Læknablaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 12
92
LÆKNABLAÐIÐ
esteróls og neyti meiri mettaðrar fitu en
flestar þjóðir.
Tafla 4 sýnir kólesterólinntökuna, sem
var svipuð í Reykjavík og Árnessýslu.
Erfitt er um samanburð við aðrar þjóðir,
þar sem takmarkaðar upplýsingar eru til-
tækar, m. a. vegna þess, að lítið var vitað
uui KOj.esteroiinmhald ýmissa fæðutegunuci
fyrr en fyrir fáum árum. En út frá grófu
meðaltali 20 þjóða (527mg/dag)24 má ætla,
að kólesterólneysla hér sé ekki meiri en
víðast annars staðar. Veldur þar miklu um,
að eggjaneysla hér er fremur lítil, gróf-
lega áætlað 3-4 egg á viku borið saman
við meir en 5 egg á viku í Bretlandi,15 en
eitt egg inniheldur um 250mg eða helm-
ing af meðaldagsneyslu hér.
Engin fylgni fannst með fituneyslu eða
kólesterólneyslu hvers einstaklings og blóð-
fitugildum hans. Þessar niðurstöður eru
samhljóða fyrri svipuðum mataræðisrann-
sóknum,6 25 og verður nánar rætt um þetta
atriði síðar í þessari grein.
UMRÆÐA
Enda þótt könnun þessi sé ekki stór að
vöxtum hvað fjölda þátttakenda snertir,
má þó ætla af því, hve hóparnir gáfu svip-
aða niðurstöðu, að hún spegli allvel mat-
aræði viðkomandi landssvæða og aldurs-
hópa. Jafnframt benda niðurstöðurnar til
þess, að ekki sé neinn verulegur munur á
fæðusamsetningu á þessum landssvæðum.
Hvort verulegur munur sé á mataræði í
öðtum landshlutum er ekki unnt að segja,
en rannsókn Manneldisráðs 1940 benti ekki
til þess.30 Hóprannsóknir Hjartaverndar
úti um landið gætu gefið vísbendingu hér
að lútandi. Nokkur munur gæti og verið
á milli eldri og yngri aldursflokka, sem
þessi rannsókn tekur ekki til, en þó er
ólíklegt, að sá munur sé stórvæigilegur.
Einnig má ætla, að nokkur árstíðamunur
sé á neyslu vissra fæðutegunda. Ætla má
þó, að miður maímánuður, þegar þessi
rannsókn fór fram, skeri sig ekki úr að
neinu sérstöku leyti frá öðrum tíma ársins.
Niðurstöður þessarar könnunar benda
til, að hlutur eggjahvítu í fæðunni hér
sé hærri en víðast annars staðar og veldur
þar mestu um mikil fiskneysla og mjólkur -
neysla. Þessi niðurstaða er svipuð fyrri
rannsóknum á íslensku mataræði.12 30
Könnunin bendir einnig til þess, að neysla
fitu (og þar með væntanlega einnig mett-
aðrar fitu) hérlendis sé með því hæsta
sem gerist. Mikil neysla mjólkur og mjólk-
urafurða virðist valda hér talsverðu um.
Hins vegar virðist neysla á kólesteróli ekki
vera meiri hér en víða annars staðar.
Kólesterólinntakan ákvarðast að verulegu
leyti af neyslu eggja, sem virðist ekki
vera mikil hér borið saman við margar
aðrar þjóðir. Af öðrum fæðutegundum auð-
ugum af kólesteróli má nefna innmat, eink-
um lifur, mjólkurafurðir, einkum smjör og
rjóma, kjöt og í minna mæli fisk o. fl.
Neysla kolvetna er hér hins vegar minni
en víðast annars staðar. Veldur þar nokkru
um minni neysla ávaxta og grænmetis.
Reyndar virðist neysla kolvetna, að undan-
teknum hvítum sykri, hafa farið minnk-
andi í flestum löndum á sama tíma og
neysla fitu hefur aukist, Því hefur verið
haldið fram, að aukin neysla á sykri sem
slíkum eigi stóran þátt í aukinni tíðni
kransæðasjúkdóma,32 en fátt eitt er þeirri
kenningu til stuðnings.18
Því er líklegt, að það sé einkum mikil
neysla mettaðrar fitu, sem veldur því, að
kólesteról í blóði íslendinga er hærra en
flestra annarra þjóða, að svo miklu leyti
sem meðalkólesterólgildið ákvarðast af
mataræðinu. Manneldistilraunir hafa sýnt,
að mettaðar fitusýrur með 12 eða fleiri
en færri en 18 kolefnisatóm í keðjunni
hækka kólesteról í blóði, en fjölómettaðar
fitusýrur, sem innihalda fleiri en einn tví-
binding, hafa gagnstæð, en veikari áhrif.
Stearic (18:0) og oleic sýra (18:1) hafa
lítil áhrif á kólesterólgildið. Eitt gramm
af mettaðri fitu, t. d. palmitic sýru (16:0),
sem mest er af í dýrafæðu, hækkar kól-
esterólgildið jafnmikið og tvö grömm af
fjölómettaðri fitu, svo sem linoleic sýru
(18:2) lækka það.° Því miða sumir við að
breyta eigi hlutfalli fjölómettaðrar og
mettaðrar fitu í fæðunni (P/S ratio) úr
0.25 eins og það er í flestum vestrænum
löndum upp í 2:1. En slíkt mataræði getur
þó vart talist girnilegt, og flestir nota hlut-
fallið I, 5:1 í mataræðismeðferð á hækkuðu
kólesteróli.
Ekki er enn fyllilega ljóst, hvernig
mettuð fita hækkar en ómettuð fita lækk-
ar kólesteról í blóði, hvort það sé með