Læknablaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 51
LÆKNABLAÐIÐ
111
Með því að stytta vinnutímann opnast
störf fyrir fleiri unga lækna. Varðandi öflun
tekna fram yfir hin föstu laun, þá er þess
að geta að bíll kemur þá óhjákvæmilega inn
í kostnaðarmyndina, og nemur það 800-1200
þús. krónum á ári. Lögum samkvæmt á sá
kostnaður að vera frádráttarbær til skatts,
en þess hafa læknar almennt ekki notið.
Þegar þess er gætt, að launað ævistarf
lækna nær vart yfir meira en rúm 30 ár,
kemur glögglega í Ijós af því, sem að ofan
greinir, að hin raunverulegu kjör lækna eru
næsta rýr og byggjast á óeðlilegum aðstæð-
um. Nægileg laun fyrir hóflegan vinnutíma
og full réttindi gagnvart skattalögum eru
sjálfsögð sanngirnisatriði, en fræðilegt, fé-
lagslegt og fjárhagslegt svigrúm fyrir frarn-
haldsmenntun er hin brýnasta nauðsyn fyrir
góðan árangur af starfi lækna í framtíðinni.
Þessi mél þarfnast endurskoðunar til þess
að mæta á hagkvæman hátt þörfum þjóð-
félagsins fyrir aukna þjónustu vaxandi
læknastéttar.
A. K.
FRÉTTATILKYNNING UM LYFJANEFND
Lyfjanefnd. var stofnuð samkvæmt lög-
um nr. 85/1976.
Nefndin er ráðgefandi um skráningu
lyfja og aukaverkana þeirra, fræðslu um
lyf fyrir lækna og almenning, lyfjaneyslu-
rannsóknir, lyfjastaðla og fleiri atriði, er
varða lyfjalög.
Nefndin hefur hug á að vera tengiliðui
þeirra mörgu, sem fjalla um lyfjamál á
íslandi og óskar eftir samvinnu við þá.
Verður áheyrnarfulltrúum boðið á fundi
nefndarinnar, þegar það þykir við eiga.
í nefndinni eiga sæti:
Árni Kristinsson, læknir,
Guðmundur Elíasson, læknir,
Magnús Jóhannsson, lektor,
Vilhjálmur G. Skúlason prófessor, og
Örn Ævarr Markússon, lyfjafræðingur.
Skrifstofustjóri er Guðbjörg Kristinsdótt-
ir. Skrifstofa nefndarinnar er að Skóla-
vörðustíg 46, sími 28455. Afgreiðsla hennar
er opin kl. 9-17 virka daga. Formaður er
til viðtals fimmtudaga kl. 16-17 og skrif-
stofustjóri mánudaga og fimmtudaga kl.
10-11.