Læknablaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 15
LÆKNABLAÐIÐ
3
Jóhann L. Jónasson
HEPATITIS B ANTIGEN
INNGANGSORÐ
Fáar uppgötvanir síðustu ára á sviði
læknisfræðinnar hafa vakið athygli og
áhuga jafnmargra lækna og fundur
Ástralíu-antigensins (HBAg). Þegar ljóst
varð samband þess við virus hepatitis á
árunum 1967 og 1968 hlupu af stað skrið-
ur rannsókna víða um heim, sem ennþá
virðist ekkert lát á. Greinar um efnið
lengri og skemmri, munu nú vera a. m. k.
á annað þúsund, og ýmislegt hefur verið
leitt í ljós, sem haft getur víðtæka hag-
nýta og fræðilega þýðingu.
Þörf slíkra rannsókna hérlendis var aug-
ljós, ekki sízt vegna blóðgjafa. Við hófum
því HBAg rannsóknir á Landakotsspítala
árið 1971. Auk athugana á sjúklingum
samkvæmt beiðni lækna, þ. á m. frá öðr-
um sjúkrahúsum og landshlutum, gerðum
við fjöldarannsóknir á nokkrum völdum
hópum einstaklinga til könnunar á tíðni
HBAg hér, en athuganir erlendis höfðu
sýnt mikinn mun milli landa og jafnvel
landshluta.
Tilgangur þessarar greinar er: I. Að
kynna þetta efni nokkru nánar með stuttu
yfirliti. II. Að gera grein fyrir rannsóknum
okkar til könnunar á tíðni HBAg hér og
niðurstöðum þeirra.
SÖGUÁGRIP
Blumberg og samverkamenn hans unnu
í nokkur ár að kerfisbundnum rannsókn
um í leit að mótefnum í blóði sjúklinga,
sem fengið höfðu margar blóðgjafir.
Beindu þeir einkum athygli sinni að mót-
efnum gegn low-density beta-lipoproteinum
og uppgötvuðu hið svokallaða Ag kerfi.10
I framhaldi þeirra rannsókna fundu þeir
árið 1963, og gerðu grein fyrir 1965,11 að
blóðvatn frá tveimur blæðurum með
haemofili, sem höfðu fengið margar
blóðgjafir, myndaði útfallslínu þegar próf-
að var með immunodiffusion (micro-
Ouchterlony gel diffusion technique) gegn
blóðvatni frá innfæddum Ástralíunegra
(mynd I). Antigen Ástralíunegrans reynd-
ist frábrugðið beta-lipoproteinum og var
kallað Ástralíu-antigen eða Au(l).
Sem erfðafræðingar og vísindamenn
við krabbameinsrannsóknastofnun höfðu
Blumberg og félagar aðgang að gnægð
blóðsýna frá ýmsum þjóðflokkum, bæði
frá sjúkum og heilbrigðum. Þær athug-
anir sýndu fljótlega að þetta antigen var
sjaldgæft í heilbrigðum Bandaríkjamönn-
um, en algengt í ýmsum þjóðflokkum
Figure I Australia antigen [Au(l)] as de-
tected by immunodiffusion in agar gel.
Antiserum is in upper well. Precipitin
bands between wells indicates presence of
Au(l) in serum of lower well. (Sutnick et
al. 1970).75
Frá Rannsóknadeild Landakotsspítala.