Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1977, Page 45

Læknablaðið - 01.02.1977, Page 45
LÆKNABLAÐIÐ 21 fram í áliti hennar, að spítalann skortí flest það, sem gerði kennsluspítala.5 Um svipað leyti starfaði nefnd á vegum læknafélaganna, sem átti að gera úttekt á staðli sjúkrahúsanna í Reykjavík og skipulagningu spítalaþjónustunnar. Nefnd þessi hlaut nafnið „Kroniska nefndin“. Hún skilaði þó um síðir ítarlegu áliti og varð niðurstaða þess sú, að ekkert sjúkra- hús í Reykjavík uppfyllti lágmarksstaðal fyrir kennslusjúkrahús.2 í framhaldi af nefndaráliti Landspítala- nefndarinnar, kölluðu heilbrigðismálaráð- herra og stjórn ríkisspítalanna hingað til Islands tvo Svía til að gera úttekt á læknis- þjónustu og aðstöðu sjúkrahúslækna og gera tillögur um brey-tingar. Svíarnir höfðu hér skamma dvöl, en á þeim tíma ræddu þeir við ýmsa aðila, bæði fulltrúa stjórna spítalanna og fulltrúa lækna. Þeir skiluðu áliti, en það var, af einhverjum ástæðum, aldrei birt. Aldrei hefur verið upplýst hvers vegna það var ekki gert, en vitað er að eitt af því, sem þeir lögðu til í áliti sínu var, að sjúkrahúsin í Reykjavík yrðu sameinuð í eina kennslustofnun, því að þeir töldu að öðruvísi yrði ekki komið hér á fót kennsluspítala, sem borið gæti nafn með rentu. Sú hugmynd, sem þó var ekki ný, hefur alltaf átt erfitt uppdráttar.1 Allar þær nefndir, sem hér hefur verið rætt um, voru sammála um það, að ekkert sjúkrahús í Reykjavík stæðist þá þær kröf- ur, sem gerðar eru til kennslusjúkrahúss og þetta hefur ekki breytst neitt að ráði síðan. Bæði læknum og öðrum ráðamönnum heilbrigðismála hefur verið ljóst að þörf er á einhvers konar samstarfi. Læknafélag Reykjavíkur skipaði í maí 1971 nefnd, sem kölluð var samstarfsnefnd sjúkrahúsa. Sú nefnd hélt allmarga fundi,3 4 en skilaði aldrei áliti og lognaðist út af smátt og smátt. Þá var í janúar 1971 á vegum heil- brigðisráðuneytisins sett á stofn samstjórn sjúkrahúsa, sem starfaði eitthvað um sinn, en hlaut síðan einnig hægt andlát. Þannig hafa þeir aðilar, sem hér um ræðir, játað samstarfi í orði, en neitað því á borði. Vilji til samstarfs er ekki fyrir hendi, hvorki hjá læknum né ráðamönnum heil- brigðismála og því hefur ekkert gerst og mun ekki gerast nema þrýstingur komi frá þeím stóra hópi ungra lækna, sem nú eru að útskrifast frá Háskóla íslands, en þeir hljóta að krefjast þess, að hér verði sett á stofn alvöru kennslustofnun í læknis- fræði. Sú krafa byggist á því, að mögu- leikar til framhaldsnáms í læknisfræði hafa þrengst í nágrannalöndum okkar, bæði austan hafs og vestan, og einnig á því, að á síðari árum hefur verið lögð meiri áhersla á heimilis- og fjölskyldulækningar en áður. Slíkar lækningar eru staðbundn- ari en hinar þrengri sérgreinar og gera því kröfu til möguleika á framhaldsmennt- un í landinu sjálfu. KENNSLUSJÚKRAHÚS Ef gera ætti eitt af sjúkrahúsunum í Reykjavík að kennslusjúkrahúsi, sem gerð- ar væru sömu kröfur til og hliðstæðra stofnana erlendis, myndi það taka langan tíma og kosta breytingar, sem ekki eru framkvæmanlegar innan þess þrönga stakks, sem fjármálayfirvöld sníða nú heil- brigðisstofnunum. Væru hins vegar þær heilbrigðisstofnanir, sem starfandi eru hér í borg, skipulagðar með samvinnu og jafn- vel sameiningu í huga, væri unnt að byggja hér upp kennslustofnun, sem væri sam- bærileg við minni kennslustofnanir á Norð- urlöndum og ef til vill víðar. Við slíka stofnun væri hægt að ljúka að fullu fram- haldsnámi í heimilis- eða fjölskyldulækn- ingum, ef heilsugæslustöðvar væru teknar með í myndina. Að hluta eða alveg í al- mennri lyflæknisfræði og handlæknisfræði og að hluta einnig í þrengri sérgreinum. Ef unnt væri að byggja upp kennslu stofnun, sem viðurkennd væri erlendis, a. m. k. á Norðurlöndum, mundi vinnu- markaður lækna stækka, en jafnframt mundu kraftar ungu læknanna nýtast bet- ur hér heima. Þá mundi útivist lækna væntanlega styttast og yrði þá síður hætta á, að menn ílentust erlendis eða hrökkluð- ust til baka eftir heimkomu, vegna óánægju með starfsskilyrði. Nú er fyrir hendi nokkur verkaskipting milli sjúkrahúsanna í Reykjavík, en hún er óskipulögð og að mörgu leyti handa- hófskennd. Þess vegna er víða léleg nýt- ing á sérhæfðum starfskröftum, bæði til lækninga og kennslu. Þá stuðlar núver- andi skipulag — eða skipulagsleysi — að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.