Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Side 28
föstudagur 12. janúar 200728 Helgarblað DV Ég var gabbaður á nýjustu James Bond-myndina í krafti þess að hún væri svo nútímaleg. Nú væri Bond loksins orðinn alvöru. Ég sef vanalega yfir Bond en ekki í þetta skiptið. Ég gat ekki setið kyrr af pirringi, andvarpaði stanslaust, juðaði í sætinu, hóstaði, fór á klósettið og gerði allt þetta klassíska sem fólk gerir sem er að úldna að inn- an sökum slakrar bíóupplifunar. Hvar var þetta raunverulega? Var það Spid- erman-atriðið í upphafi þar sem Bond hoppar milli bygginga- krana á eft- ir Afríkumeistaranum í frjálsum? Eða vondi kallinn sem var eineygður, með ör í andlitinu og með blóð lekandi úr auganu? Ekkert raunverulegt nema kannski að vondi kallinn var dansk- ur. Að öðru leyti hafði James hrakað. Ég man eftir eldri James Bond-mynd þar sem njósnarinn braust sérstak- lega inn í rússneska sendiráðið til að fá sér rússneskt vodka. Prinsippmað- ur. Í Casino Royale er drukkinn með- aljónsvodkinn Smirnoff sem hefur fátt rússneskt til að bera nema nafn- ið. Í seinustu myndum er hinn „fág- aði smekkur“ Bonds sem sagt til sölu. Hversu ömurlegt er það? Illmenni í hjólastól með lepp Allir þekkja gamla James Bond sem berst við illmenni sem eru ofvax- in, í hjólastólum, með lepp, stálkjaft og taka hláturrokur af illsku. Þau leiða myrkraher sem hefst við í þúsundatali í neðansjávarstöð í Indlandshafi (ekki ósvipað World Class), klædd sjálf- lýsandi leðursamfestingum svo allir í heiminum sjái hvað þau eru vond. Vondu kallarnir eiga alls konar færi- bönd, krana, krókódíla, hákarla og píranafiska ef vera skyldi að þeir þyrftu að taka einhvern af lífi og láta það taka viku í framkvæmd. Þetta er bara bull og ekki síður njósnamyndir hin- um megin Atlantshafsins. En svona verða myndirnar að vera til að einhver hafi áhuga á lífi leyniþjónustumanns. Hver myndi nenna að horfa á 300 mynda röð, þar sem hver og ein væri um misheppnaðar tilraunir CIA til að myrða Fidel Castro. Eða pervertíska myndaröð þar sem er svissað á milli þess að hlera, elta og plotta illvirki gegn John Lennon, Malcolm X, Mart- in Luther King og Olaf Palme. Steypa lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum Chile og Guatemala. Funda vinalega með leyniþjónustum góðu kallanna í herforingjastjórn Grikklands, Chile, Haiti og Apartheid-stjórnunum í Suð- ur-Afríku og Ísrael. Yfirleitt hefur sag- an gefið utanríkisstefnu Kana og Breta slæma dóma. Þess vegna er betra að vondi kallinn sé bara eitthvert tíma- laust óféti sem býr í stálturni og stefnir á heimsyfirráð af því bara. Máli mínu til stuðnings þykir mér rétt að benda á það þegar James Bond ætlaði að taka beina afstöðu í heimsmálunum og bjargaði leiðtoga Mujahedin úr fang- elsi í Afganistan og hjálpaði talíbönum hans til sigurs gegn Rússunum í Living Daylights. Enda voru þeir „freedom fighters“ og titlar eins og „terrorists“ og „evildoers“ voru fjarri. Vin Diesel, Jack Bauer og lögregluhundurinn Rex Ég sá mynd sem gefur fólki hug- mynd um hvað raunverulegt leyni- þjónustulið fæst við. Í The Road to Guantanamo tala bresku fangarn- ir um þátttöku MI5 í yfirheyrslunum yfir sér. Af hverju var það ekki í nýju James Bond-myndinni? En ég get við- urkennt að sumt er orðið nútímalegra, til dæmis hlutverk Moneypenny í myndinni. Ef áfram heldur sem horfir gæti James Bond verið orðinn nokkuð raunverulegur eftir svona tíu ár. Þá sæjum við James Bond hengj- andi múslima upp á handjárnum og spila James