Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 15
DV Fréttir föstudagur 12. janúar 2007 15
LögregLa braut stjórnarskrá
og mannréttindasáttmáLann Kristinn Bjarnason hæstaréttarlögmaður segir lögreglurannsókn á Gunnari Erni Kristjánssyni vera skólabókardæmi um hvernig hlutirnir geti farið á hliðina. Hæstiréttur gagnrýndi aðferðir lögreglu og sérfræðinga harðlega og vísaði málinu frá.
sjálfur á umfangsmiklar falsanir Lárus-
ar. „Hvers vegna hefði hann átt að vera að
stunda þessar falsanir ef hann gat treyst á
að ég mundi aldrei fara yfir gögnin?“ spyr
Gunnar Örn.
Lögreglunni hótað
Gunnar Örn og Kristinn Bjarnason hvika
hvergi frá þeirri vissu sinni að lögreglan hafi
gefið sér sök Gunnars áður en rannsókn
málsins hófst. Þeir benda á að Árni Tómas-
son endurskoðandi hafi hvatt lögreglu til
þess að reka mál á hendur Gunnari í minn-
isblaði sem Árni ritaði vegna málsins þann
26. september 2003. „Ég tel rétt að ekki verði
hjá því komist að láta reyna á ábyrgð endur-
skoðanda í þessu tilviki. Ef ríkislögreglustjóri
gerði það ekki mætti áfellast embættið fyrir
að sinna ekki lögboðnum skyldum sínum,“
segir Árni Tómasson á einum stað.
Kristinn telur að hér sé um að ræða dul-
búna hótun um alvarlegar afleiðingar fyr-
ir ríkislögreglustjóraembættið verði Gunn-
ar Örn ekki ákærður. Árna megi þegar hafa
verið ljóst að málið hafi ekki verið rannsak-
að nema að litlum hluta. „Hann virðist að-
eins hafa haft áhyggjur af því hvort saksókn á
Gunnar næði fram að ganga,“ segir Kristinn.
Árni viðurkenndi fyrir dómi að hafa hvatt til
þess að Gunnar Örn yrði ákærður.
Þeir benda á að Gunnar Örn hafi setið sína
fyrstu skýrslutöku hjá lögreglunni þann 24.
september 2003, aðeins tveimur dög-
um fyrr. „Það er ljóst að þarna
er málið á frumstigi og vinnuskjöl Gunnars
höfðu ekkert verið skoðuð,“ heldur Kristinn
áfram. „Í 67. grein laga um meðferð opinberra
mála segir að „markmið rannsóknar sé að afla
allra nauðsynlegra gagna til þess að ákæranda
sé fært að ákveða að henni lokinni hvort sækja
skuli mann til saka, svo og að afla gagna til
undirbúnings málsmeðferðar.“ Kristinn telur
það borðliggjandi að þessi skilyrði hafi hvergi
nærri verið uppfyllt þegar Árni hvetur lögreglu
til málareksturs. Í dómi Hæstaréttar frá því 12.
maí 2005 sagði enda að „mjög hefði skort upp
á að rannsókn lögreglu hafi náð því markmiði
sem mælt er fyrir um í 67. grein laga um með-
ferð opinberra mála.“
Falsanir framkvæmdastjórans
Jón Þorbjörn Hilmarsson endurskoð-
andi vitnaði fyrir héraðsdómi og kvað kjarna
málsins vera falsanir Lárusar Halldórssonar,
framkvæmdastjóra sjóðsins. Í vitnaleiðslum
kvað Jón Þorbjörn það vera ljóst að blekk-
ingar þær sem Lárus hafði þegar gengist
við hefðu fyrst og fremst falist í því að Lárus
hafi sett upp tvöfalt bókhald. Í þessu felst að
lögreglan og sérfræðingar hennar höfðu til
rannsóknar eitt bókhald þar sem sjá mátti að
rekstur sjóðsins var í ólagi. Endurskoðand-
anum Gunnari Erni var síðan rétt
annað bókhald þar
sem gögn
höfðu verið markvisst fölsuð í þeim tilgangi
að vekja ekki grunsemdir. Þetta styrkir Gunn-
ar Örn og Kristin, verjanda hans, í þeirri trú
að lögreglan hafi haft fyrirfram mótaða af-
stöðu um að Gunnar væri sekur. „Sérfróðu
kunnáttumennirnir voru að vinna með ófull-
komna útgáfu af bókhaldi Tryggingasjóðs
lækna og svo virðist sem þeir hafi nánast tal-
ið það aukaatriði að inna Gunnar eftir hans
hlið á málinu,“ segir Kristinn.
Í lögregluskýrslum kemur fram að Gunn-
ar Örn telji það uppgjör sem lögregla vann
ekki vera rétt og sagðist hafa undir höndum
gögn sem sýndu allt aðrar niðurstöður úr
bókhaldi. „Þrátt fyrir ítrekaðar óskir ákærða
lét lögregla undir höfuð leggjast að kanna
þetta frekar,“ segir um þetta í dómi Hæsta-
réttar. Rétturinn taldi ófært að leggja mat á
störf Gunnars miðað við þennan málatilbún-
að. „Vegna alls þessa verður ekki hjá því kom-
ist að vísa málinu af sjálfsdáðum frá dómi,“
var niðurstaða réttarins.
