndar.8 Af þessum 60, sem kallað-
ir voru, mættu 47 (78%), 21 karl og 26
konur. Tveir, sem voru á sérfæði sam-
kvæmt læknisráði, voru útilokaðir. Af hin-
um skiluðu 29 (65%) nægilega vel út-
fylltum dagslistum til að verða teknir með
í niðurstöðum, alls 13 karlar og 16 konur.
Dagslisitum með minna en 1000 og meira
°n 5000 hitaeiningum var sleppt. Mark-
ttekir listar voru alls 371, frá 57 þátttak-
endum, 29 körlum og 28 konum. Kólesteról
og þríglyseríðagildi í blóði þátttakenda var
mælt á Rannsóknarstofu Hjartaverndar.
Meðaltal hópanna var svipað og nálær'i
meðalgildi svipaðra aldurshópa í hóprann-
sókn Hjartaverndar.14
Áreiðanlegar töflur um samsetningu fit-
unnar í fæðunni, þ. e. mettaða, fjölómett-
aða („polyunsaturated fat“) og einómett-
aða fitu („monounsaturated fat“), voru
ekki fyrir hendi um nægilega margar hér-
lendar fæðutegundir til þess að unnt væri
að reikna út samsetningu fitunnar með
nokkurri nákvæmni. Sýnt hefur verið fram
á, að fitusýrusamsetning í húðfitu speglar
allvel fitusýrusamsetningu fæðisins, sem
neytt er.8 Sýni voru því tekin úr húðfitu
(þjókinn) 20 þátttakenda úr Árnessýslu
með grófri venunál, sem stungið var undir
húð og fitusýnið sogað upp með sprautu
skv. aðferð Hirsch.13 Sýnin voru síðan
geymd við -^10° uns þau voru seydd (,,ex-
tracted“) skv. aðferð Folch.10 Methylester-
ar af fitusýrunum voru fengnir með sápun
(5% KOH í 95% alkóhóli) og síðan
,,methylation“ (5% HS04 í methanóli).