Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.02.1977, Page 80

Læknablaðið - 01.02.1977, Page 80
44 LÆKNABLAÐIÐ LeLdbeiningar fyrir greinaköfunda Fræðilegar greinar í Læknablaðið skulu sendar ritstjórn Læknablaðsins, Domus Medica, Reykjavík. Læknablaðið birtir vísindalegar greinar um öll svið læknisfræðinnar, hvort sem þær eru byggðar á eigin athugunum og rannsóknum eða samantekt á annarra reynslu, bæði yfirlits- og fræðslugreinar. Þá eru og birtar styttri athugasemdir og lesendabréf. Greinar skulu uppbyggðar á skýran hátt. Tilgangur greinarinnar skal skýrt tekinn fram í inngangi. Athugunum og rannsóknum höfundar skal haldið sér í kafla. Oft hæfir að ræða síðan niðurstöður höfundar og bera saman við fyrri þekk- ingu um sama efni. Að lokum skulu niður- stöður dregnar og bornar saman við fyrri þekkingu um sama efni. Öllum greinum byggðum á eigin reynslu höfundar skal fylgja efniságrip (summary) á ensku. Handrit skulu vera vélrituð, helzt í tveimur eintökum, með breiðri (ca. 5 cm.) spássíu og tvöföldu línubili. Handritið skal vera snyrtilegt og hreint: leiðréttingar skulu vera greinilegar. Þá hluta handrits, sem prenta á með smáletri (petit) (sjúk- dómslýsingar, aðgerðir o. fl.) á að skrifa með sama línubili, en merkja greinilega á spássíu. Greinartitill skal vera stuttur, en skýr, og lýsa viðfangsefni greinarinnar. Stund- um er betra að hafa undirtitil. Inniheldur aðaltitill þá eitt eða fleiri lykilorð, sern nauðsynleg eru til réttrar færslu greinar- innar í spjaldskrá. Undir titil greinarinnar setur svo höfundur nafn sitt og ef til vill nafn stofnunar þeirrar, þar sem að grein- inni hefur verið unnið. Töflur spara oft langt mál í texta og ætti ekki að nauðsynjalausu að endurtaka í texta þær upplýsingar, sem í töflum standa. Töflur skulu hafðar eins einfaldar og skýrar og unnt er. Hver tafla skal skrifuð sér á blað, og þær skulu tölusettar í þeirri röð, sem um þær er rætt í texta. Töflur mega hafa titil, og þeim skal fylgja stuttur skýringartexti, svo að skilja megi þær án þess að lesa greinartexta. I hand- riti skal merkja á spássíu, hvar staðsetja á hverja töflu. Myndir skal velja með kostgæfni, og forðast ber að ofhlaða greinar með mynd- um. Ljósmyndir skulu vera skýrar og verða að þola nauðsynlega smækkun. Línu- rit og teikningar verða að vera skýrar og snyrtilegar og teiknaðar með tússi á hálf- gegnsæjan pappír. Höfundur verður að yfirvega, hvort línurit eða töflur skýri mál hans betur. Myndir skulu tölusettar í þeirri röð, sem þær eru ræddar í grein- inni. Ekki skal líma myndirnar á blað, en á bak þeirra skal límdur miði með mynd- númeri og nafni höfundar. Ekki má skrifa á bak myndanna sjálfra. Hverri mynd skal fylgja stuttur skýringatexti. Myndatexta skal skrifa sér á blað. í handrit skal merkja á spássíu, hvar staðsetja á myndir. Myndum, sem ekki eru runnar frá höfundi sjálfum, skal fylgja skýring á uppruna þeirra. Heimildir skal skrifa á sérstakt blað. Leitast skal við að tilfæra aðeins heimild- ir, sem máli skipta. í texta er vísað til heimilda með tölustöfum. Dæmi: ,,Því er haldið fram1 5 7 að“ o. s. frv., eða „Johnson og Smith'1 telja, að“ o. s. frv. í greinarlok fylgi listi með yfirskriftinni: Heimildir. Heimildum er þar raðað í stafrófsröð höf- unda með áframhaldandi tölusetningu. Skulu nú færð nokkur dæmi um mis- munandi uppruna heimilda. a) Tímarit. Alexander, B. & Goldstein, R. Dual hemostatic defect in pseudohemophilia. J. Clin. Invest. 32:551. 1963. eða: Jensson, Ó. & Wallett, L. H. Von Wille- brand’s disease in an Icelandic family. Acta Med. Scand. 187:229. 1970. Heiti tímarita eru stytt samkvæmt World Medical Periodicals, útgefið af World Medical Association, 10 Columbus Circle, New York, N.Y. 10019, U.S.A.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.