Læknablaðið - 01.10.1979, Side 49
LÆKNABLAÐIÐ
253
valdið fósturskemmdum er ekki auðvelt að
rannsaka. Sú vitneskja sem fyrir liggur er
að mestu byggð á athugunum á konum
bólusettum stuttu fyrir eða eftir getnað.
Vaheri o. fél.79 gerðu athugun á 35 kon-
um, sem höfðu fengið leyfi til fóstureyð-
ingar af ýmsum ástæðum. 24 voru Hl-mót-
efnalausar. Voru þær bólusettar nokkru
fyrir fóstureyðingu og síðan leitað að veiru
bæði með ræktunum frá konunum sjálfum
og fósturvefjum. Ræktaðist rauðu hunda
veira úr 6 fylgjum og nýra eins fósturs-
ins. Auk þess reyndist unnt að rækta veiru
frá leghálsi 13 kvenna af 22. Botnlangi var
tekinn úr 15 konum (10 neikvæðar, 5 já-
kvæðar upphaflega). Ræktaðist veira úr
tveim botnlöngum. Hafði önnur konan ver-
ið bólusett 24 dögum áður og hafði mælan-
leg mótefni í blóði við botnlangatökuna.
Bendir þetta til að upp geti komið lang-
varandi sýkingarhreiður á ýmsum stöðum
í líkamanum og haldist þau nokkru eftir
að mælanleg mótefni finnast í blóði. Mod-
lin o. fél.59 gerðu yfirlit yfir upplýsingar
sem Center of Disease Control (CDC),
Atlanta hafði safnað saman. f því yfirliti
kemur fram, að 342 konur höfðu verið
bólusettar rétt fyrir eða eftir getnað. Af
þeim fengu 145 fóstureyðingu, 16 misstu
fóstur, ekki var vitað um afdrif 9, en 172
börn fæddust lifandi og reyndust eðlileg
hvað best var vitað þá. Ræktaðist rauðu
hunda veiran úr fósturvef 9 kvenna af
þessum 145, þar af úr auga tveggja fóstra
og nýra eins. Voru þessar konur bólusett-
ar með HPV-77 DE5 og Cendehill og er
full ástæða til að ætla að RA 27/3 hegði
sér á sama hátt. Ein þessara 9 kvenna hafði
verið bólusett 7 vikum fyrir getnað. Bæði
Modlin og Vaheri benda á, að oft sé með-
ferð sýna ábótavant. Sé veira í litlu magni
fáist hún e. t. v. ekki fram við ræktun.
Geti því jákvæð sýni verið fleiri en tölur
gefi' til kynna nú. Fleet o. fél.27 ræktuðu
veiru úr auga fósturs þeirrar einu konu
af 19 bólusettum sem vitað var að var
mótefnalaus fyrir bólusetningu. Við smá-
sjárskoðun hins auga fóstursins fundust
breytingar í linsu sem samrýmdist skemmd-
um af völdum rauðu hunda veiru. Af þeim
19 konum fengu 8 fóstureyðingu, ein missti
fóstur en hinar fæddu lifandi börn og
báru þau ekki merki fóstursýkingar. Lar-
son o. fél.51 og Ebbin o. fél.18 fundu rauðu
hunda veiru í fylgju og decidua og E'bbin
o. fél.18 einangruðu síðan rauðu hunda
veiru úr beinmerg fósturs17. Ekki hefur
enn fæðst barn sýkt á fósturstigi sem af-
leiðing bólusetningar, a. m. k. ekki svo
vitað sé. Þessar framangreindu rannsókn-
ir sýna að bóluefnisveiran fer yfir fylgju
í fóstur, þó svo að vegna minnkaðrar virkni
(virulence) hinnar veikluðu veiru geti
hætta á fósturskemmdum verið minni en
eftir eðlilega sýkingu. Þegar rætt er um
að ekkert barn hafi fæðst með einkenni
fóstursýkingar sem afleiðingu bólusetning-
ar ber bæði að taka tillit til þess hversu
há tíðni fóstureyðinga er hjá þessum kon-
um og hve margar hafa mótefni fyrir bólu-
setningu. í Bandaríkjunum hefur verið
mælt með, að konur á barneignaskeiði séu
aðeins bólusettar eftir að staðfest hafi ver-
ið með HI- mótefnamælingu að þær séu
mótefnalausar, þær séu ekki ófrískar við
bólusetningu og noti einhverjar getnaðar-
varnir næstu 3 mánuði. í rannsókn Will88
kom í ljós að aðeins var vitað um mótefni
11% kvennanna, þ. e. 11% kvennanna
mældust örugglega neikvæðar. Hjá 86%
höfðu ekki verið mæld mótefni fyrir bólu-
setningu. Tölur um ónæmi kvenna í Banda-
ríkjunum á þessum aldri sýna að 85% hafa
mótefni, við Hl-mótefnamælingu. Meiri
hluti fóstureyðinga vegna rauðu hunda
bólusetningar gæti því hafa verið óþarfi,
þar eð margar konurnar hafa haft eðlilegt
ónæmi fyrir bólusetninguna. Verða þessar
óþarfa fóstureyðingar því miður að mestu
leyti að skrifast á reikning heilbrigðis-
stétta, ef ekki hreinlega læknastéttar. Heil-
brigðisstéttir ættu a. m. k. að ábyrgjast
mótefnamælingu á konu á þessum aldri
áður en hún er bólusett. Rannsókn Ebb-
in18 sýndi auk þess að 83% þessara kvenna
notuðu ekki getnaðarvarnir í sambandi
við bólusetninguna af einhverjum ástæð-
um þrátt fyrir ráðleggingar. Er full ástæða
til að vekja athygli á þessum atriðum þeg-
ar bólusetning er hafin á íslandi.
B. Hvaða fólk á að bólusetja?
Tvær mismunandi stefnur eru uppi
varðandi hvaða aldurshópa eigi að bólu-
setja. Hefur margt verið um það ritað og
ekki allir á eitt sáttir718 44 45 49 57 58í