Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 20
Sjóður sem ætlað er að byggja upp
hjúkrunarheimili og aðstöðu fyrir
aldraða er nýttur af stjórnvöldum til
annars en hann var stofnaður til. Frá
1991 hafa peningar úr sjóðnum verið
teknir og notaðir til styrkja og rekst-
urs, langt frá upphaflegum markmið-
um. Áætlað er að samtals hafi með
einhverjum hætti verið teknir fimm
milljarðar króna úr sjóðnum, pening-
ar sem hefðu dugað til að byggja þau
hjúkrunarrými sem nú vantar og má
sjá afleiðingu þess á löngum biðlist-
um aldraðra eftir aðstöðu.
Sem dæmi um sérstaka notkun á
peningum Framkvæmdasjóðs aldr-
aðra samdi Jón Kristjánsson, þá heil-
brigðisráðherra, við háskólarektor
um að sjóðurinn borgaði kostnað af
lektorsstöðu við Háskóla Íslands. Enn
fremur hefur sjóðurinn fjármagnað
stöðu við rannsóknarsetur á Landa-
kotsspítala. „Menn skýla sér á bak
við að þetta séu allt saman þróun-
arverkefni,“ segir Margrét Margeirs-
dóttir, formaður Félags eldri borgara í
Reykjavík. Hún tók sæti í stjórn sjóðs-
ins í fyrra.
Þegar Ásta Ragnheiður Jóhannes-
dóttir þingmaður spurði Jón Kristj-
ánsson, þá heilbrigðisráðherra, um
fjárveitingar úr sjóðnum í nóvember
2005 kom á daginn að nærri helmingi
fjárins var ráðstafað í annað en upp-
byggingu. Nákvæmar upplýsingar
um notkun á fé úr sjóðnum hafa ekki
legið fyrir í ráðuneytinu.
Fimm milljarðar í
eitthvað annað
Fullyrt var á fundi Aðstandendafé-
lags aldraðra síðastliðið haust að ríkið
hefði tekið fimm milljarða úr sjóðn-
um til reksturs síðan árið 1991. Far-
ið var fram á að ríkið skilaði þessum
peningum aftur til upphaflegra nota.
Að því er hins vegar leitt líkum að ef
sjóðurinn hefði fengið að þjóna sínu
upprunalega hlutverki væru engir
biðlistar eftir plássum á hjúkrunar-
heimili fyrir aldraða. Dagur B. Egg-
ertsson kallaði þetta undanskot rík-
isstjórnarinnar úr sjóðnum, í maí í
fyrra. Þá steig Friðrik Sophusson, for-
stjóri Landsvirkjunar og fyrrverandi
fjármálaráðherra, fram fyrir skjöldu
og benti á að lögum um nýtingu
sjóðsins hefði verið breytt í stjórnar-
tíð Framsóknarflokks, Alþýðuflokks
og Alþýðubandalags.
Framkvæmdamátturinn
þverrandi
Á vef heilbrigðisráðuneytisins
föstudagur 12. janúar 200720 Fréttir DV
Eins og áður segir er Fram-
kvæmdasjóður aldraðra fjármagn-
aður með svokölluðum nefskatti.
Í því felst að allir skattgreiðend-
ur leggja sömu upphæð til sjóðs-
ins, óháð tekjum. Í þessu tilviki eru
þeir þó undanskildir sem eru yngri
en sextán ára og eldri en sjötíu ára,
ásamt þeim sem hafa árstekjur und-
ir skattleysismörkum.
Í fyrra voru teknar 6.075 krónur
til sjóðsins af hverjum skattgreið-
anda. Þetta færði sjóðnum rétt rúm-
an milljarð í tekjur. Upphæðin er
endurskoðuð árlega og ætti nokkurn
veginn að fylgja vísitöluhækkunum.
Hugmyndir hafa verið uppi um
að fjármagna rekstur Ríkisútvarpsins
með nefskatti samhliða því að breyta
því í opinbert hlutafélag. Frumvarp
þess efnis verður að öllum líkindum
tekið fyrir á Alþingi í vor.
Flatur skattur á alla sem vettlingi geta valdið:
Milljarður með nefskatti
Nefskattur er í grundvallaratriðum tekinn af öllum sem vettlingi geta valdið.
DV mynd Vilhelm
Sigtryggur JóhaNNSSoN
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
Margrét Margeirsdóttir situr nú fyrir
hönd Landssambands eldri borgara í
stjórn sjóðsins. Hún hyggst vinna að því
að málum verði aftur komið í fyrra horf.
tveir heilbrigðisráðherrar jón
Kristjánsson samdi við Pál skúlason rektor
um að sjóðurinn fjármagnaði lektors-
stöðu við HÍ. sjóðurinn heyrir í dag undir
ráðuneyti sivjar friðleifsdóttur.
helgi Már arthúrsson, upplýsingafulltrúi
heilbrigðisráðherra:
Snúum af þessari braut
„Ríkisstjórnin ákvað í samráði
við Landssamband eldri borgara í
júlí á síðasta ári að snúa af þessari
braut með Framkvæmdasjóð aldr-
aðra,“ segir Helgi Már Arthúrsson,
upplýsingafulltrúi í heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu. Þetta
samkomulag var byggt á tillögum
nefndar sem starfaði undir forystu
Ásmundar Stefánssonar ríkissátta-
semjara.
