Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 16
föstudagur 12. janúar 200716 Fréttir DV
„Það er nýtt að draga til ábyrgðar
hvítflibbana, vel menntað fólk sem
á mikið undir sér, eins og sagt er,
og nýtur virðingar og tiltrúar í sam-
félaginu. Þarna er um að ræða fólk
sem hefur efni á að kalla sér til að-
stoðar alla þá fræðinga sem völ er á
sem geta talað máli þess,“ segir Jón
H.B. Snorrason, þáverandi yfirmað-
ur efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra, í viðtali við Fréttablaðið
þann 5. desember 2004. Þetta viðtal
birtist fimm dögum eftir að Gunn-
ar Örn Kristjánsson var sýknaður í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
DV hefur ítrekað reynt að ná
tali af Jóni H.B. Snorrasyni og Boga
Nilssyni ríkissaksóknara vegna
mála Gunnars, án árangurs.
Í viðtalinu útskýrir Jón starf-
semi efnahagsbrotadeildarinnar
og bendir á að svokölluðum hvít-
flibbaglæpum hafi fjölgað mjög á
síðustu árum. Hann kveðst vera sátt-
ur við árangur efnahagsbrotadeild-
arinnar, þar sem sakfelling hafi orð-
ið í um 90 prósentum þeirra mála
sem deildin hefur ákært í. Deildin
hafi á að skipa fólki með sérfræði-
þekkingu, svo sem lögfræðingum,
endurskoðendum, viðskiptafræð-
ingum og fleirum.
Ásakanirnar sem þú sættir fól-
ust fyrst og fremst í því að þú hefð-
ir brugðist skyldum þínum sem
endurskoðandi og þannig hafi
Lárus Halldórsson komist upp
með fjárdrátt.
„Hvers vegna hefði ég átt að
fórna öllu því sem ég hafði með
því að taka áhættu á því að skrifa
upp á bókhald Tryggingasjóðs
lækna án þess að endurskoða
það rækilega? Ég var forstjóri
eins stærsta fyrirtækis landsins.
Ég sagði upp störfum fyrir SÍF um
leið og mér varð ljóst að þeir ætl-
uðu að ákæra. Þetta þurfti ég að
gera vegna endurskoðunarstarfa
sem ég vann í hjáverkum og sköp-
uðu mér litlar tekjur.
Miðað við þær ásakanir að ég
hafi ekki sinnt endurskoðun á
sjóðnum sem skyldi, þá velti ég
því fyrir mér hvers vegna Lárus
hafði fyrir því að hafa tvöfalt bók-
hald og stunda þessar falsanir.“
Rannsókn með málaferlum
og frávísun frá Hæstarétti snérist
upp í hugsanlega endurupptöku
málsins. Þetta hefur verið rúm-
lega þriggja ára ferli.
„Þetta hefur verið ákaflega
erfiður tími að mörgu leyti. Sér-
staklega fyrir fjölskyldu mína. Ég
einn get nákvæmlega vitað hvað
ég gerði og hvað ég gerði ekki.
Þegar maður stendur frammi fyr-
ir svona kemur ansi fljótt í ljós
hverjir eru hinir raunverulegu
vinir manns.
Þegar þetta mál kom upp hafði
ég aldrei áður stigið í dómsal. Það
er einfaldlega kippt undan manni
fótunum. Ég hef ekki komið ná-
lægt fyrirtækjarekstri með bein-
um hætti síðan þetta mál fór allt
af stað. Ég hef heldur ekki orð-
ið þess var að atvinnutilboðin
streymi til mín.“
Nú var í rannsókninni gert tals-
vert úr því að þú og framkvæmda-
stjóri sjóðsins hafi tengst vináttu-
böndum sem hafi haft áhrif á störf
þín.
„Við Lárus höfum starfað
saman í gegnum tíðina og rák-
um meðal annars endurskoð-
unarskrifstofur í sama húsnæði
til fjögurra ára. Samskipti okk-
ar náðu aldrei út fyrir starfsum-
hverfið.“
Hæstiréttur kom fram með al-
varlega gagnrýni á rannsóknina
alla þegar hann að lokum vísaði
málinu frá dómi í maí 2005. Rík-
issaksóknari sagði síðar að rann-
sóknin væri í þeim farvegi að
brotið væri gegn 70. grein stjórn-
arskrár Íslands og 6. grein mann-
réttindasáttmála Evrópu.
„Ég tel að þessir menn, það
er að segja lögregla og henn-
ar aðstoðarmenn, hafi brugð-
ist skyldu sinni, allir sem einn.
Ég tel að meiningin hafi verið
að bregða fyrir mig fæti. Það er
miklu skemmtilegra að góma for-
stjóra hjá stóru fyrirtæki en ein-
hvern annan.
Árni Tómasson, sem lögregla
kallaði sér til aðstoðar við rann-
sóknina, átti meðal annars sæti
í stjórn Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna fyrir hönd SÍF eft-
ir að rannsóknin fór af stað. Þá
hafði ég látið af störfum sem for-
stjóri en hafði ennþá starfsskyld-
um að gegna gagnvart fyrirtæk-
inu. Árni tengdist einnig Ástráði
Hreiðarssyni lækni fjölskyldu-
böndum. Ástráður var í mála-
ferlum við Tryggingasjóð lækna
og hafði sig frammi í fjölmiðlum
um málið.“
Gunnar ætlar að sækja skaða-
bótamál vegna alls þessa. Undir-
búningur að því er þegar hafinn.
sigtryggur@dv.is
Gunnar Örn Kristjánsson mun höfða skaðabótamál vegna
rannsóknar og málaferla á hendur honum sem ríkissak-
sóknari segir að hafi brotið í bága við stjórnarskrá landsins
og mannréttindasáttmála Evrópu. Gunnar var forstjóri SÍF,
eins stærsta fyrirtækis landsins á þeim tíma, og naut mik-
illar velgengni. Þegar Lárus Halldórsson, framkvæmdastjóri
Tryggingasjóðs lækna, játaði að hafa stundað milljóna fjár-
drátt og blekkingar í störfum sínum árið 2002, beindust spjót
efnahagsbrotadeildarinnar að störfum Gunnars sem endur-
skoðanda sjóðsins.
Ætlar að höfða
skaðabótamál
Gunnar Örn Kristjánsson sætti rannsókn og málaferlum í
þrjú ár. Niðurstaðan er að brotið hafi verið á Gunnari. Hæsti-
réttur vísaði málinu frá og ríkissaksóknari segir að stjórn-
arskrá og mannréttindasáttmáli hafi verið brotin.
Jón H.B. Snorrason segir viðskiptafólk
nýta sér dýra sérfræðinga til varna.
Hvítflibbar hafa
ráð á vörnum
D
V
m
ynd Stefán