Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 76
ómar örn segir:
&
Microsoft-leikjatölv-
an Xbox 360 hefur
yfirhöndina í þriðju
kynslóðar tölvustríð-
inu. Xbox 360 seldist
í um tveimur
milljónum eintaka í
Norður-Ameríku frá
byrjun nóvember til
enda desember.
Nintendo Wii var
ekki langt undan og
seldist í 1,8 milljónum
eintaka á sama tímabili
en PS3 seldist aðeins í
750.000 eintökum yfir
jólatörnina. Það er
aðallega rakið til
framleiðsluvand-
ræða Sony, sem
virðist þó hafa
leyst þann
vanda í dag.
XboX vann sölustríðið um jólin
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föStudAgur 12. jANúAr 200776 Helgarblað DV
Alveg frá því að fyrsti spilakassinn leit dagsins ljós hefur það verið móðins að gera
tölvuleiki eftir kvikmyndum og stundum öfugt. Nú þegar sjónvarpsefni er orðið jafn-
vandað og raun ber vitni spretta upp tölvuleikir í kringum það líka. Nú er kominn út
tölvuleikur sem byggir á sjónvarpsþáttunum um Soprano-glæpafjölskylduna.
Þriðji Def jam
væntanlegur
Rappslagsmálaleikirnir Def
Jam hafa verið gríðarlega
vinsælir á PS2 og er sá þriðji
væntanlegur á Xbox 360 og
PS3. Sá þriðji er eins og
forverar hans slagsmálaleikur
þar sem helstu rappstjörnur
Bandaríkjanna skiptast á
líkamsmeiðingum. Miklar
bætur hafa verið gerðar á
slagsmálakerfi leiksins en það
er sami starfshópur hjá EA
sports sem sér um þróun þess
og gerði Fight Night-leikina.
Söguþráðurinn byggist upp á
því að reyna að koma á
laggirnar plötufyrirtæki og í
stað þess að semja um
peningaupphæðir eru málin
afgreidd með hnefahöggum.
Helsta nýjungin í leiknum er sú
að taktar og hljóð í lögunum
sem hljóma undir hafa áhrif á
umhverfið og slagsmálagetu
rapparanna. Þá vex þeim
ásmegin í slagsmálum þegar
þeirra eigin tónlist hljómar
undir. Ef spilendur hafa ekki
gaman af rapptónlist verður
hægt að setja inn eigin lög á
nokkuð einfaldan hátt.
milljón
eintök selD
Það eru að verða meira en tíu
ár frá því að bardagaleikurinn
Mortal Kombat var sá allra
vinsælasti á markaðnum.
Vinsældir hans fóru að dvína
eftir að tæknilegri og flottari
leikir á borð við Tekken og
Soul Calibur komu út. Þá voru
góð ráð dýr hjá Midway-
mönnum sem gefa út leikinn.
Fyrir þessi jól gáfu þeir út
nýjan leik, Mortal Kombat:
Armageddon, og hefur hann
náð að koma Mortal Kombat-
nafninu á sama stall og áður,
en yfir milljón eintök hafa selst
af leiknum. Leikurinn kom út á
Playstation 2 og Xbox og
stendur til að gefa hann út á
Nintendo Wii í apríl. Ekki
stendur til að gefa út fleiri
Mortal Kombat-leiki í nánustu
framtíð, en miðað við vinsæld-
ir Armageddon væri óvitlaust
að halda sögunni áfram.
Út er kominn tölvuleikur-inn Sopranos: Road to Respect en hann byggir á sjónvarpsþáttunum um
Soprano-fjölskylduna sem sýndir
hafa verið í ríkissjónvarpinu und-
anfarin ár. Leikurinn er alveg í anda
sjónvarpsþáttanna, þar sem allt
snýst um ofbeldi, virðingu, peninga
og lögmál mafíunnar. Leikmenn
fara í hlutverk Joeys LaRocca, ungs
smáglæpamanns sem virðist ekki
eiga framtíðina fyrir sér. En þeg-
ar Joey kemst að því að Tony Sopr-
ano er frændi hans fara hlutirnir
að ganga honum í hag. Á skömm-
um tíma breytist Joey úr ótínd-
um frakkaþjófi í virtan mafíósa. En
það er erfitt að vera nýi strákurinn
í klíkunni og því þurfa leikmenn að
inna af hendi ýmis verkefni til þess
að tryggja Joey nægilega virðingu.
