Læknablaðið - 01.02.1977, Page 54
26
LÆKNABLAÐIÐ
Mynd 1 A (23.3. ’66).
Mynd 1 B (22.6. ’66).
Óveruleg kryppa sást á mótum brjóst- og
lendaliða.
Á röntgenmyndum kom í ljós: 1) þreng-
ing á liðbili T, g-L,, 2) trosnun á enda-
plötum aðliggjandi liðbola, að framan-
verðu á T, 2, en að aftanverðu á L,, 3)
nokkur þétting í liðbolunum og 4) kryppa
á hrygg á þessu svæði (1. mynd A).
Blóðrauði mældist 11.3 gr%. Hvít blóð-
korn 12000 per mm3, þar af voru kleií-
kjarnafrumur 63% og hnattfrumur 31%.
Sökkhraði (Westergren) mældist 33 mm/
1 klst.
Við smásjárskoðun á þvagi sást slangur
af rauðum blóðkornum tvo fyrstu dagana
og enn þremur vikum síðar, en ekki eftir
það. Að öðru leyti var þvagskoðun eðli-
leg. Fyrsta ræktun úr þvagi var gerð
fjórum vikum eftir að stúlkan kom á
sjúkrahúsið, en þá hafði hún fengið sýkla-
lyf í nokkrar vikur. Sú ræktun var nei-
kvæð og allar þær, er síðar voru gerðar.
Myndir 1 A, B og C. Þróun röntgen-
breytinga hjá sjúkl. P.V., sem lýst er í
texta.
Mynd 1 C (7.10. ’66).