Læknablaðið - 01.04.1979, Side 49
LÆKNABLAÐIÐ
83
og er innsýn í augnbotna góð, en sjón-
skerpa léleg eða 6/30 enda er hún með
áberandi augnriðu (nystagmus).
Næsti stóri faraldur af rubella hér á
landi gengur árin 1963—4 og eru skráð
6080 tilfelli. Athyglisvert er að ekkert barn
með cataract finnst eftir þennan faraldur
né heldur með hjartagalla, svo vitað sé,
þótt rubella syndrome hópurinn í Heyrn-
leysingj askólanum fædd eftir þennan far-
aldur telji 27 nemendur. Mest hætta er tal-
in á cataract hjá fóstri, sýkist móðir af
rubella veiru á fyrstu 6 vikum meðgöngu-
tíma. I 27 einstaklinga hópi er óliklegt að
allar sýkingarnar hafi orðið seinna og skýri
þar með að cataract komi ekki fram. Raun-
ar höfum við orð margra mæðra þessa
hóps, að rubella sýking varð einmitt innan
6 viknanna. Fyrirspurnir um rubella syn-
drome börn utan Heyrnleysingjaskólans,
fædd með cataract eftir þennan faraldur
eru neikvæðar. Árið 1973 gengur hér smá-
faraldur með 1957 skráð tilfelli. Árið eftir
(1974, sjá töflu I) fæðist svo drengur með
rubella syndrome og cataract á öðru auga,
en eðlilega sjón á hinu.
Þriðji nemandinn í Heyrnleysingjaskól-
anum, sem fannst með cataract hefur „Blue
dot“ cataract og 6/9 sjón á báðum augum.
Ekki er saga um rauða hunda hjá móður á
meðgöngutíma.
Við John Hopkins háskólann í Banda-
ríkjunum (Wolff)' var gerð athugun á
rubella syndrome börnum eftir faraldur-
inn þar í landi 1963—4. Athugunin tók yfir
328 börn; 175 þeirra höfðu rubella syn-
drome í augum og 54 af 175 eða 30.8%
höfðu cataract. Sem fyrr greinir er ekkert
barn hér á landi með cataract eftir þennan
sama faraldur.
Meðal 26 rubella syndrome nemenda (af
39) í Heyrnleysingjaskólanum finnst sjúk-
leg pigmentdreifing í augnbotni eða hjá
66.6%. Samsvarandi tala frá John Hopkins
er 44.5%. Auk þess hafa 7 þeirra pigment-
frumur við bakhluta augasteins, sem lík-
legt er að komið sé frá corpus ciliare hluta
uvea. Wolff4 getur þess að sjúkleg litar-
efnisdreifing í augnbotni geti aukist með
árunum og sjón versnað af þeim sökum.
Slíku er ekki til að dreifa hjá okkur a.m.k.
ekki enn. Samanburður á sjónskerpu hjá
32 rubella syndrome nemendanna er skoð-
TABLE II. Visual acuity in The School for the Deaf
pupils tested.
Non-
Rubella pupils rubella pupils
All Better All Better
Visual eyes eyes eyes eyes
acuity No. % No. % No. % No. %
6/6 - 6/7 62 79.5 32 82.0 62 88.6 33 94.2
6/9 - 6/15 11 14.1 6 15.4 6 8.6 2 5.8
6/18 and less 5 6.4 1 2.6 2 2.8
Total 78 100.0 39 100.0 70100.0 35 100.0
uð voru 1969 og skoðunum mínum 1976 og
’79 sýnir að í engu tilfelli er um versnandi
sjón að ræða vegna pigmentbreytinga.
Ljóst er þó, að sjónskerpa rubella syn-
drome barnanna er lakari en hins hluta
hópsins (sjá töflu II) og er líklegt að hinar
sjúklegu litarefnisbreytingar við miðgróf
(macula) valdi því.
Rangeygi eða aðgert rangeygi fannst hjá
9 nemendum af 76 eða 11.8%, sem er mun
hærra hlutfall en gerist meðal íbúa al-
mennt (þ.e. 2—3%). Fimm þessara barna
voru rubella syndrome börn, en 4 úr hin-
um hópnum.
Hornhimnan var tær hjá öllum 39 rubella
syndrome nemendunum og enginn fannst
með gláku. Þetta á raunar við um allan
hópinn.
í fyrrnefndri John Hopkins athugun
höfðu 12% rubella syndrome barna matta
hornhimnu og 8.5% gláku.
SKIL
Af 76 heyrnarskertum nemendum Heyrn-
leysingjaskólans í Reykjavík hafa 39
rubella syndrome eða 51.3%. Af þessum
39 hafa aðeins 2 nemendur (f. ’55 og f. ’74)
cataract.
Athyglisvert er að úr 6080 skráðum
rubella tilfellum árin 1963—4 og 27 heyrn-
arskertum einstaklingum með rubella syn-
drome úr þeim faraldri hefur enginn cata-
ract né heldur hjartagalla, og fyrirspurnir
um cataract annars staðar af landinu frá
þessum faraldri eru neikvæðar. Athugun
frá John Hopkins háskóla í Bandaríkjunum
um sama faraldur sýndi 30% cataract með-
al þeirra, sem höfðu rubella syndrome í
augum.
Eftir smáfaraldur hér á landi árin 1947
—8 (514 skráð tilfelli) fundust 2, og eftir