Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 23
DV Helgarblað föstudagur 12. janúar 2007 23
Elskaði manngæsku hans og alúð
Að missa eitt foreldri er slys en að missa báða er kæru-
leysi, sagði Oscar Wilde eitt sinn. Saddam Hussein
var ekki að snúa þessu upp á tengdasyni því hann lét
myrða tvo þeirra í einum furðulegasta kaflanum í
skrautlegri sögu fjölskyldunnar sem í tæpan aldar-
fjórðung réði lögum og lofum í Írak.
honum úr haldi að beiðni konu sinn-
ar skömmu síðar og rak Uday í útlegð.
Þegar Uday sneri aftur átti hann eftir
að lenda í útistöðum við systkin sín
svo um munaði.
Tveimur tengdasonum færra
Tengdasynir Saddams, bræðurnir
Hussein og Saddam Kamel al-Majid,
voru frændur hans og kvæntir systr-
unum Raghad og Rana. Þeir höfðu
komist ágætlega áfram í ríki tengda-
föðurins. Þeir sáu sér þó ekki annað
fært en að flýja til Jórdaníu árið 1995
þegar Uday hótaði að láta fangelsa
Hussein eftir deilur um hvernig sam-
skipti Írakar ættu að eiga við vopnaeftirlits-
menn. Eftirlitsmennirnir reyndu þá að grafa
upp upplýsingar um gjöreyðingarvopnaáætl-
anir Íraka.
Bræðurnir flýðu til Jórdaníu með eigin-
konur sínar, dætur Saddams, og börn þeirra
– barnabörn forsætisráðherrans. Þar höfðust
þau við í hálft ár meðan Huss-
ein sagði erindrekum Vesturveld-
anna frá efnavopnaáætlunum Íraka
og hvernig hann hefði látið eyða öll-
um slíkum vopnum. Orð hans voru
hins vegar dregin í efa og bræðurnir
og eiginkonur þeirra ákváðu að snúa
aftur til Íraks eftir að þau töldu sig
hafa fengið vilyrði fyrir að flótti þeirra
yrði fyrirgefinn.
Endurkoma bræðranna var þó
skammvinn. Saddam skipaði dætrum
sínum strax að skilja við eiginmenn-
ina. Þremur dögum eftir að þau sneru
aftur voru bræðurnir fallnir í valinn,
látnir eftir mikinn skotbardaga þegar
ráðist var á heimili fjölskyldu þeirra.
Fjölskyldan berst innbyrðis
Deilum innan fjölskyldunnar lauk ekki með
þessu. Síðar sama ár, þetta var 1996, særðist
Uday alvarlega í fyrirsát sem honum var gerð
þar sem hann keyrði á ofsahraða eftir götum
Bagdad í sportbíl sínum. Sárin voru mikil og
hann jafnaði sig aldrei fyllilega af þeim.
Böndin bárust að Qusay, yngri bróður
Udays, og systrunum Raghad og Rana. Uday lét
hneppa systur sínar í stofufangelsi um skeið.
Bræðurnir Qusay og Uday voru ósáttir hvor
við annan. Uday þótti framhjá sér gengið sem
elsta bróður þegar faðir þeirra treysti Qusay
betur til starfa er kom að stjórn ríkisins. Á móti
kom að Qusay áleit Uday mikið vandamál fyrir
fjölskylduna, Uday væri hataðasti maður Íraks
og græfi því undan fjölskyldunni og völdum
hennar.
Til varnar föður sínum
Þrátt fyrir að Saddam hafi látið myrða eigin-
menn dætra sinna tveggja sneru þær ekki við
honum baki, þótt þær hafi lengi verið honum
reiðar.
„Ég elskaði fyrst og fremst manngæsku hans
og alúð,“ sagði Raghad í viðtali við blaðamann
The Times skömmu eftir að bandarískir her-
menn handsömuðu föður hennar árið 2003.
Hún tók þó fram að þannig hefði hann kom-
ið fram við fjölskyldu sína þótt hún hefði heyrt
sögur af grimmd hans líka. „Ég hef engan rétt
til að fella dóm en ég verð að segja að hann er
ekki fyrsti maðurinn til að starfa svona,“ sagði
hún og taldi ráðamenn í öðrum arabaríkjum
beita þegna sína meiri hörku en Saddam gerði
í Írak.
Raghad sagðist þó hafa verið reið föður sín-
um í mörg ár eftir morðið á eiginmanni henn-
ar. Hún hefði hins vegar ákveðið að bæla til-
finningar sínar þegar faðir hennar var í vanda.
Þá tók hún að sér að skipuleggja vörn Sadd-
ams.
Rana sagði mörgum árum eftir að eigin-
menn hennar og Raghad voru myrtir að hún
hefði fallið á sófa og ekki megnað að rísa á
fætur. „Ég var þar næstu sjö dagana, ófær um
að tala, matast eða drekka. Allt sem ég gat
gert var að anda og gráta.“ Hún sagði að þarna
hefði hún skilið við fyrra líf sitt þar sem all-
ar þrár hennar og skipanir hafi verið skipan-
ir Saddams.
Morðóður einræðisherra
saddam pyntaði og myrti þá sem svo mikið sem
hvísluðu andmæli gegn skoðunum hans. Þar skipti
engu hvort um var að ræða börn eða fullorðna.
Hussein Kamel
Hassan al-Majid
Myrtur af
tengdaföður sínum
saddam Hussein
árið 1996.