Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 12
Þrjátíu og fimm ára sögu Ungdómshússins á Norðurbrú í Kaupmannahöfn lýkur brátt.
Menn eru þó ekki á eitt sáttir um hvernig beri að leysa þann vanda sem skapast við rým-
ingu hússins en fjölbreytt lista- og stjórnmálastarfsemi hefur farið þar fram.
Ófremdarástand ríkti á Norður-
brú í Kaupmannahöfn laugardaginn
16. desember. Þúsundir ungmenna
gengu þá um götur og vörpuðu múr-
steinum að lögreglu og í gegnum
búðarglugga. Ruslatunnur voru al-
elda og sjónvarpsþyrla sveif yfir og
sýnt var beint frá látunum. Hundruð
mótmælenda voru handtekin. Þetta
var í annað skiptið á þremur mán-
uðum sem unga fólkið lagði nánast
undir sig Norðurbrú. Ástæðan fyr-
ir reiði mótmælenda er yfirvofandi
rýming Ungdómshússins svokall-
aða. Húsið er í eigu trúarsamtakanna
Föðurhúsið sem hyggjast rífa það og
byggja nýtt samkomuhús í staðinn.
Skálkaskjól í rúman aldarfjórðung
Sögu samtaka um Ungdómshúsið
má rekja til ársins 1982 þegar borg-
aryfirvöld gáfu leyfi fyrir starfsemi
þeirra í húseign sem staðið hafði
auð síðan á sjötta áratugnum. Hóp-
ur ungs hústökufólks hafði þá búið
í húsinu í tvö ár og stofnað með sér
þessi samtök.
Síðan þá hefur alls kyns lista-
og stjórnmálastarfsemi átt sér þar
fastastað. Til að mynda eru haldn-
ir tónleikar í húsinu í hverri viku og
stjórnmálaumræður eru fastur hluti
af dagskránni. Fáar reglur gilda um
starfsemina en samkvæmt heima-
síðu samtakanna er öll neysla harðra
eiturlyfja bönnuð innan þess. Eins
eru fordómar í garð samkynhneigðra
eða kynþátta bannaðir.
Húsið selt
Átökin sem nú standa um húsið
má rekja til sölu þess árið 1999. Þá-
verandi meirihluti borgarstjórnar
seldi þá húsið til félags í eigu trúar-
samtakanna Föðurhúsið sem hafa
síðan þá reynt að flytja inn en án
árangurs. Málaferli hafa því staðið
yfir og þann 14. desember síðastlið-
inn var komið að því að rýma það.
En af ótta við átök mælti lögreglan
með að því yrði slegið á frest. Á sama
tíma hefur sjóður sem kenndur er
við stuðningsmenn núverandi hús-
bónda reynt að kaupa það af trúfé-
laginu en án árangurs. Þrátt fyrir að
hafa boðið fimmfalt meira fyrir húsið
en söluverð þess var á sínum tíma.
Útlenskir mótmælendur
Stór hluti þeirra, sem handteknir
hafa verið í mótmælunum, hefur ver-
ið útlendingar. Margir frá Þýskalandi
og Hollandi, þótt lögregla hafi eflt
eftirlit við þýsku landamærin dag-
ana fyrir mótmælin. Enda vitað að
þaðan kæmu margir mótmælendur
því Ungdómshúsið hafði biðlað til
stuðningsmanna sinna þar í landi að
koma og styðja við bakið á dönskum
skoðanabræðrum.
Umræður um framtíð hússins
hafa verið áberandi í dönsku þjóðlífi
undanfarin misseri enda hafa mót-
mælin verið þau hörðustu í manna
minnum. Ritt Bjerregaard, borgar-
stjóri Kaupmannahafnar, hefur hing-
að til sagt að hún muni ekki koma
að lausn málsins enda liggi fyrir að
kaupendur hússins eigi rétt á að fá
það afhent. En þrýstingur
frá borgur-
um um að
friðsamleg
lausn finn-
ist hefur
gert það að
verkum að
hún hefur
látið mál-
ið til sín
taka. Með-
al ann-
ars lagði
hún til
milli jóla
og nýárs
að Ung-
dóms-
hús-
inu yrði
fundinn
staður
innan
Krist-
janíu.
Þær
hug-
myndir fóru illa í Kristjaníubúa líkt
og aðra íbúa Kaupmannahafnar
enda vill enginn hafa starfsemina í
sínu hverfi. Í byrj-
un vikunnar tók
borgarstjórinn já-
kvætt í hugmynd-
ir þingmanns
Einingalistans
um að Ungdóms-
húsið yrði flutt í
gamla slökkviliðs-
stöð í sömu götu og það er í núna.
