Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 4
Sextán ára piltur, nýútskrifaður úr Hagaskóla og einn þriggja sem réð- ust að tveimur vegfarendum í Garða- stræti á gamlárskvöld, mun hafa veist að öðrum pilti í skólanum síð- astliðið vor, sakað hann um samkyn- hneigð og að lokum ráðist á hann með hrikalegum afleiðingum. Sam- kvæmt heimildum fékk fórnarlamb- ið alvarlega áverka í andlit auk þess sem tennur brotnuðu. Vildu vernda ofbeldismanninn Ástæðan fyrir því að pilturinn var ekki kærður mun hafa verið sú að foreldrar þess sem fyrir árásinni varð vildu ekki eyðileggja framtíð piltsins með alvarlegri líkamsárásarkæru. „Ef málin eru það alvarleg get- ur lögreglan að sjálfsögðu farið með þau áfram,“ segir Ásgeir en bendir á að málið hafi aldrei komið inn á borð til lögreglu. Þar sem það kom ekki til kasta lögreglunnar var ekki unnt að senda það áfram til barnaverndaryf- irvalda. Ásgeir segir það tilfinningu sína að ofbeldi fari harðnandi hjá krökk- um á grunnskólaaldri. Hann bend- ir jafnframt á að það sé alvarlegt að unglingar komist upp með svona hegðun þó svo að ekki sé endilega kært til lögreglu. Veigra sér við að kæra „Það er alltof algengt að fólk veigri sér við að kæra svona árásir,“ segir Einar Magnússon skólastjóri Hagaskóla. Hann bendir einn- ig á að í tengslum við einelti hafi alvarleg til- felli komið upp sem for- eldrar vildu ekki kæra. Hann áréttar þó að mik- ið hafi unnist í baráttu við einelti á undan- förnum árum. Bæði fórn- arlömbin úr árásinni í Garðastræti eru útskrif- uð af spít- ala. Sá sem betur slapp var útskrif- aður í fyrstu viku ársins en sá sem höfuðkúpubrotnaði nokkru síðar. Piltarnir játuðu á sig árásina og verður mál- ið sent til saksóknara þar sem tekin verð- ur ákvörðun um hvort ákært verður í málinu eða ekki. Réttað yrði yfir þeim sem fullorðn- um mönnum þrátt fyr- ir að enginn þeirra hafi náð lögræðisaldri. Árás- armennirnir þrír eru frjálsir ferða sinna. Yngsti árásarmaðurinn í Garðastræti á gamlárskvöld hefur áður orðið uppvís að alvar- legri líkamsárás en var aldrei kærður. Hverfislögreglumaðurinn Ásgeir Guðmunds- son segir tilfinningu sína að ofbeldi á meðal ungs fólks fari harðnandi. Sagði skólabróður homma og misþyrmdi föstudagur 12. janúar 2007 Fréttir DV Stórsöngvarinn Jón Jósep Snæ- björnsson, betur þekktur sem Jónsi í Í svörtum fötum, var á meðal þeirra 900 sem þreyttu flugfreyju- og flug- þjónapróf Icelandair á dögunum. „Já, ég gerði það, en vil annars lítið tjá mig um það,“ segir Jónsi um þátt- töku sína í inntökuprófinu. Þar var Icelandair að leita að starfsmönnum fyrir næsta sumar. Icelandair hefur haft þennan hátt á í mörg ár við að ráða nýjar flugfreyjur og flugþjóna og hafa allt að eitt þúsund sótt um. Flugfreyjustarfið hefur alltaf verið sveipað ákveðnum ævintýra- ljóma og dreymir marga um að fá að starfa sem flugfreyja eða flugþjónn. Það er ljóst að laga mætti kynjahlut- fallið í þessu starfi því aðeins um 8 prósent flugþjónustufólks eru karl- menn. Hjá Icelandair starfa um 470 flugfreyjur og -þjónar í föstu starfi en um 530 með sumarstarfsmönn- um. Kröfurnar sem Icelandair ger- ir til umsækjenda eru stúdentspróf eða sambærileg menntun og góð tungumálakunnátta. Líklegt þyk- ir að fyrirtæki eins