Bond-lagið á fullu blasti í 48 tíma. Beitandi drekkingarpynting- um ásamt frændanum Jack Bauer sem hann kynntist einmitt í aðdraganda Íraksstríðsins þar sem þeir föndruðu sönnunargögn um gereyðingarvopn. Enn einn „bróðirinn frá CIA“ eins og það var kallað í Casino Royale, myndi bætast við. Vin Diesel myndi mæta galvaskur með lögregluhundinn Rex sem Angela Merkel Þýskalandskansl- ari hefði gefið sem framlag til stríðs- ins gegn hryðjuverkum. Moneypenny myndi bera sig, maka tíðablóði fram- an í fanga og sturta niður Kóraninum. Þetta allt í einni allsherjar org- íu af „one linerum“ með breskum hreim, hristum martini og Millers, við dúndrandi tóna Kids Rock og Jessicu Simpson. Þetta æðislega sjónarspil í takt við hnefahögg á einhverjum mús- limaunglingi frá Birmingham sem gæfi sig loks og viðurkenndi að hann væri í raun Bjarnabófi, Skeletor eða jafnvel Blofeld. „Eða vondi kallinn sem var eineygður, með ör í andlitinu og með blóð lekandi úr auganu? Ekkert raunverulegt nema kannski að vondi kallinn var danskur.“ Erpur Þ. Eyvindarson skrifar „Eins er á Íslandi leitun á mönnum sem viðurkenna að þeir hafi fylgt ógnarstjórnum að málum í kalda stríðinu.“ Guðbergur Bergsson skrifar Í síðari heimsstyrjöldinni þeg- ar ameríski herinn frelsaði Napólí fannst hermönnunum skrýtið að hitta aldrei neinn sem kvaðst hafa verið fasisti og fylgt Mússolíní. Þetta þótti hlægilegt og sanna að ít- ölsk skapgerð væri léleg. Sjálfir not- uðu Ítalir það ráð til þess að bjarga heiðri sínum að hæðast meira en aðrir að sér og losnuðu þannig fremur en Þjóðverjar við ásakan- ir um stríðs- glæpi. Þjóð- ir samtímans þurfa ekki að nota sömu aðferð, gleymska á eigin afbrot er jafnsjálf- sögð og það að þjóðareinkennin hverfa. Afkomendur hermannanna sem hæddust forðum að Ítölum myndu því ekki viðurkenna að þeir hefðu verið samþykkir stríðsrekstri þjóðar sinnar í Írak. Eins er á Íslandi leitun á mönn- um sem viðurkenna að þeir hafi fylgt ógnarstjórnum að málum í kalda stríðinu. Spánverjar og Portúgalar vita varla lengur að þeir hafa átt grimma einræðis- herra. Minningu um fortíðina og afleiðingar hennar er hvergi hald- ið á lífi nema í Þýskalandi. Það er þar tengt kristinni hugmynd um hina óafmáanlegu erfðasynd. Öðru máli gegnir um fyrrver- andi alþýðulýðveldi eða komm- únistaríki. Andlegt ástand þeirra líkist harmsögulegum hrærigraut þar sem öllu ægir saman. Á sín- um tíma í Rúmeníu vann einn af hverjum 50 landsmanna fyrir leyniþjónustuna og einn „upplýs- ingamaður“ var hafður þar að auki á hverja 22 íbúa. Í liðinu var fólk af öllum stéttum en einkum mennta- menn, prestar og listamenn, lært fólk sem kunni að „fara með upp- lýsingar“ og líka eyðileggja þær eftir að einræðið var afnumið eins og Marius Oprera sagnfræðing- ur segir í Courrier International. Að fengnu frelsi á þjóðin það eitt sammerkt að flestir eru samsek- ir vegna þjónkunar við einræðið og eigin illsku, svo menn verða að umgangast hver annan eins og at- vinnulausir böðlar væru eða fang- ar sem má ekki lengur hengja án dóms og laga. Vegna upplausnar, hentugs minnisleysis og hvernig allt hefur riðlast: manngildi, virð- ing fyrir einstaklingum og hóp- um, trúin horfin og ást á menn- ingu og listum, reynir fólk eins og Tacu-fjölskyldan að safnast sam- an í kirkjugörðum við legsteina ættmenna sem voru tekin af lífi. Dauði þeirra er lifandi tákn fyrir mannlega reisn. Þegar allt riðlast kjallari kjallari James Bond í Guantanamo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.