Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Blaðsíða 22
föstudagur 12. janúar 200722 Helgarblað DV Þ að hefði verið líf þar sem fað- ir minn Saddam hefði verið ósköp venjulegur lögmaður og móðir mín Sajida grunn- skólakennari, líf þar sem ég hefði getað alist upp hjá þeim á venjulegan máta fjarri allri græðgi og vandamálum sem völd og forysta hafa í för með sér. Þá hefðum við verið hamingjusamasta fjölskyldan og að- eins þurft að þola það sama og aðrir þola.“ Svona svaraði Raghad Hussein, elsta dótt- ir Saddams Hussein, blaðamanni The Times þegar hún var spurð að því hvort hún hefði vilj- að að líf hennar hefði þróast öðruvísi en það gerði. Öðruvísi en svo að fjölskyldan berðist innbyrðis á köflum og stæði saman gegn utan- aðkomandi ógnum á öðrum tímapunkti, öðru- vísi en svo að hún og eiginmaður hennar sæju sig tilneydd að flýja land af ótta við elsta bróð- ur hennar og öðruvísi en svo að faðir hennar skipaði henni að skilja við mann sinn og léti svo drepa hann, öðruvísi en svo að hún þyrfti að verja síðustu árum í að stýra liði lögmanna í von um að bjarga lífi föður síns. Fjölskyldusaga Saddams Hussein er vissu- lega ekki eins og sögur flestra. Þegar Saddam fæddist var faðir hans nýlátinn og stjúpfað- ir Saddams barði hann þar til hann flýði bar- smíðarnar til að dvelja hjá frænda sínum. Sag- an tók þó ekki á sig furðublæ fyrr en Saddam var orðinn einráður í Írak og börn hans fóru að komast á fullorðinsaldur. Uday hinn ógurlegi Elsta barn Saddams, sonurinn Uday, ávann sér fljótt frægð fyrir grimmd. Reyndar er sagt að grimmd hans hafi verið slík að faðir hans bliknaði í samanburði. Uday er sagður hafa pyntað og myrt fjölda andstæðinga sinna og aðra þá sem honum var í nöp við að ógleymd- um íþróttamönnum sem hann lét pynta fyr- ir slakan árangur. Þá nauðgaði hann að sögn fjölda kvenna og myrti sumar þeirra. Ein sagan segir að Uday hafi látið lífverði sína nema 14 ára dóttur fyrrverandi héraðs- stjóra á brott og færa hana heim til sín þar sem hann nauðg- aði henni. Þegar faðir henn- ar kvartaði ítrekað og hávært sendi Uday lífverði sína til hans og lét þá segja héraðsstjóranum fyrrverandi að koma með dótt- ur sína og 12 ára systur hennar til Udays. Ella myndi Uday láta drepa alla fjölskylduna. Sag- an segir að héraðsstjórinn hafi hlýtt. Það var þó aðeins þeg- ar hann myrti lífvörð Sadd- ams fyrir framan fjölda fólks sem föður hans brast þolin- mæði. Ástæðan fyrir morðinu var sú að lífvörður- inn hafði kynnt Saddam fyrir Samira Shah- bandar, ungri konu sem Saddam kvænt- ist þrátt fyr- ir að vera þegar kvæntur Sajida Talfah, móður Udays og fjögurra annarra barna Saddams. Það var meira en Uday þoldi. Einræðisherrann brást við morð- inu með því að fangelsa son sinn en sleppti Elskaði manngæsku hans og alúð Fjölskylda saddams sajida TalFah uEiginkona saddams var kennari áður en þau gengu í hjónaband. hún bar dætrum sínum og eiginmönnum þeirra boð frá saddam til jórdaníu um að allt yrði fyrirgefið ef þau sneru aftur. Býr í útlegð í jórdaníu. uday 1964–2003 usiðlaus og svo hættulegur að föður hans ofbauð og útnefndi yngri bróður hans sem arftaka sinn í stað udays. alræmdur fyrir nauðganir og pyntingar. Fékk þó 99,99 prósent atkvæða í framboði til þings. Féll í bardaga við bandaríska hermenn. Qusay 1966–2003 umaðurinn sem búist var við að tæki við völdum eftir saddam. Barði niður uppreisn kúrda 1991 af mikilli hörku. yfirmaður lýðveldisvarðarins, úrvalshers Íraks. Féll í bardaga við bandaríska hermenn. Raghad 1967 uFlýði til jórdaníu ásamt yngri systur sinni Rana og eiginmönnum beggja. Býr nú í útlegð í jórdaníu en er grunuð um að styðja and- spyrnumenn í Írak. stýrði lögmönn- um sem vörðu föður hennar. Rana 1969 uFlýði til jórdaníu ásamt Raghad, eldri systur sinni, og eiginmönnum þeirra beggja. uday lét hneppa systurnar í stofufangelsi vegna gruns um að þær hefðu skipulagt tilræði við hann. hala 1979 uyngsta barn og uppáhaldsdóttir saddams og sajida. Óvíst hvar hún hefst við. hún flýði Írak áður en innrásin undir forystu Bandaríkj- anna hófst. ali uFátt er vitað um soninn sem saddam á að hafa átt með samira shahbandar. Tilvist hans var haldið leyndri. hann ætti að vera á táningsaldri nú. Fyrir rétti réttarhaldanna yfir saddam verður minnst vegna stöðugra uppákoma. saddam viðurkenndi aldrei lögsögu dómstólsins sem svo á endanum dæmdi hann til dauða. Gripinn Hermenn leituðu svo vikum skiptir að saddam. Ógnvaldurinn fannst loks og hafði þá látið hár sitt og skegg vaxa til að villa um fyrir leitarmönnum. Sá er veldur árekStrum „Honum var gefið nafnið Saddam sem er ekki algengt nafn en tengist arabísku orð- unum istidam og sadmah og merkir „sá er veldur árekstrum“. Nafnið gaf til kynna að Saddam væri súnníti úr lægri stétt. magnús Þór Bernharðsson, Píslarvottar nútímans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.