Læknablaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 41
LÆKNABLAÐIÐ
195
sum hinna höfðu haft slíkan hita rétt fyrir
innlagningu. Hiti stóð í 1-8 daga eftir komu
á spítalann, en 45% sjúklinganna voru
orðnir hitalausir eftir 2 daga og 88% eftir
4 daga. Uppköst voru áberandi mikil hjá
sumum sjúklinganna, bæði á spítalanum
og eins áður en þeir komu inn. A töflu III
eru til samanburðar sýnd sjúkdómsein-
kenni hjá börnum með meningitis bacteri-
alis. Kemur þar fram talsverður munur
á tíðni nokkurra einkenna. T. d. er áber-
andi hvað kvörtun um höfuðverk kemur
meira fram hjá börnum með meningitis
aseptica, en það speglar vafalítið aldurs-
mun sjúklinga, því eins og áður var bent
á, voru börnin með meningitis bacterialis
ung og þar af leiðandi vanmegnug að tjá
kvartanir sínar. Höfuðverkurirm var ýmist
í hnakka eða enni, en hjá meirihluta sjúkl-
inga var staðsetning ekki tilgreind í sjúkra-
skrá.
Magaverkir voru nokkuð áberandi ein-
kenni hjá börnum með meningitis aseptíca,
en þeirra er ekki getið hjá börnum með
meningitis bacterialis. Það er erfitt að
segja til um, hvort slíkir verkir hafi staðið
í sambandi við uppköst, sem yfirleitt voru
svæsnari hjá þeim fyrrnefndu, meiri getu
þeirra til að tjá sig vegna aldursmunar eða
hvort sjálf sýkingarorsökin hafi þar um
ráðið og er þá hettusóttarveiran sérstak-
lega höfð í huga.
Tvö börn höfðu lítilsháttar niðurgang.
Tvö börn fengu krampa. Annað var 2
ára gömul stúlka, sem hafði verið lögð inn
til rannsókna vegna andlegs og líkamlegs
vanþroska. Á meðan hún lá inni fékk hún
háan hita og eifct krampakast í sambandi
við hann og það sást votta fyrir húðblæð-
ingum. Reyndist hún hafa lítillega aukinn
fjölda hvítra blóðkorna í mænuvökva, mest
hnattfrumur. Hún var talin hafa meningitis
aseptica, en ekki varð komizt að veiru-
greiningu. Annað barn, 7 mánaða gamall
drengur, var lagt inn frá öðrum spítala
vegna endurtekinna krampakasta og sljó-
leika. Hann hélt áfram að fá krampa fyrst
eftir innlagningu og var sljór fyrsta sólar-
hringinn, en síðan bráði skjótlega af hon-
um og virtist hann þá eðlilegur. Hann var
hitalaus allan tímann, en var með nokkra
aukningu á hvítum blóðkornum í mænu-
vökva, allt hnattfrumur. Veirurannsókn
TAFLA III
Sjúkdómseinkenni hjá 37 bömum með
meningitis aseptica og 45 börnum með
meningitis bacterialis.
c
Meningitis Meningitis
aseptica bacteriaiis
Fjöldi Fjöldi
Einkenni sjúkl. % sjúkL %
Hiti >37.5° 33 89 41 91
Uppköst 30 80 33 76
Stífleiki í hnakka
og baki 35 95 39 89
Höfuðverkur 28 76 8 18
Ertni 5 14 36 82
Sljóleiki 5 14 17 39
Krampar 2 5 5 11
Útbrot 2 5 12 27
Meðvitundarleysi 9 20
Magaverkir 8 22
var ekki gerð, en hann var talinn vera
með meningitis aseptica, en ef til vill hefði
verið réttara að greina hann undir
encephalitis.
Einn drengur, 6 ára gamall, hafði í 2-3
vikur fyrir innlagningu haft ýmsar trufl-
anir frá taugakerfi, svo sem klunnalegar
hreyfingar í höndum og fótum, vott af
andlitslömun, munnvatnsrennsli auk smá-
vegis hita og verkja í höfði og útlimum.
f mænuvökva fannst smávegis aukning á
hvítum blóðkornum, allt hnattfrumur.
Vegna gruns um æxli í heila var hann
sendur til Kaupmannahafnar. Hann reynd-
ist ekki hafa það og fékk sjúkdómsgreining-
una encephalitis. Ekki var að sjá af bréfi
þaðan, að gerðar hefðu verið neinar veiru-
rannsóknir. Drengurinn var sendur hingað
aftur, einkenni hurfu smám saman og
hann náði fullum bata að því er bezt er
vitað.
Eins og fram kemur á töflu III voru
börn með meningitis aseptica ekki eins
pirruð og viðkvæm fyrir ytri áhrifum
eins og börn með meningitis bacterialis,
meðvitund þeirra skýrari og yfirleitt voru
þau ekki eins meðtekin og lasleg, þrátt
fyrir oft háan hita, höfuðverk og uppköst.
Blóð- og mænuvökvarannsóknir: Áður
hefur verið gerð grein fyrir tilraunum til
sýkla- og veiruræktana. Ekki var sent