Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 79

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 79
DV Helgarblað föstudagur 12. janúar 2007 79 Lífið eftir vinnu Föstudagur Laugardagur H&K á THorvaldsen nei það eru ekki Heckler og Koch, heldur Hlynur og Kobbi sem verða með hann pinnstífan á Thorvaldsen í kvöld. eilíft partí, eilíft fjör, þessir menn eru búnir að vinna heimavinnuna sína og óttast ekkert nema hugsanlega lögregluna. ParTí á THorvaldsen Þeir mæta keikir til leiks, annað kvöldið í röð og láta ekkert á sig fá . Þeir Hlynur og Kobbi ætla að halda veislunni gangandi langt fram á nótt með því að spila ekkert nema slagara út í gegn. ÚthverFin valTarinn á KringluKránni sveiflumeistarinn sjálfur geirmundur valtýsson sér um að halda uppi fjörinu á Kringlukránni um helgina ásamt hljómsveit sinni. geiri er búinn að keyra alla leið í bæinn og fyrst að hann er kominn þá lætur hann sig hafa það að rokka bæði föstu- dags- og laugardags- kvöld. Karma á Players Partísveitin Karma treður upp á Players í Kópavogi á laugardags- kvöldið. Búið er að bóna dansgólfið og því eru gestir beðnir um að undirbúa sig undir agalegan dans. loKaTónleiKar á Broadway Hljómsveitin dr. mister & mr. Handsome heldur lokatónleika sína á skemmtistaðnum Broad- way á laugardaginn. ekkert nema partí, ballið byrjar kl. 23 og það kostar 1.000 krónur inn. ívar og guðni verða í essinu sínu. galdraKarlinn á PriKinu Það verður fjör á Prikinu í kvöld eins og öll önnur kvöld. dúettinn Friskó byrjar kvöldið á því að gaula hvern slagarann á fætur öðrum og svo mætir enginn annar en gísli galdur. grillinn hefur verið fínt útflúraður í mörg ár en á bara eftir að fá það á trýnið. Það gerist í kvöld. BreaKBeaT-Kvöld á Pravda Útvarpsþátturinn Breakbeat.is er með árslistakvöld sitt á Pravda í kvöld. Fastasnúðarnir spila af miklum krafti og aggi aggzilla klárar kvöldið. ekki spurning maður. Pain á Pravda Já plötusnúðameist- arinn sjálfur áki Pain dettur í gang með rosalegum hætti á Pravda á laugardags- kvöldið. ákinn er flottur á því og kann að láta dansgólfið skjálfa. ákinn + þú = dans. Árslistakvöld Break- beat.is á Pravda Útvarpsþátturinn Breakbeat.is á X-inu 977 mun kynna árslista sinn í kvöld á skemmtistaðnum Pravda. Þeir félagar Kalli og Gunni Ewok munu kynna listann sem verður útvarpað beint frá Pravda. Útsend- ingin hefst á slaginu 22 en auðvitað verður hægt að mæta á Pravda og fá listann beint í æð. Listinn er tekinn saman af þeim Kalla og Ewok en einnig gátu hlust- endur haft áhrif á val hans með því að senda þeim félögum tölvupóst. Spilun listans sjálfs lýkur klukk- an eitt en þá munu fastasnúðar Breakbeat leika áfram fyrir dansi auk þess sem að hinn gamalreyndi Aggi Agzilla mun trylla lýðinn fram eftir nóttu. Þeir félagar hjá Breakbeat hafa haldið úti langlífustu klúbbakvöld- um í Reykjavík að eigin sögn með sínum mánaðarlegu Breakbeat- kvöldum. Það vantar aldrei stemn- inguna þar á bæ og hvað þá á árs- listakvöldi þar sem aðeins rjóminn af því besta fær að hljóma. Þetta er því eitthvað sem enginn danshaus ætti að láta framhjá sér fara. Kalli, lelli og gunni ewok Þeir Kalli og gunni láta ekki fjarveru Lella hafa áhrif á stemninguna í kvöld. sTeFið á HveBBanum Plötuþeytirinn dj stef mætir á Hverfisbarinn í kvöld ásamt sætu krullunum sínum. stef hefur lofað því að kvöldið í kvöld verði einstakt, mikið af hröðum taktskiptingum og jafnvel óvæntur leynigestur. HveBBinn í sTuði gunnar skúlason er aðeins venjulegur háskólanemi á daginn en á kvöldin breytist hann í partídýrið dj stef. dýrið gengur laust þessa helgi og tekur annað kvöldið í röð á Hvebbanum án þess að blikna. Binni og riKKi á sólon Það verður sannkallað Fm 957 kvöld á sólon á laugardaginn. Þá skemmta þeir Brynjar már á efri hæðinni og rikki g á þeirri neðri en kapparnir eru báðir útvarpsmenn á Fm. eflaust verður ferskasta popp- tónlistin í boði eins og vaninn er. dJ JBK Það er annar og aðeins stærri helmingur plötusnúðadúettsins gullfoss og geysis, dJ JBK sem sér um dansgólfið á óliver um helgina. Trylltur dans, kvenna- fans, þessi maður kemur ykkur í „mód“. sTríPan á sólon Það verður dansað á sólon um þessa helgi eins og aðrar. Fm-meistarinn sjálfur Brynjar már sér um að byrja helgina af krafti og snýr skífum af sinni alkunnu snilld. setjið því gel í hárið, eins og þið gerðuð um árið. Tvistið er komið aftur. CaFé óliver stemningin á óliver er alltaf fyrsta flokks og það verður ekkert lát þar á um þessa helgi. Tryllta plötusnúðatvíeykið dj gullfoss og geysir sjá um fjörið, en þeir eru ekki þekktir fyrir neitt minna en 40%. B-ruFF KliKKar eKKi Plötusnúðurinn Kocoon byrjar laugardagskvöld- ið á Prikinu með léttri dinnertón- list og spilar þar til að æsingur fer að færast yfir mannskapinn. Þegar gestirnir verða svo orðnir nógu æstir dettur enginn annar en dj B-ruff í gang en hann klikkar seint. endurKoman á QBar sjonni Brink dustar rykið af gamla gítarnum og gefur allt í botn á Qbar á laugardags- kvöldið. sjonninn er listilega góður söngvari sem kallar ekki allt ömmu sína og það er engin undantekning á því í kvöld. FloTTHeiT á vegamóTum anna rakel er mætt aftur á sinn stað fyrir aftan dj-borðið og hún hefur aldrei verið jafnsæt. með henni í kvöld er enginn annar en Hjalti nokkur sem er þekktur fyrir ótrúlegar kraft- ballöður og annað fjör. HiPHoP-TónleiKar á Barnum Útvarpsþátturinn orð sem næst á Flass fm á miðvikudags- kvöldum heldur árslistakvöld sitt á Barnum í kvöld. Fram koma Kájoð, Thundercats og arkir. stjórnendur þáttarins þeir ómar og steve verða á plötuspilurunum. ekkert nema fjör. dJ Kári á vegamóTum Það er enginn annar en sá tryllti fjári dJ Kári sem sér um tónlist- ina á vegó á laugardaginn. Kári var náttúrulega bitinn í eyrað eins og þekkt er og þurfti að hvíla sig á skífuþeytingum en hefur nú jafnað sig að fullu og er mættur aftur í bransann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.