Læknablaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 28
100
LÆKNABLAÐIÐ
stöðum smásjárskoðunar sýnanna en ekki
kliniskri skoðun.
Tafla III sýnir síðan niðurstöður frumu-
rannsókna á sýnum teknum á Egilsstöðum,
Seyðisfirði, Fáskrúðsfirði, Eskifirði og Nes-
kaupstað, og tafla IV sýnir sömu niður-
stöður frá Kópaskeri, Raufarhöfn, Þórs-
höfn, Vopnafirði, Djúpavogi og Höfn í
Hornafirði.
í III. og IV. fl. voru árið 1970 alls 18
konur og árið 1972 alls 14 konur, en í
flokki IIR voru árið 1970 39 konur og
árið 1972 31 kona. Rétt er að leggja áherslu
á það, að fundizt hafa konur með carcin-
oma in situ, sem reyndust vera í II R, og
er því full ástæða til þess að þeim sé fylgt
eftir mjög gaumgæfilega með endurtekn-
um frumusýnum og/eða nánari sýnitökum
úr leghálsi.
Ég sé ekki ástæðu til þess að ræða þessar
töflur nánar, enda skýra þær sig sjálfar.
Til þess að gefa nokkra hugmynd um,
hversu almenn þátttakan í skoðununum
hefur verið frá upphafi, hefur komið í ljós,
að konur fæddar á árunum 1903-1940, sem
ekki hafa verið skoðaðar, voru í Reykjavík
26% og úti á landi 16%. Á sama tíma voru
óskoðaðar í N.-Múlasýslu 24%, S.-Múlasýslu
9%, Seyðisfirði 15%, Neskaupstað 9%,
Norður-Þingeyjarsýslu 15% og í Austur-
Skaftafellssýslu 16% (niðurstöður frá
1973).
Þetta verður að teljast mjög viðunandi
árangur og haldi hér áfram sem horfir
standa vonir til að hægt verði á næstu ár-
um að lækka verulega fjölda dauðsfalla af
völdum leghálskrabbameins hjá konum á
íslandi.