Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.1976, Síða 21

Læknablaðið - 01.06.1976, Síða 21
LÆKNABLAÐIÐ 93 því að auka eða minnka framleiðslu á því lipoproteini („low density lipoprotein“), sem er aðalburðarvagn kólesteróls í blóði eða með því að auka eða minnka niðurbrot þess. Um það bil 40% af kólesteróli í fæðu er tekið upp af görnum, hér myndi það gróft reiknað vera um 200mg/dag. Meðal- umsetning á kólesteróli er hins vegar 1-1,5 grömm á dag, að miklu leyti myndað í lifur og útskihð í galli sem kólesteról og gallsýrur. Tilraunir hafa sýnt, að mann- skepnan aðlagast aukinni kólesterólinn- töku með því að minnka framleiðslu þess í líkamanum. Þessi svörun er þó ekki full- komin, þannig að hækka má kólesteról- gildið í blóði nokkuð með því að auka kólesteról- og/eða fituinntökuna.11 Deilt er um hversu mikill hlutur kólesterólinntök- unnar sé í ákvörðun meðalgildis kólester- óls, en flestir eru þeirrar skoðunar, að neysla mettaðrar fitu skipti meira máli en neysla kólesteróls. A. Keys hefur reiknað út frá manneldistilraimum, hversu mikið meðalkólesterólgildi hópa breytist við breytt mataræði: A kólesteról mg/100ml=A Z-|-2,7S — 1,3P, þar sem Z merkir mismun á kvaðratrót kólesterólinntökunnar/1000 hitaeiningar, S merkir mismun á hundraðshluta mettaðrar fitu og P merkir mismun á hundraðshluta ómettaðrar fitu í heildarorkuneyslunni.10 Ef mataræðið hérlendis breyttist þannig, að meðalneysla á kólesteróli/1000 hitaein- ingar minnkaði úr 220 í 150mg, hlutur mettaðrar fitu úr 20% í 10% og hlutur ómettaðrar fitu hækkaði úr 5% í 14% (þannig að áætlað P/S hlutfall 0,25 ykist í 1,5) myndi meðalgildi kólesteróls lækka um 43mg/100ml eða 18%. Af þessari lækk- un munaði mest um lækkun á neyslu mettaðrar fitu (27mg/100ml), þar sem minnkunin á kólesterólneyslunni myndi einungis lækka kólesterólgildið um 3mg/ lOOml. Sumir aðrir rannsakendur myndu þó gera hlut kólesterólneyslunnar meiri. Þess ber þó að geta, að þessi formúla gildir einungis við samanburð hópa, þar sem svörun einstaklinga er talsvert mis- munandi. Sumir myndu svara breyttu mat- aræði talsvert betur, aðrir miður vel. Enda þótt sterk fylgni sé milli meðal- gildis kólesteróls heilla þjóða eða hópa og neyslu þeirra á mettaðri fitu, þá hafa hvorki þessi mataræðisrannsókn né aðr- ar,625 sýnt fram á neina verulega fylgni milli fituneyslu hvers einstaklings og kól- esterólgildis hans. Þetta má skýra með því, að kólesterólgildið ákvarðast verulega af erfðum28 29 (40%), sem m. a. kemur fram í mismunandi svörun einstaklinga við sömu inntöku af mettaðri fitu og kólesteróli. Einnig verður að hafa í huga, að könnun sem þessi er ekki fyllilega ná- kvæm fyrir hvern einstakling, en nógu ná- kvæm fyrir samanburð milli hópa. Því er ekki að vænta, að slík rannsókn sýni fylgni milli kólesterólgildis hvers einstakl- ings og mataræðis hans. Eins og áður segir sýndi hóprannsókn Hjartaverndar, að meðalgildi þríglyseríða er hér talsvert lægra en í mörgum öðrum löndum.14 Þennan mun má ef til vill skýra að nokkru með mismunandi rannsóknar- aðferðum. Manneldistilraunir hafa sýnt, að hafa má veruleg áhrif á gildi þríglyseríða í blóði með ýmsu móti. Sé neysla mettaðrar fitu minnkuð en ómettuð fita aukin lækk- ar þríglyseríðagildi flestra verulega (25- 35%).5 Mikil kolvetnaneysla (65-85% af heildarorkumagninu) hækkar þríglyseríða verulega. Lengri rannsóknir hafa þó bent til, að þessi hækkun sé tímabundin og eftir 2 mánuði á slíku fæði sé þríglyseríða- gildið aftur orðið það sama. Suðrænar þjóðir, sem neyta mikils kolvetnis, hafa og ekki hærri meðalgildi þríglyseríða en flestar aðrar þjóðir. Því verður að teljast ólíklegt, að hin lága kolvetnaneysla hér- lendis eigi stóran þátt í lágu meðalgildi þríglyseríða. Hins vegar er sjúklingum með verulega hækkaða þríglyseríða oft ráðlagt að takmarka kolvetnaneysluna, því að sumir þeirra, þó minni hlutinn, virðast mjög kolvetnanæmir. Einnig hefur verið sýnt fram á, að neysla áfengis og bjórs hækkar þríglyser- íða verulega. Vel má vera að skýra megi hið lága meðalgildi á þríglyseríðum hér að nokkru leyti á því, að bjórdrykkja er hér svo til engin, og enda þótt áfengis- neysla sé hér veruleg, þá er dagleg bjór- neysla líklegri til að hafa áhrif á meðal- gildi þríglyseríða heldur en strjál neysla á sterkum drykkjum. Líkamsþyngd hefur og veruleg áhrif á þríglyseríða, en saman-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.