„Sumt í þessu er kannski skólabókardæmi
um það hvernig hlutirnir geta farið á hliðina
í svona rannsókn. Það er náttúrulega mikil-
vægast í svona rannsókn að menn haldi alltaf
hlutlægni og gefi sér ekkert fyrirfram, hvorki
um sekt né sýknu,“ segir Kristinn Bjarnason.
Þriggja ára
Þrautaganga
30. apríL 2002:
Lárus Halldórsson skrifar beiðni um rannsókn á
störfum sínum fyrir tryggingasjóð lækna. Í beiðn-
inni felst játning á fjárdrætti, skjalafalsi og bók-
haldsbrotum.
5. FEBrúar 2003:
Lárus Halldórsson gefur skýrslu hjá lögreglu.
SEptEmBEr 2003:
ríkislögreglustjóri leitar aðstoðar Árna tómas-
sonar, löggilts endurskoðanda, við undirbúning
skýrslutöku af gunnari Erni Kristjánssyni.
24. SEptEmBEr 2003:
fyrsta skýrslan er tekin af gunnari Erni Kristjáns-
syni.
26. SEptEmBEr 2003:
Árni tómasson, sérfróður kunnáttumaður, segir í
minnisblaði til ríkislögreglustjóra að margt bendi
til þess að gunnar örn hafi ekki fylgt góðum end-
urskoðunarvenjum í störfum sínum fyrir trygg-
ingasjóð lækna. Í sama minnisblaði segist Árni
telja að ekki verði hjá því komist að láta reyna á
ábyrgð endurskoðanda í þessu máli. Ef það verði
ekki gert megi áfellast ríkislögreglustjóraembætt-
ið fyrir að sinna ekki lögboðnum skyldum sínum.
27. nóvEmBEr 2003:
skýrsla tekin af gunnari Erni.
2. marS 2004:
skýrsla tekin af gunnari Erni Kristjánssyni. saka-
refni eru brot á reglum um góðar endurskoðun-
arvenjum.
16. apríL 2004:
ríkislögreglustjóri höfðar mál gegn gunnari Erni
Kristjánssyni með ákæru.
12. júLí 2004:
Héraðsdómur sakfellir Lárus Halldórsson fyrir brot
sín. Lárus hlýtur tveggja og hálfs árs fangelsisdóm,
er sviptur löggildingu sem endurskoðandi og
dæmdur til að greiða tryggingasjóði lækna 47,5
milljónir króna ásamt vöxtum og kostnaði.
30. nóvEmBEr 2004:
Héraðsdómur reykjavíkur sýknar gunnar örn
Kristjánsson með þeim orðum að verknaðarlýsing
í ákæru sé óglögg.
12. maí 2005:
Hæstiréttur Íslands vísar málinu gegn gunnari
Erni frá dómi með ítarlegri gagnrýni á alla máls-
meðferðina.
31. maí 2005:
ríkissaksóknari gefur efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra fyrirmæli um að hefja rannsókn á máli
gunnars arnar að nýju.
OKtóBEr 2005:
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra lýsir yfir að
rannsókn verði hafin á ný.
9. nóvEmBEr 2005:
Héraðsdómi reykjavíkur er send beiðni um að
tveir dómkvaddir matsmenn, endurskoðendur,
sjái um hina nýju rannsókn.
20. júní 2006:
tveir löggiltir endurskoðendur eru skipaðir mats-
menn.
26. SEptEmBEr 2006:
Kristinn Bjarnason, verjandi gunnars arnar, geng-
ur á fund efnahagsbrotadeildar. Á fundinum kem-
ur fram að annar matsmannanna hafi beðist und-
an matsstörfum og tilkynnt héraðsdómara um
það. Héraðsdómari kallaði í kjölfarið til fyrirtöku
í málinu. Enginn fulltrúi frá efnahagsbrotadeild
mætti til fyrirtökunnar.
20. nóvEmBEr 2006:
ríkissaksóknari gefur ríkislögreglustjóra fyrirmæli
um að fella niður rannsóknina þar sem meðferð
málsins brjóti gegn 70. grein stjórnarskrár Íslands
og 6. grein mannréttindasáttmála Evrópu.
5. dESEmBEr 2006:
gunnari Erni Kristjánssyni er tilkynnt að ríkislög-
reglustjóri hafi fellt niður mál á hendur honum.
Þar með lýkur rúmlega þriggja ára málaferlum.
Gunnar Örn Kristjánsson og jón Steinar Gunnlaugsson í héraðsdómi
Málið fékk efnismeðferð fyrir héraðsdómi og var gunnar örn sýknaður af öllum
sökum. jón steinar var lögmaður gunnars á þessum tíma.
Frá Héraðsdómi reykjavíkur til Hæstaréttar
íslands gunnar örn var sýknaður í héraðsdómi.
Hæstiréttur kastaði málinu út.
Árni tómasson segir það
aldrei hafa verið meininguna
að koma gunnari Erni á bak
við lás og slá. Það hafi
einungis þótt eðlilegt að
kanna hversu nákvæmlega
hann stóð að endurskoðun
tryggingasjóðs lækna.
Viðtal við Gunnar Örn
Kristjánsson á næstu opnu