Læknablaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 48
24
LÆKNABLAÐIÐ
Ætti að geta orðið af þessari hugmynd,
þegar regluleg útgáfa blaðsins er tryggð
og ætti þannig að geta vegið á móti, þegar
sérstök aukahefti með faglegu efni fara að
birtast. Af slíku efni liggja nú fyrir tvö
hefti, sem verið er að undirbúa til prentunar.
Stjórnir læknafélaganna hafa gefið í skyn,
að ekki muni standa á, að félögin greiði
þann halla, sem verða kann á blaðinu. Ætti
því að vera hægt að auka blaðið og bæta
og kalla ég hér með eftir greinum og at-
hugasemdum um félagslegt efni og ekki
sakar að minna sérgreinafélög og aðra hópa
innan læknafélaganna á að senda fréttir af
félagsstarfi og koma á framfæri upplýsing-
um um væntanlegar ráðstefnur og fundi.
Því aðeins að læknar sýni málgagni sínu
áhuga getum við gefið út lifandi og skemmti-
legt blað; ritstjórnin getur aðeins unnið úr
þeim efnivið, sem henni berst. öb
FRAMHALDSMENNTUN LÆKNA
Á aðalfundinum á Laugarvatni 1976 var
samþykkt ályktun um:........að skora á
læknadeild H.Í., heilbrigðismálaráðuneyti og
menntamálaráðuneyti að skila sem fyrst áliti
um það, hvernig haga eigi stjórnun og fram-
kvæmd framhaldsnáms í læknisfræði hér á
landi."
Á læknaþingi 1973 var samþykkt, að
læknasamtökin beittu sér fyrir að koma á
framhaldsmenntun lækna á íslandi. Árna
Kristinssyni var falið að safna gögnum um
málið. Bar hann fram tillögur, sem ræddar
voru á læknaþingi 1975. Þingið fól stjórn
Læknafélags íslands að hefja viðræður við
þá aðila, sem nefndir voru í ályktuninni hér
að ofan og voru eftirtaldir tilnefndir til við-
ræðna um málið:
Árni Gunnarsson, deildarstjóri, fulltrúi
menntamálaráðuneytis, Árni Kristinsson,
læknir, fulltrúi L.Í., Hjalti Þórarinsson, pró-
fessor, fulltrúi læknadeildar H.Í., og Páll
Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, fulltrúi heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneytis.
17. janúar 1977 sendi L.í. út tillögur nefnd-
arinnar vegna framhaldsmenntunar lækna.
Segir þar, að nefndarmenn séu „sammála
um, að brýnt sé, að hefja án tafar skipu-
lagt nám í heimilis- og heilsugæzlulækn-
ingum. Pegar er skortur á heimilislæknum
í Reykjavík. Vegna bygginga heilsugæzlu-
stöðva á landinu mun aukast þörf fyrir vel
menntaða heilsugæzlulækna. Síðan er nauð-
synlegt að skipuleggja framhaldsnám fyrir
aðstoðarlækna í öðrum sérgreinum.
Ekki var heimilað á fjárlögum 1977 að
stofna nýjar námsstöður í þessu skyni. Hins
vegar er unnt að hefja þetta nám fyrir þá,
sem sitja aðstoðarlæknisstöður, sem nú eru
heimilar víða um land.
Par sem enginn framkvæmdaaðili er til
umsjónar með slíku námi, leggjum við til
eftirfarandi:
1. Að sett verði á stofn sérfræðiráð, sem
verði skipað fulltrúum Félags ungra
lækna, heilbrigðisráðuneytis, læknadeild-
ar Háskóla íslands og Læknafélags ís-
lands. Hlutverk sérfræðiráðs verði skipu-
lag og yfirstjórn framhaldsmenntunar
lækna í landinu í hinum ýmsu sérgrein-
um og sjái það um, að nauðsynleg nám-
skeið verði haldin. Sérfræðiráðið hafi
stöðugt í endurskoðun reglugerð um
framhaldsmenntun og kröfur til sérfræði-
leyfa. Sérfræðiráðið fjalli um umsóknir
um sérfræðileyfi og verði ráðgjafi heil-
brigðisráðherra um þau.
2. Að stofnuð verði heimilislækninganefnd
til aðstoðar sérfræðiráðinu, skipaða full-
trúum Félags heimilislækna, Félags ungra
lækna, heilbrigðisráðuneytis, læknadeild-
ar Háskóla íslands og Læknafélags ís-
lands.
Heimilislækninganefnd verði ráðgjafi sér-
fræðiráðs um nám, námskeið og viðhalds-
nám í heimilislækningum, veitingu sér-
fræðileyfa í heimilislækningum, flokkun
heilsugæzlustöðva og breytingar á reglu-
gerð um heimilislækningar.
3. Að koma á fót sérnámsnefndum í öðrum
sérgreinum eftir þörfum, og verði þær
skipaðar fulltrúum sérfræðifélags, há-
skólakennara og námsmanna í sérgrein-
inni. Sérnámsnefndir verði ráðgjafi sér-
fræðiráðs á sama hátt og heimilislækn-
inganefnd."
Samhliða starfi aðalnefndarinnar hafa
starfshópar á vegum L.í. fjallað um fram-
haldsnám í hinum ýmsu greinum og liggur
nú fyrir álitsgerð frá þeim Eyjólfi Haralds-
syni, Ólafi Mixa og Pétri Péturssyni, en
þeim var falið að fjalla um þann þátt, sem
að heimilislækningum og heilsugæzlu snýr.
Verður væntanlega hægt að kynna álitsgerð
þeirra bráðlega. öb