Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 80
Stjörnuband
í uppSiglingu
„Þetta gæti orðið mjög skemmti-
legt, en tæknilega séð erum við enn-
þá bara tveir. Ætlunin er að setja á
laggirnar Motion Boys „live“ band og
æfa þetta dót upp,“ segir Birgir Ísleif-
ur Gunnarsson söngvari hljómsveit-
arinnar Motion Boys. Um þessar
mundir eru nýir meðlimir að bætast
í raðir bandsins og eru þeir ekki af
verri endanum.
„Þetta eru Viddi úr Trabant á
bassa, Gísli Galdur verður á synth-
um, Bjössi trommuleikari Mínuss
verður á settinu og svo Tobbi nokk-
ur sem var í Jeff Who á hljómborði og
í bakröddum,“ segir Birgir rogginn.
Motion Boys gaf út sitt fyrsta lag síð-
asta sumar, Waiting to Happen, og
var því hvarvetna tekið vel. Þá mönn-
uðu hljómsveitina þeir Birgir Ísleif-
ur og Árni+1, sem enn standa í for-
grunni. „Við eigum enn eftir að æfa
almennilega saman, svo það er erf-
itt að fullyrða um framhaldið,“
segir Birgir ennfremur um
stjörnubandið.
Pottþéttur
„hittari“ á
leiðinni
Frá því að lagið
Waiting to Happen
kom út hefur lít-
ið heyrst í Motion
Boys, en með-
limirnir hafa
verið
dugleg-
ir við
upptök-
ur þess í
stað.
Nýlega
kláruðu
þeir nýtt
lag, Hold
Me Clos-
er to Your
Heart, og
er Birg-
ir hæst-
ánægður með útkomuna. „Sko ef
þetta lag verður ekki hittari, þá veit ég
ekki hvað hittari er. Við erum í raun
hálfhræddir við það, óttumst hrein-
lega að afleiðingar lagsins verði okk-
ur um megn,“
segir Birgir, en
lagið er vænt-
anlegt í spil-
un á næstu
vikum. Af
nýjum með-
limum er það
aðeins Viðar
Hákon, Viddi
úr Trabant,
sem spil-
ar en í kom-
andi lögum
má búast við allri hersingunni.
Tónlist byggð á
endurminningum úr æsku
Það er erfitt að skilgreina tónlist
Motion Boys. Einhvers konar hress
raftónlist með áhrifum frá níunda
áratugnum, en Birgir segir sjálfur að
honum sé illa við að skilgreina tón-
listina, enda gæti það haft takmark-
andi áhrif.
„Þegar ég og Árni fórum út í þetta
verkefni vorum við staðráðnir í að gera
tónlist sem væri byggð á minningum
okkar um tónlist þegar við vorum að
alast upp,“ segir Birgir og ítrekar að þeir
hafi ekki einblínt á að ná einhverjum
ákveðnum hljóm. „Okkur langaði bara
að gera melódískt popp sem fjallaði
um ástina.“ Á árinu er væntanleg plata
frá hljómsveitinni og verður gaman að
fylgjast með því hvort að þetta nýmót-
aða stjörnuband vinni stórvirki, eins
og útlit er fyrir. dori@dv.is
föstudagur 12. janúar 200780 Helgarblað DV
Plötufyrirtækið Jive sem Britn-
ey Spears er á mála hjá segir ekkert
til í þeim sögusögnum að Britney
verði sparkað. Britney hefur sjald-
an eða aldrei verið jafnmikið á síð-
um slúðurblaðanna og undanfarna
mánuði. Því miður hennar vegna
hefur umfjöllunin aðallega verið
neikvæð og stúlkan verið dugleg
við láta mynda sig með bókstaflega
allt niður um sig.
Þær sögur hafa gengið fjöllum
hærra vestanhafs að útgáfurisinn
Jive hafi ætlað að sparka Britn-
ey vegna óánægju með nýja efn-
ið frá henni og stanslauss gjálífis.
Talsmaður fyrirtækisins segir hins
vegar ekkert til í þessum orðrómi
og að Britney sé með örugga stöðu
innan fyrirtækisins.
