Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Qupperneq 24
föstudagur 12. janúar 200724 Helgarblað DV Mannlausar jarðarfarir Það er ekki aðeins að gamalt fólk liggi látið vikum saman án þess að nokkur viti af því. Þess eru einnig dæmi að fólk sé jarðsett án þess að nokkur fylgi því til grafar, hvorki ættingjar né vinir. Kona um nírætt fannst látin á heimili sínu mánuði eftir að hún lést. Nokkur fleiri dæmi um þannig örlög eru til. Enginn leit til konunnar og enginn saknaði hennar, ekki einu sinni um jól- in. Grunur um að eitthvað væri að kviknaði hjá nágrönnum kon- unnar. Einsemdin hefur fleiri myndir. Þess eru dæmi að fólk sé jarðsett án þess að nokkur fylgi því til grafar. „Starfsfólk Útfararþjónust- unnar er oft eina fólkið við jarð- arför einstaklinga sem eiga engan að, en stundum kemur hjúkrunarfólk í jarðarförina ef viðkomandi var lengi á sjúkra- stofnun fyrir andlátið,“ segir Rúnar Geirmundsson, útfarar- stjóri Útfararþjónustunnar ehf. Rúnar starfaði í mörg ár við lík- flutninga hjá kirkjugarðinum í Fossvogi og segir það hafa kom- ið sér mjög á óvart hversu margir deyja einir í heimahúsi og finn- ast ekki fyrr en mörgum dögum eða vikum seinna. „Oft er fólk búið að brjóta all- ar brýr að baki sér og aðstand- endur vilja ekkert af þeim vita eða þeir vilja ekki hafa samband við aðstandendur sína og svo eru líka tilfelli þar sem fólk á einfald- lega engan að og er búið að ein- angra sig félagslega og hefur ekki samskipti við neinn,“ segir Rúnar. Hann segir að allir fái viðunandi útför og fólki sé ekki mismunað hvað íburð kistunnar varðar, því allir séu jarðsettir í viðeigandi viðarkistum. Rúnar segir að þeg- ar einstaklingar sem eiga enga að eru jarðsungnir sé það gjarn- an gert í kapellunni í Fossvogi og prestur les ritningagreinar og organisti spilar nokkra sálma. Verðum að bregðast við þessu Jórunn Ósk Frímannsdóttir, formaður Velferðarráðs Reykja- víkurborgar, segir nauðsynlegt að bregðast við þegar gamalt fólk einangrast á heimilum sínum og á hvorki ættingja né vini sem vitja þess. Jórunn segir að í þjónustu- miðstöð Laugardals og Háaleit- is í samstarfi við heilsugæslustöð Hlíðasvæðis sé verið að vinna að tilraunaverkefni þar sem öllum eldri borgurum, sem ekki eru í neinum tengslum við þjónustu- aðila í hverfinu, er sent bréf og haft samband við þá sem ekki svara því. Segir Jórunn að þetta sé liður í því að fylgjast betur með þeim sem eru einir og hafa til- hneigingu til að einangra sig frá samfélaginu. „Það er klárt mál að það þarf að bregðast við þessu og við erum að gera það en það er ekki auðvelt því stundum vill fólk ekki fá hjálp,“ segir Jórunn. Hún segir Velferðar- ráð vinna að því að bjóða upp á öryggissíma sem fólk getur sótt um og þá er alltaf einhver sem svarar og ef fólki líður illa eða er einmana þá er hægt að senda til þeirra heimahjúkrun eða aðra aðstoð. Jórunn segir sláandi að heyra í fréttum um fólk sem hefur verið dáið vikum saman á heim- ili sínu án þess að neinn taki eft- ir því og að það sé samstarfsverk- efni allra að fylgjast með því fólki sem á enga að. Erfitt að trúa þessu „Það er sorglegt fyrir okkur að þurfa að horfa upp á að svona geti gerst og erfitt að trúa því sem Ís- lendingur og viðurkenna að þetta hafi gerst,“ segir Anna Sigríður Pálsdóttir, prestur í Grafarvogs- kirkju, þegar hún var spurð um gömlu konuna sem hafði verið látin í mánuð án þess að nokk- ur vissi. Anna Sigríður segir erfitt að átta sig á því þegar fólk er ein- angrað heima hjá sér því það sé enginn til að segja frá því og þess vegna ættu kannski heilsugæslu- stöðvarnar að hafa eftirlit með eldri borgurum eins og þær hafa eftirlit með ungbörnum. „Við erum tilbúin að gera allt sem við getum þegar okkur er bent á að einhver er einn og yfir- gefinn en það er erfitt fyrir kirkj- una að vera með frumkvæði að því að hafa samband því margir vilja það ekki,“ segir Anna Sigríð- ur. Hún segir að Grafarvogskirkja sé með líflegt starf fyrir eldri borg- ara og það sé opið hús í kirkjunni alla þriðjudaga og fólk sé sótt og keyrt heim ef það vill. Djákninn heimsækir fólkið Svavar Stefánsson prestur í Fella- og Hólakirkju segir að kirkj- an hafi ráðið Ragnhildi Ásgeirs- dóttur djákna í fullt starf og hún heimsæki þá sem eru einmana og eiga fáa að. „Við erum að fóta okkur áfram með að líta eftir fólki og erum í náinni samvinnu við Félagsþjón- ustuna í Mjóddinni. Við reynum að hlusta eftir þeim einstakling- um sem eiga fáa að og eru félags- lega einangraðir og auk djákn- ans eru sjálfboðaliðar sem fara í heimsóknir til fólks,“ segir Svavar. Hann segir að borgarsamfélag- ið sé þess eðlis að mikill hraði og aukin spenna í þjóðfélaginu valdi því að oft verði börn og gamalt fólk út undan. „Það er skelfilegt að heyra að fólk skuli geta legið dáið í fleiri vikur heima hjá sér án þess að neinn kveiki á perunni, þetta er alveg á skjön við það sem maður ímyndar sér. Stærsti vand- inn er að fá að vita af þessu fólki svo hægt sé að sinna því og það væri gott ef fólk liti í kringum sig og léti vita ef það veit af einhverj- um sem á enga að,“ segir Svavar. Jakobína DaVíðsDóttir blaðamaður skrifar: jakobina@dv.is séra svavar stefánsson og ragnhildur Ásgeirsdóttir djákni í Fella- og Hólakirkju ragnhildur, ásamt sjálfboðaliðum, heimsækir fólk sem er einmana og afskipt. DV MynD stEFÁn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.