Í kjölfar samkomulagsins varð
frumvarp að lögum á Alþingi í vet-
ur. Í frumvarpinu er felld niður
heimild til þess að nota peninga
úr Framkvæmdasjóði aldraðra til
reksturs stofnanaþjónustu fyrir
aldraða og þeir notaðir í staðinn til
þess að byggja upp og auka þjón-
ustu. Þetta verður gert í þrepum. Á
þessu ári notar því ríkið helmingi
minna úr Framkvæmdasjóðnum
en lætur hann ekki í friði fyrr en 1.
janúar 2008.
milljarðar teknir
frá öldruðum5
Engir biðlistar væru eftir hjúkrunarrýmum fyr-
ir aldraða ef Framkvæmdasjóður aldraðra
væri nýttur til uppbyggingar, eins og upp-
haflega var ætlað. Ríkisstjórnir hafa
breytt reglum um sjóðinn og nýtt hann
í annað, meðal annars til að fjármagna
lektorsstöðu við Háskóla Íslands. Fimm
milljarðar króna úr sjóðnum hafa ver-
ið nýttir til annars en uppbyggingar.
Nákvæmar upplýsingar um styrkveit-
ingar úr sjóðnum eru ekki fyrirliggj-
andi í heilbrigðisráðuneytinu. Sjóð-
stjórn ræður engu fyrr en ríkið hefur
ráðstafað úr sjóðnum með fjárlögum.
helgi Már arthúrsson Bendir á að
snúa eigi þessari þróun við.
segir að sjóðnum skuli varið til bygg-
ingar þjónustumiðstöðva og stofn-
ana fyrir aldraða. Einnig er sjóðnum
ætlað að standa straum af kostnaði
við nauðsynlegar breytingar og end-
urbætur á húsnæði sem notað er til
þjónustu fyrir aldraða. Þetta er í sam-
ræmi við upphaflegan tilgang sjóðs-
ins og lög þar um. Ríkisstjórn Stein-
gríms Hermannssonar breytti lögum
um sjóðinn árið 1989, á þá leið að
sjóðinn mætti nýta til að styrkja
heimaþjónustu og í „önnur verkefni“,
eins og það er orðað. Þessar heimild-
ir voru enn rýmkaðar árið 1991. Síð-
an þá hefur sjóðurinn orðið æ minna
megnugur til framkvæmda. Á meðan
hafa biðlistar lengst.
Sjóðstjórnin til hliðar
Framkvæmdasjóður aldraðra er
fjármagnaður með nefskatti. Allir á
aldrinum sextán til sjötíu ára greiða í
sjóðinn, utan þeir sem hafa innan við
900 þúsund krónur í árstekjur. Skatt-
urinn nam 6.075 krónum í fyrra og er
endurskoðaður í hverjum fjárlögum.
Tekjur sjóðsins í fyrra námu einum
milljarði króna. 420 milljónir úr sjóðn-
um voru eyrnamerktar til viðhalds og
reksturs. Afgangurinn á að fara til upp-
haflega ætlaðra nota. Þessum pening-
um er ráðstafað áður en sjóðstjórnin
svo mikið sem kemur nálægt málinu.
Verðum að reyna allt
„Við afgreiðslu síðustu fjárlaga
fórum við fram á við alþingi að pen-
ingunum yrði skilað. stjórnarand-
staðan tók þetta upp við afgreiðslu
laganna. Það var ekkert mark tekið á
því,“ segir reynir Ingibjartsson, for-
maður aðstandendafélags aldraðra.
„Við viljum að peningunum verði
skilað og meðal annars gengið í með
skipulegu átaki að losna við þetta
fjölbýli þannig að fólk geti búið við
mannsæmandi aðstæður.“
reynir segir að ef þjónusta við
aldraða væri í eðlilegu horfi væri fé-
lagið sennilega að einbeita sér að
öðrum málum. Eins og staðan er í dag
verði þó ekki hjá því komist að reyna
allar aðferðir. „nú stöndum við bara
frammi fyrir því að það er mikill skort-
ur á hjúkrunarrýmum og ástandið er
ekki gott á þeim heimilum sem eru
til staðar. allt að þúsund manns búa
tveir, þrír eða fjórir í herbergi.“
Nákvæmar upplýsing-
ar um notkun á fé úr
sjóðnum hafa ekki leg-
ið fyrir í ráðuneytinu.
Nýbyggingar fyrir aldraða
upphaflega var framkvæmdasjóði
aldraðra ætlað að standa straum af
kostnaði við uppbyggingu á aðstöðu
fyrir aldraða. um helmingur sjóðsins er
nú nýttur í annað en ætlað var.