Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 67
föstudagur 12. janúar 2007 67DV Helgarblað
RúnaR eR mesti RokkaRi Íslands
Enginn stenst samanburð við Rúnar
Júlíusson þegar leitað er eftir hver
sé mesti rokkari Íslands. Flestir sem
spurðir eru hika ekki og segja Rúnar
fremstan allra rokkara. Þrátt fyrir
að margir hafi reynt margt og gert
margt er engum blöðum um það að
fletta að Rúnar Júlíusson er sá sem
ber kórónuna, sprotann og bassann.
Bubbi Morthens, sem er afkasta-
mesti rokkari landsins, kemur næst-
ur á eftir Rúnari. DV leitaði til kunn-
áttufólks sem gaf álit sitt fúslega og
voru niðurstöður þeirra nokkuð
samhljóma.
DR. Gunni, tónlistaRMaðuR.snoRRi stuRluson, útvaRpsMaðuR. EGill HElGason, sJónvaRpsMaðuR.
Ásta RaGnHEiðuR, alþinGisMaðuR.
Egill Helgason um Bubba
„Mér finnst Bubbi vera holdgervingur
rokksins. stundum gerir hann slæma hluti
en rís alltaf upp aftur helmingi sterkari. Ég
vann með Bubba í Fiskiðjunni í vestmanna-
eyjum árið 1974. Ég var lítill strákur með
hor í nös, ekki byrjaður að drekka eða neitt,
en Bubbi er nokkrum árum eldri en ég og
hann var alveg rosalegur töffari. Ég hlustaði
á hann segja slagsmálasögur af sjálfum sér.
Mér fannst hann áhugaverður en pínulítið
þreytandi. Ég talaði við hann um þessi ár í
vestmannaeyjum fyrir nokkru og ég mundi
allt en minnið hjá honum var gloppóttara. Ég
bjó svo til sögu um Bubba og hún er svona:
Bubbi var skotinn í stúlku þegar við vorum
í Eyjum. stúlkan var óhemjufögur og hún
hét Guðfinna. Bubbi játaði henni ást sína og
sagðist hafa hent sér fram af Heimakletti til
að sanna ást sína.
En eins og ég segi, þá veit ég ekki hvort þessi
saga er sönn en hún er skemmtileg. þetta
segir margt um hve mikill rokkari Bubbi er.“
anDRÉs MaGnússon, BlaðaMaðuR.
RaGGa Gísla
- „Hún hefur átt fjölbreyttan feril og
má alveg segja að hún sé rokkari.“
MaGni ÁsGEiRsson
- „Hann tók þátt í þessum þætti og
hagaði sér eins og rokkstjarna.“
BuBBi MoRtHEns
- „Bubbi er bara trúbador
sem keypti sér leðurjakka.“
- „Bubbi er stofnun og sann-
ur rokkari.“
- „Hann skilur eftir sig marg-
ar blaðsíður í rokksögu
Íslands.“
- „Mesta „rock’n’roll excess“
sögunnar var þegar hann
fór út til Hollywood, út úr
heiminum, og ætlaði að
fara að leika þrumuguðinn
Þór.“
- „Hann er maðurinn sem
breytti rokkinu á Íslandi.“