Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1977, Page 69

Læknablaðið - 01.02.1977, Page 69
LÆKNABLAÐIÐ 33 anum (tafla I). Fylgzt hefur verið með hinum sex. Nú, haustið 1974, eru að meðal- tali liðin tæp 5 ár frá því þessir sex sjúkl- ingar veiktust og að meðaltali 4 ár frá upphafi veikinda og þar til síðasta eftirlit fór fram. í öllum tilvikum hélzt bati góð- ur eftir að sjúklingarnir komu heim af spítalanum. Einn sjúklingurinn (nr. 6 á töflum I-IV) hefur kvartað öðru hverju um þreytu í baki og fótum, en hjá hinum hefur ekki gætt neinna óþæginda og þeir virzt, að mati aðstandenda, fullkomlega heilbrigðir. Skoðun á þessum sjúklingum hefur ekki leitt neitt athugavert í ljós, engar hryggskekkjur verið til staðar og hreyfingar í baki óhindraðar. Hjá einu barninu (nr. 4 á töflum I-IV), sem í upp- hafi hafði haft mjaðmarliðseinkenni og smávægilega vöðvarýrnun á hægra læri, kemur enn 4 árum síðar fram ummáls- munur á lærinu, þótt óverulegur sé, nemur mest 5 mm. Ekki kom í ljós annað athuga- vert hjá þessum sjúklingi og hann hafði góða krafta í ganglimum. Röntgenrannsóknir hjá sömu sjúkling- um sýna endanlega svipað útli-t, þ. e. þröngt liðbil, skarpa en bylgjótta enda- plötu og eðlilega beingerð í liðbolum (sjá mynd 2). Hjá þremur sjúklingum hefur komið fram hlutfallslegur ofvöxtur (ver- tebra magna) í aðlægum liðbolum, en hvergi samruni (sjá mynd 3). SKIL Hér á undan hefur verið gerð grein fyrir sjö börnum með spondylitis non- specifica, sem dvalið hafa á barnadeild Landspítalans á 9 ára tímabili, 1966-1974. Miðað við árafjölda og tölu landsmanna er þetta nokkuð stór hópur, því heildar- fjöldi tilfella, sem tínd hafa verið til og birtar greinar um erlendis á síðustu 20-30 árum munu vera innan við 200.113 Hvort sú tala gefur rétta mynd af tíðni sjúk- dómsins skal ósagt látið — hugsanlega fara fleiri eða færri væg ti-lfelli fram hjá, án þess eftir þeim sé tekið eða þau rang- lega greind. Kyn, aldur Hryggþófabólga kemurálíka oft fvrir hjá báðum kynjum, stúlkur þó aðeins í meiri- hluta ef nokkru munar, en venjulega eru sýkingar tíðari meðal karla en kvenna, í hlutfallinu 1,5/1. í heildaryfirlitum Alex- ander1 og Ro-cco & Eyring13 um börn með hryggþófabólgu reyndist þetta hlutfall vera 0,85/1, en skiptingin þó mismunandi innan einstakra sjúklingahópa, sem yfirlit þeirra byggðist á, t. d. var hlutfallið hjá Menelaus 0,5/1, Smith og Taylor 2,3/1 og Spiegel et al. 2,3/1.° 1617 Sjúkdómurinn sést aðallega hjá ungum börnum. í yfirliti Alexander um 120 sjúkl- inga var meðalaldur þeirra 4,7 ár.1 I upp- gjöri Rocco & Eyring, sem náði yfir 155 sjúklinga voru 60% þeirra 5 ára eða yngri,13 en í yfirlitum beggja var að nokkru um sömu sjúklinga að ræða. Á barnadeild Landspítalans hafa kom- ið 3 drengir og 4 stúlkur með þennan sjúkdóm, sem gefur hlutfallið 0,75/1 og er það svipað framangreindum meðalhlut- föllum. Elzti sjúklingurinn var rúmlega 3% árs, en sá yngsti 16 mánaða. Fimm voru innan 2 ára. Meðalaldur sjúklinga var 2 ár. Sjúkdómsorsök Ekki er vitað hvað veldur hryggþófa- bólgu, en flestir hafa talið, að sýking lægi þar að baki. Erfitt hefur þó reynzt að sanna það, en útlit hryggskemmdar á röntgenmyndum, ásamt með sökkhækkun og hita, sem oft er sjúkdómnum samfara, hafa þótt styðja þá skoðun. Nálarsýni- tökur úr hryggþófabólgu hafa ekki verið iðkaðar nema í litlum mæli, staðurinn ekki þótt aðgengilegur og viss hætta sýni- tökunni samfara. Hjá fjórum af fimm sjúklingum Milone et al., sem slík sýni voru tekin frá ræktaðist staphylococcus aureus og einnig hiá tveimur af fimm sjúklingum Moes.1011 Er oftast vitnað í bessar niðurstöður til stuðnings þeirri kenningu, að siúkdómurinn sé af svkla- unpruna. Oftar hafa bó slíkar ræktunar- t.ilraunir ekki borið árangur. Þá hafa og blóðræktanir venjulega verið neikvæð- ar.3 7 8 13 16 Tekin voru hryggþófasýni hjá 18 af beim 120 siúklingum, sem Alex- ander1 tók með í sitt yfirlit og ræktuðust sýklar hjá 6. en það voru einmitt áður- greindir sjúklinear Milone et al. og Moes. Ennfremur hafði verið gerð blóðræktun
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.