Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 50
föstudagur 12. janúar 200750 Heilsa & Menntun DV
GLEÐILEGT NÝTT ÁR
H
ön
n
u
n
:
S
ty
rm
ir
B
.
ORKUVERIÐ þakkar ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða
og óskar farsældar á nýju ári. Við byrjum nýja árið þar sem frá
var horfi ð og bjóðum upp á glæsileg tilboð.
Yoga Spinning Einkaþjálfun
Tilboð 1:
Árskort 35.880 kr.
eða 2.990 kr. á mánuði
Tilboð 2:
Nemakort.
1 önn 12.990 kr.
Tölvukunnátta gagnast öllum og gerir mögulegt að koma notendum í samskipti við annað fólk með einföldum og
góðum hætti og getur brotið niður félagslega einangrun. Eldra fólk sækir í ríkara mæli kennslu í notkun tölva,
„...það er óborganlegt að sjá svipinn á fólki þegar tölvuheimurinn lýkst upp fyrir því og gleðin er ósvikin...“
Ólafur Kristjánsson tölvukenn-ari, gjarnan kallaður Óli tölva í daglegu tali, hefur um nokk-
urra ára bil kennt eldra fólki á tölv-
ur. Hann segir að í mörgum tilfell-
um opnist gamla fólkinu nýr heimur
þar sem tölvan er, þó að sjálfsögðu sé
misjafnt hversu mikilli færni fólk nær
og sumir hafi jafnvel tilhneigingu til
að gefast upp.
Óli, sem hefur kennt hjá Tölvu-
skólanum Þekkingu og Viðskipta-
og tölvuskólanum, er þó aðallega að
kenna hjá fjarkennslu.is þar sem eru
um 460 nemendur skráðir í ýmsum
fögum.
Sjálfsvirðing eldri borgara
bágborin þegar kemur að
tölvum
„Stundum er ástæðan fyrir því að
fólk kemur í tölvukennslu sú að upp-
komin börn hafa skilið eftir gamlar
tölvur í foreldrahúsum og vilja endi-
lega að foreldrarnir tileinki sér tækn-
ina, en hafa ekki þolinmæði sjálf til
að kenna þeim,“ segir Óli.
„Fólk hefur svo verið að fá nám-
skeið í afmælisgjafir frá börnunum
en áhuginn er þá kannski ekki alveg
upp á tíu og sumir mæta illa, einfald-
lega af því þeir eru hræddir. Á nám-
skeiðum þar sem margir eru saman
eru oft einhverjir sem þurfa að fara
hægar en hinir og þeim líður yfir-
leitt illa og finnst þeir vera fyrir og til
ama. Sjálfsálitið á þessu sviði er ansi
lágt hjá mörgum. Svo fara námskeið-
in að snúast meira um félagsskapinn
en tölvuna og meðlætið með kaffinu
verður aðalatriði en ekki kennslan.
Það er reyndar líka mjög skemmti-
legt,“ segir Óli og hlær.
Einkatímar gefa bestan
árangur
Hann hefur líka verið með einka-
tíma og segir þá gefa miklu betri raun.
„Elsti maðurinn hjá mér í kennslu er
81 árs og ekki er langt síðan kom til
mín 71 árs unglingur á reiðhjóli sem
hefur brennandi áhuga á stafrænum
myndavélum. Það eru alltaf einhver
„unik“ í þessum bransa.“
Á tíu árum hefur tækninni fleygt
fram og Óli segir að fyrstu nám-
skeiðin hans hafi mest gengið út á
ritvinnslu, stýrikerfi og þess háttar
meðan núna sé áherslan á samskipt-
in, það er tölvupóst, MSN og Skype.
„Fólk sem er í námi erlendis
vill gjarnan hafa samskipti við for-
eldra sína gegnum netið, en þar eru
margir algjörir strandaglópar. Þá er
langbest að vera með fólk í einka-
tímum, það er þá ófeimið að spyrja
og tileinkar sér hlutina miklu fljót-
ar. Fólk sem er komið yfir sextugt og
er að koma að tölvum í fyrsta skipti
gleymir oft milli tíma, þannig að í
öðrum tíma þarf að byrja allt upp á
nýtt. Þetta á reyndar við um fólk nið-
ur í fimmtugt sem aldrei hefur lært
á tölvur. Það þarf líka oft ekki nema
eitt sumarfrí til að kunnáttan glatist.
Þess vegna á einkakennslan skilyrð-
islaust rétt á sér, en hún er því mið-
ur alltof dýr. Tölvukennsla ætti auð-
vitað að vera niðurgreidd fyrir gamla
fólkið. Einhvern tíma talaði ég við
formann Félags eldri borgara en það
kom ekkert út úr því sem er synd því
gamalt fólk er oft einmana og leiðist
og þá er netið nýr heimur sem styttir
því stundirnar. Það er óborganlegt að
sjá svipinn á fólki þegar tölvuheim-
urinn lýkst upp fyrir því og gleðin er
ósvikin.“
Ekki hika við að reyna – það
geta allir náð árangri
Aðspurður hvort hann viti um
einhverja eldri borgara sem blogga
segir Óli hlæjandi að það sé þá helst
Björn Bjarnason.
„Hann heldur úti mjög góðri
heimasíðu og mér finnst að stjórn-
málamenn eigi hiklaust að vera með
blogg, það er eins og opið bréf til
þjóðarinnar og gaman að lesa það.
Yngri þingmenn eru duglegir við
þetta en svo eru menn eins og Ein-
ar Oddur sem veit trúlega ekki hvað
tölva er,“ segir Óli og hlær dátt.
Sjálfur er hann ekki með heima-
síðu. „Það hefði enginn áhuga á að
lesa hana, ekki einu sinni mínir allra
nánustu,“ segir hann og skellir upp
úr um leið og hann vill hvetja alla þá
sem eru smeykir við tölvur til að taka
skrefið og gefast ekki upp fyrirfram.
„Þetta opnar óendanlega mögu-
leika fyrir eldra fólk og er ekkert
nema gefandi og skemmtilegt. Og
það sem er mikilvægast: Það geta all-
ir náð árangri.“
„Fólk sem er í námi erlendis vill gjarnan hafa
samskipti við foreldra sína gegnum netið, en
þar eru margir algjörir strandaglópar. Þá er
langbest að vera með fólk í einkatímum, það
er þá ófeimið að spyrja og tileinkar sér hlutina
miklu fljótar.“
Allir eldri borgarar
ættu að fá tölvukennslu
Heilsa&menntun
Eldra fólki opnast nýir heimar
þegar það lærir á netið og
það styttir því stundirnar í
skammdeginu.