Þetta eru því fyrstu jákvæðu
fréttirnar fyrir Britney greyið í lang-
an tíma þar sem hefur verið hamr-
að á henni fyrir bæði gjálífi og að
vera slæm móðir. Söngkonan setti
yfirlýsingu á vefsíðu sína ekki alls
fyrir löngu
þar sem
hún lofaði
aðdáend-
um sínum
að taka sig
á og snúa tví-
efld til baka eftir
þessa erfiðu tíma.
Plötufyrirtækið Jive segir ekkert til í þeim sögusögnum að poppprinsessa
n
Britney Spears verði leyst undan samningi:
britney ekki Sparkað
af útgefendum
Hljómsveitin Motion Boys komst í síðustu viku á lista DV yfir þær hljómsveitir sem vert
er að taka eftir á árinu. Nú hefur bandið gerst mun áhugaverðara, en í hópinn hafa bæst
nýir meðlimir, meðal annarra Bjössi úr Mínus og Viddi úr Trabant. Í vændum er svo
nýtt lag frá sveitinni og segir Birgir Ísleifur Gunnarsson söngvari sveitarinnar að þarna
sé á ferðinni „sjúr hittari.“
Valtýr byrjar á
X-inu í dag
Eins og glöggir hafa tekið eftir er
útvarpsstöðin XFM ekki lengur í
loftinu. Margir sportistar hafa
eflaust saknað þáttarins Mín
skoðun sem var í umsjón
íþróttafréttamannsins Valtýs
Björns. Það er alveg óþarfi að
örvænta því Valtýr hefur fært sig
yfir á X-ið 977 þar sem hann mun
viðhalda gömlum venjum. Valtýr
hefur störf á X-inu í dag
og segir hann sjálfur að
nýi þátturinn muni
líkjast Minni skoðun að
mörgu leyti. Valtýr
verður í loftinu á
milli klukkan 10 og
12 í dag.
Þyrnirósar-
sVefn fM 957
Svo virðist vera að
þeir sem sjá um
tilnefningar til
hlustendaverð-
launa útvarps-
stöðvarinnar
FM 957 hafi sofið
af sér árið 2006
eins og það leggur sig.
Flestir þeirra listamanna sem
koma við sögu eru tilnefndir fyrir
efni sem gefið var út á árinu
2005. Til dæmis komu fjórar af
þeim fimm plötum sem tilnefndar
eru til plötu ársins út árið 2005.
Um er að ræða plöturnar Undir
þínum áhrifum með Sálinni, My
Delusions með Ampop, Emotion-
al með Trabant og Death Before
Disco með Jeff Who? Fjöldi
annarra tilnefninga eru fyrir efni
frá árinu 2005.
ítölsk og
íslensk
raftónlist
Haldnir verða
heljarinnar
raftónlistartón-
leikar á Stúdenta-
kjallaranum í
kvöld, föstudag-
inn 12. janúar.
Fram koma Evil
Madness,
Fabrizio Modon-
ese Palumbo og
Paul Beauchamp. Fabrizio er frá
Ítalíu og hefur unnið með
tónlistarmönnum á borð við
Jarboe og Xiu Xiu. Hann hefur
getið sér gott orð fyrir tónlist sína
sem og Paul Beauchamp, sem
meðal annars hefur unnið með
Steve Mackey. Evil Madness er
hálfgerð súpergrúppa en í henni
eru Jóhann Jóhannson, Curver, Dj
Musician og Sigtryggur og Helgi
úr Stilluppsteypu. Gott fjör á
Stúdentakjallaranum í kvöld og
verður húsið opnað kl. 10.
Ekki rekin Britney
verður ekki leyst
undan samningi hjá
jive þrátt fyrir
neikvæða umfjöllun.
Alltof mikið djamm
Britney greyið hefur
oft litið betur út.
Gísli Galdur Verður á
synthum og syngur jafnvel
bakraddir.
Björn Stefánsson
trommari Mínuss Ætlar
að standa pliktina á
trommusettinu. Björn var
valinn fjórði besti
trommuleikari í heimi af
lesendum tímaritsins
Metal Hammer í fyrra.
Viðar H. Gíslason
úr Trabant
Viddinn dettur í
gang með látum
og plokkar
bassann af
alkunnri snilld.
Hljómsveitin Motion Boys Birgir
Ísleifur gunnarsson og Árni rúnar,
betur þekktur sem Árni+1. Verulegur
liðsstyrkur hefur bæst hljómsveitinni.