En slökkviliðsstöðin er í eigu ríkis-
ins og stendur auð. Talsmenn Ung-
dómshússins hafa lítið gefið út á
þessar hugmyndir. Það er því út-
lit fyrir að óeirðir brjótist út í þriðja
skiptið á stuttum tíma. Alla vega hafa
samtökin búið sig undir átök og hafa
skipulagt viðamikla dagskrá út um
alla Kaupmannahöfn verði þau lát-
in rýma húsið. Borgaryfirvöld keppa
því við tímann að finna lausn áður
en allt fer í bál og brand á nýjan leik.
Borgarstjóri Kaupmannahafnar er tilbúinn til að kaupa slökkvi-
liðsstöð handa samtökum um Ungdómshúsið láti þau af mót-
mælum og skemmdarverkum. Rýma á húsið á næstunni og óttast
borgarbúar óeirðir í kjölfarið.
Vilja afstýra óeirðum í
KaupmannahöfnDavid Beckham yfirgefur
herbúðir Real Madrid og geng-
ur til liðs við bandaríska liðið
Los Angeles Galaxy í lok leik-
tíðar í sumar. Beckham skrifaði
undir fimm ára samning við LA
Galaxy og fær litlar 128 milljón-
ir punda á samningstímanum
eða sem nemur 18 milljörðum
íslenskra króna. „Forráðamenn
Real Madrid fóru fram á það við
mig í vikunni að ég tæki ákvörð-
un um framtíð mína og afstöðu
til tilboðs um tveggja ára samn-
ing. Að vel athuguðu máli ákvað
ég að fara til LA Galaxy,“ sagði
Beckham í viðtali við Reuters.
Beckham er þrjátíu og eins árs
og gekk í raðir Real Madrid árið
2003 eftir að hafa spilað með
Manchester United.
David Beckham
til LA Galaxy
föstudagur 12. janúar 200712 Fréttir DV
Internetfyrirtækið Cisco hef-
ur kært Apple fyrir nafnstuld.
Cisco skráði nafnið iPhone árið
2000 og gaf út fyrir aðeins þrem-
ur vikum út sína eigin netsíma
undir iPhone-nafninu. Talskona
Apple kallar málshöfðunina
heimskulega, því í fyrsta lagi eru
vörurnar mjög ólíkar og í öðru
lagi nota mörg fyrirtæki nafnið
iPhone.
iPhone stolinn
Amnesty International boð-
aði í gær í tilefni af afmælinu til
mótmælafunda víða um heim
og krefst þess að búðunum verði
lokað og föngunum sleppt eða
þeir látnir sæta ákærum og leidd-
ir fyrir dóm í réttlátum réttar-
höldum. Enn eru 400 fangar í
búðunum sem hvorki hafa ver-
ið ákærðir né verið leiddir fyrir
dóm. Fangar urðu
flestir 750 frá 45
löndum og með-
al þeirra börn allt
niður í 13 ára.
Margir vitnisburð-
ir um illa meðferð
og misþyrmingar
hafa borist með
þeim sem látnir
hafa verið lausir. Bandaríkjastjórn
hefur með starfrækslu búðanna
og annarra leynifangelsa víða um
heim hunsað alla alþjóðasamn-
inga og viðmið um meðferð fanga
og einnig komið í veg fyrir eftir-
lit eigin dómstóla með lögum og
reglu í Guantánamo. Í október
2006 skrifaði Bush Bandaríkjafor-
seti undir lög (Military Comm-
issions Act), sem sviptir banda-
ríska dómstóla valdi til að fjalla
um réttindi og grundvallarvernd
fanga gegn handahófskenndu
varðhaldi (habeas corpus) og
pyntingum. Með fundinum í gær
vildi Amnesty International með-
al annars árétta kröfuna um af-
nám laganna og endurupptöku
habeas corpus.
Pyntingastöðin í
Guantánamo 5 ára
Fyrsta sólóplata tónlistarmanns-
ins Péturs Ben, Wine for My Weak-
ness, hefur fengið mjög góða dóma
hjá dönskum tónlistargagnrýnend-
um undanfarnar vikur. Í dómi dag-
blaðsins Politiken segir að það sé
aðeins á færi Íslendinga að tjá til-
finningar sínar með jafnsterkum
hætti og Pétur geri á plötunni. Gagn-
rýnandinn segir plötuna verða betri
með hverri hlustun og gefur henni
fimm stjörnur af sex mögulegum. Í
tónlistartímaritinu Gaffa kveður við
sama tón. Þar segir að Pétur sé hæfi-
leikaríkur og persónulegur lagahöf-
undur sem eigi fullt erindi á alþjóð-
legan markað, eins og svo oft eigi við
um íslenska tónlistarmenn.
Pétur heldur tónleika á Loppen
í Kristjaníu miðvikudagskvöldið 7.
febrúar og í verslun 12 tóna í miðbæ
Kaupmannahafnar fyrr um daginn.
erlendarFréttir
ritstjorn@dv.is
Pétur Ben heillar Dani
Ungdómshúsið á Norðurbrú
Borgaryfirvöld leita leiða til að skapa frið við þá sem mótmæla.
D
V-
m
yn
d
ks