Verkefnin eru eins mismunandi og
þau eru mörg, allt frá því að kála
bófum, hreinsa upp glæpavettvang,
skutla einhverjum á réttan stað eða
ræna einhvern – og meira til. Tak-
mark leiksins er að fá Joey innvígð-
an í mafíuna og til þess að það gangi
í gegn má ekkert klikka. Öll sam-
skipti í leiknum eru afar varhug-
arverð. Leikmenn geta rifið kjaft,
smjaðrað eða haldið ró sinni, en í
hvert einasta skipti sem einhver ríf-
ur kjaft við leikmanninn þarf hann
að vera tilbúinn til að slást. Allt
saman til þess að halda virðingunni
og heiðri hússins, en þeir sem hafa
fylgst með þáttunum ættu að vita
hvernig svona hlutir ganga fyrir sig.
Leikararnir ljá persónunum sem
þeir leika í þáttunum raddir sín-
ar en allt hefur verið lagt í sölurn-
ar til þess að halda í andrúmsloft-
ið úr þáttunum. Til dæmis er hægt
að heimsækja staði á borð við veit-
ingahúsið Nuovo Vesuvio, Satriale’s
og Bada Bing. Þeir sem höfðu gam-
PAuLiE SLAKuR Að VANDA Allar persónur þáttanna eru á sínum stað.
ToNy SoPRANo
james gandolfini talar
fyrir kappann, sem er í
essinu sínu í leiknum.
1. resident Evil 4 (PSP)
2. tomb raider Legend (PSP)
3. tekken: dark res... (PSP)
4. forbidden Siren 2 (PS2)
5. Kill Zone: Liberation (PSP)
Kíktu á þessa
DEF JAM: iCoN
Ludcris gefur Big Boi einn á hann
í væntanlegri útgáfu leiksins.
gakktu í
fjölskylDuna
an af Godfather-leiknum sem kom út
í fyrra ættu endilega að prófa þenn-
an. Hér gilda sömu lögmál og sömu
leikreglur, bara 20 árum seinna. Það
er engin lygi að Soprano-leikurinn
lítur ansi vel út. dori@dv.is
THE SoPRANoS: RoAD To RESPECT
Í leiknum þurfa menn að berjast fyrir virðingu.
Killzone: Liberation er öðruvísi
en sá Killzone sem gefinn var út á
Playstation 2. Búið er að breyta sjón-
arhorninu, sem er núna ofan frá en
ekki í fyrstu persónu, og svo eru mörg
smáatriði sem breyta gangi leiks-
ins til muna. Eins og í PS2-leiknum
stjórnar maður hetjunni Templar í
stríði gegn Hellghast-veldinu, sem
minnir mikið á nokkurs konar vél-
bætta nasista og er mjög töff. Stýring-
ar leiksins eru ekki flóknar, yfirleitt
er bara nóg að snúa í átt að óvinin-
um og þá rata skotin beint á trýnið
á honum. Verkefni leiksins virðast
í fyrstu margbreytileg, það þarf að
bjarga einhverjum offiserum, koma
fyrir sprengiefni eða skjóta einhverja
róbónasista. Þegar lengra er kom-
ið áttar maður sig á því að verkefn-
in eru ekkert eins margbreytileg og
þau virtust í upphafi. Flest eru mjög
keimlík og er það einn helsti galli
leiksins. Leikurinn býður þó upp á
aðstæður sem eru skemmtilegri en
gengur og gerist í svona leikjum. Oft
þarf maður að skipa aðra hermenn í
rétt hlutverk í nokkuð þungum árás-
um og getur það skipt sköpum að
þeir fari á réttan stað. Annars er þessi
leikur nett skrítinn. Hann er nokkuð
smár í sniðum en spilast á PSP og
þess vegna er hann góður. Ef þessi
leikur yrði gefinn út með sama sniði
á stærri tölvu væri hann algjört drasl.
dori@dv.is
Pínulítil stórorrusta
Skemmtilegur og spennandi leikur, sem býður upp á margt skemmti-
legt. Leikurinn er þó ekki neitt stórvirki og er þreytandi til lengdar.
PSP
Stríðsleikur
tölvuleikir
Killzone:
Liberation
HHHHH
KiLLzoNE: LiBERATioN
Óvinirnir minna á vélbætta nasista.
leikirtölvu