Læknablaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 78
42
LÆKNABLAÐIÐ
TAFLA 4
Tíðni algengustu sjúkdóma.
Sjúkdómsgreining Karlar Konur Samtals % af öllum greindum tilfellum
Sýkingar hjá ^12 ára 19 29 48 20.9
Sýkingar hjá -*■ 12 ára Hjartasjúkdómar og/eða 26 6 32 13.9
háþrýstingur 12 23 35 15.2
Geðrænir sjúkdómar 7 21 28 12.2
Taugasjúkdómar 8 8 16 7.0
Heilaæðasj úkdómar 2 5 7 3.0
var 48 (19 drengir og 29 stúlkur) eða
20.9% af öllum greindum tilfellum. Hjá
12 ára og eldri var fjöldi sýkinga 32 (26
karlar og 6 konur) eða 13.9% greindra
tilfella. Af þeim voru 2 með gonorrhoea.
Fjöldi sjúklinga, sem leitaði læknis
vegna geðrænna einkenna, var 28 (7 karlar
og 21 kona). Er þetta 12.2% þeirra, sem
leituðu læknis á tímabilinu. Flestir þeirra
voru með psychoneurosis eða depressio
mentis og var aldur þeirra frá 23-67 ára.
Meðalaldur kvenna var 39.5 ár og karla
51.6 ár. Einn karlmaður var með psychosis
paranoidea (56 ára), ein kona var manisk
(22 ára) og önnúr kona var haldin abusus
medicamentorum (35 ára). Ekki var neinn
áfengissjúklingur meðal þessara sjúklinga.
Hjartasjúkdóma og/eða háþrýsting höfðu
35 (12 karlar og 23 konur) eða 15.2%.
Meðalaldur karlanna var 59.3 ár og kvenna
61.5 ár. Yngsti sjúklingurinn með hjarta-
sjúkdóm var stúlka, sem greind var við
skólaskoðun.
Vefrænir taugasjúkdómar voru greindir
hjá 16 sjúklingum (8 karlar og 8 konur)
eða 7.0% allra sjúklinga. Á töflu 5 má
sjá flokkun taugasjúkdóma og sést meðal
annars, að 3 voru með flogaveiki.
Greining á heilaæðasjúkdómum er sam-
kvæmt kennileitum svipuðum og lýst er
i grein Matsumoto et al.7
Með sjúkdóma í heilaæðum voru 7 sjúkl-
ingar (2 karlar og 5 konur) eða 3.2% af
skoðuðum sjúklingum. Einn karlmaður, 67
ára, sem var með hjartasjúkdóm, hafði
einkenni um þrengsli í art. carotis interna
v. megin. Meðalaldur karla með heilaæða-
sjúkdóma var 69 ár og kvenna 80 ár.
Aðrar sjúkdómsgreiningar voru 94, þ. e.
40 karlar og 54 konur. Af þeim höfðu 11
höfuðverk. Voru 7 þeirra með spennings-
höfuðverk, en 4 með migraine. Einn kar.1-
maður, 61 árs, hafði anæmia pemiciosa,
og 3 karlar og 1 kona höfðu psoriasis.
Einn karlmaður hafði diabetes (68 ára)
og ein stúlka (6 ára) hafði nýlega verið
skorin upp vegna cancer suprarenalis, en
faðir hennar hafði verið skorinn upp vegna
mænuæxlis nokkrum árum áður og leitaði
til mín vegna magnleysis í fótum.
Engar meiriháttar skurðaðgerðir áttu sér
stað, en 6 sjúklinganna þörfnuðust minni
háttar aðgerða, þ. e. einn vegna rifbeins-
brots, einn vegna fractura radii dx., einn
vegna liðhlaups á þumalfingri, einn vegna
brunasárs á h. hendi, einn skaddaði sin á
flexor h. þumalfingurs. 19 ára piltur slas-
aðist illa er hann fór í spil um borð í bát,
hlaut slæmt opið brot á h. upphandlegg
og rifnaði art. brachialis. Var sá sjúklingur
sendur á Landspítalann í flugvél og tekinn
af honum handleggur þar.
Á sjúkrahús í Reykjavík voru sendir 3
sjúklingar til rannsóknar og meðferðar
(1.3% sjúklinga), ein stúlka vegna hjarta-
sjúkdóms, ein kona vegna gruns um
orthostatiska hypotension, og piltur vegna
slæms brots á h. upphandlegg.
UMRÆÐUR
Niðurstöður þessara rannsókna ættu
að geta gefið nokkrar upplýsingar um
fjölda þeirra sjúkdóma, sem hér eru gerð
skil. Fjöldi (prevalence) flogaveiki í þess-
ari könnun er 344/100 þús. íbúa, en við
rannsókn á fjölda flogaveikra á íslandi
var talan 340/100 þús.1 Mun meira er af
geðrænum sjúkdómum í þessari rannsókn,
eða 12.2% greindra tilfella, en í rannsókn,
sem gerð var á læknisstörfum í Hvamm§-