og Icelandair stökkvi á tæki- færi til að ráða starfsmann eins og Jónsa sem flugþjón. Jónsi þykir stórskemmtilegur og fjallmyndarlegur og á eflaust eftir að bræða hjörtu margra kvenna. Svo er aldrei að vita nema hann taki lagið á leiðinni með landsmenn til sólar- landa í sumar. Stórsöngvarinn Jónsi í Í svörtum fötum sótti um starf sem flugþjónn: Jónsa langar að verða flugþjónn Fullir og próflausir Arna Sigríður Albertsdóttir, sextán ára stúlka frá Ísafirði, slasaðist mikið á skíðaæfingu í Noregi 30. desember síðastlið- inn með þeim af- leiðing- um að hún lamaðist frá brjóst- kassa og niður. Vinir Örnu eru búnir að opna söfnunarreikn- ing henni til stuðnings en hún er á Grensásdeild Landspítal- ans í endurhæfingu. Þeir sem vilja styrkja Örnu og fjölskyldu hennar geta lagt inn á reikning- inn 0556-14-603129, kt. 080690- 3129. Safnað fyrir Örnu Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í fyrrinótt. Sá fyrri, tvítugur piltur, var stöðvað- ur á Fífuhvammsvegi en sá síð- ari, hálffertugur karlmaður, var tekinn í miðborginni. Þá stöðv- aði lögreglan tvo aðra ökumenn sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Átján ára pilti, sem var stöðvaður í Hafnarfirði snemma í gærmorgun, var sömuleiðis gert að hætta akstri. Sá hefur aldrei öðlast ökuréttindi en pilt- urinn var á stolnum bíl. Sami aðili er jafnframt grunaður um bensínþjófnað. InnlendarFréttIr ritstjorn@dv.is Fréttir um mikla fjölgun innbrota í heimahús hafa gert það að verkum að æ fleiri borgarbúar setja upp öryggiskerfi á heimilum sín- um. Árni Guðmundsson, forstöðumaður gæslusviðs Securitas, segir að gríðarleg aukning hafi verið undan- farna mánuði á uppsetn- ingu öryggiskerfa í heima- hús. Þjófarnir velji frekar heimili sem ekki eru með merkimiða frá öryggisgæslu á hurðinni því þeir taki ekki þá áhættu að vera staðnir að verki. Innbrotafaraldur Sagður djöfull í mannsmynd Guðmundur Jónsson í Byrg- inu segir að börnin hans fái hót- anir í formi SMS-skilaboða þar sem þeim er sagt að faðir þeirra sé djöfullinn í mannsmynd. Seg- ir Guðmundur að hann varðveiti öll skilaboðin og láti lögfræð- ingi sínum þau í té til að geta höfðað mál á hendur þeim sem hrellir börnin hans með þessum hætti. Guðmundur segir að eftir að Kompásþátturinn var sýndur hafi fjölskylda hans verið undir miklu álagi og þakkar hann vin- um sínum fyrir að stappa í fjöl- skylduna stálinu. „Foreldar vildu ekki kæra málið á sínum tíma,“ segir Ásgeir Guð- mundsson, hverfislögreglumaður í vesturbæ Reykjavíkur, en unglingur varð fyrir miskunnarlausri árás pilts sem sakaði hann um samkynhneigð. Á gamlárskvöld urðu svo fleiri fórnarlömb á vegi árásarmannsins og tveggja félaga hans í Garðastræti. Þeir gengu í skrokk á tveimur mönnum með þeim afleiðingum að annar höfuðkúpubrotnaði. Lýst var eftir piltunum og í kjölfarið gáfu þeir sig fram. „Það er allt of algengt að fólk veigri sér við því að kæra svona árásir.“ Valur Grettisson blaðamaður skrifar: valur@dv.is ofbeldishrottar Lýst var eftir piltunum þremur eftir að þeir höfuðkúpubrutu mann í garðastræti. einar Magnússon skóla- stjóri Haga- skóla segir alvarlegt mál ef foreldrar veigra sér við að kæra alvarleg ofbeldis- verk. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.