Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Page 34
föstudagur 12. janúar 200734 Sport DV
GríðarleG spenna
fram undan
NFL-deildin hefur sjaldan eða aldrei verið jafn-
spennandi og nú og því fékk DV sérfræðingana
Þórmund Bergsson og Henry Birgi Gunnars-
son til að spá fyrir um úrslit helgarinnar.
Fyrir þá sem horfa á ameríska fótboltann eða ætla sér að
byrja á því nú um helgina er í raun nóg að kunna eina reglu
í leiknum:
Liðið sem er með boltann fær fjórar tilraunir til að kom-
ast tíu metra eða meira. Ef það tekst fær liðið aftur fjórar til-
raunir til að komast aðra tíu metra.
Ef liðinu með boltann tekst ekki að komast tíu metra í
fyrstu þremur tilraunum sínum, þá sparkar það yfirleitt frá
sér boltanum í fjórðu tilraun og hitt liðið fær þá boltann.
Úrslitakeppnin í ameríska fótboltanum fer á fullt um
helgina og eru fjórir leikir á dagskrá, undanúrslitaleikir í
Ameríku- og Þjóðardeildinni.
Á laugardaginn tekur Baltimore á móti Indianapolis í
undanúrslitum Ameríkudeildarinnar og New Orleans fær
Philadelphia í heimsókn í undanúrslitum Þjóðardeildar-
innar.
Á sunnudaginn fara fram síðari undanúrslitaleikirn-
ir þegar Chicago tekur á móti Seattle í undanúrslitum
Þjóðardeildarinnar og San Diego mætir New England á
heimavelli í undanúrslitum Ameríkudeildarinnar.
Leikur Baltimore og Indianapolis og leikur San
Diego og New England verða í beinni útsendingu
á Sýn.
NFL-deildin hefur sjaldan eða aldrei verið
jafnspennandi og á þessu tímabili og DV fékk
sérfræðingana Þórmund Bergsson og Henry
Birgi Gunnarsson til að spá í leiki helgarinnar.
dagur@dv.is
Baltimore ravens–indianapolis Colts
Baltimore vann þrettán leiki í deildinni í vetur og tap-
aði þremur, þar af eingöngu einum leik á heimavelli sín-
um, gegn Carolina Panthers, 21-23, 15. október.
indianapolis Colts tryggði sér sæti í úrslitakeppninni
með öruggum sigri á Kansas City um síðustu helgi, 23-
8. Indianapolis tapaði fjórum leikjum af sextán í deild-
inni í vetur, öllum á útivelli.
Þórmundur: „Ég held að ravens vinni þennan leik. Ég
held reyndar að munurinn verði innan við sjö stig. fyrst
og fremst vegna þess að það er nánast ekkert lið með
jafngóða vörn í deildinni og ravens, það er gríðarlega
öflugt.
Indianapolis hefur verið í vandræðum síðustu fjórar
umferðirna, þá kom fullt af veikleikum í ljós, sérstaklega
í vörninni. Menn hafa mikið verið að spá Indianapolis
alla leið undanfarin ár og þeir eru með mjög flott lið,
en það er eitthvað í sálfræðinni sem vantar hjá þeim til
að fara alla leið.“
Henry: „Það er nú eða aldrei fyrir Colts og það
veit Peyton Manning. Hér verður mikið skor-
að en Manning spilar eins og kóngur og
leiðir sína menn áfram frekar óvænt.“
san dieGo CHarGers–new enG-
land patriots
san diego þykir mjög sigurstranglegt
en það var með besta vinnings-
hlutfall allra liða í bæði amer-
íku- og Þjóðardeildinni í vetur,
unnu fjórtán af sextán leikj-
um sínum. san diego hef-
ur ekki tapað heimaleik
frá 31. desember árið
2005 þegar liðið tapaði
fyrir denver, 7-23.
Ladamian tomlinson,
hlaupari san diego, setti
í vetur met en hann hef-
ur skorað 31 snertimark á
tímabili, fleiri snertimörk
en nokkur annar leikmað-
ur hefur gert í sögu nfL á einu
tímabili.
new england þurfti að mæta new York
jets um síðustu helgi í leik um sæti í
undanúrslitum ameríkudeildarinn-
ar þar sem new England vann,
37-16. new England hefur
þrisvar sinnum unnið super
Bowl á síðustu fimm árum,
síðast árið 2005 þegar liðið
vann Philadelphia Eagles í
úrslitum, 24-21. Þjálfari liðsins er Bill Belichick sem er á
sínu 32. tímabili sem þjálfari í deildinni en hann er eini
þjálfarinn í sögu nfL sem hefur unnið þrjá meistaratitla
á fjórum árum.
Þórmundur: „Ég held að san diego vinni þennan leik
auðveldlega. Þó að það sé töluverð bjartsýni að tala um
það gegn new England sem er margfaldur meistari.
Ég held að aðalmunurinn liggi í því að leikmenn new
England eru saddir, þeir hafa nánast allir unnið super
Bowl.
Það er ofboðslega erfitt að halda liði á toppnum svona
lengi og það hefur engum tekist það. new England er
með fínan leikstjórnanda, öðruvísi væru þeir ekki búnir
að vera í super Bowl, en hann gerir ekki óvæntu hlut-
ina.
san diego hefur verið með lélegt lið undanfarin ár en
svo koma þeir allt í einu núna á fullu. Það er svo mikil
stemning í san diego og það held ég að muni fleyta
þeim alla leið. Það kæmi mér ekki á óvart að þeir
fari í super Bowl.“
Henry: „reynsla new England á eftir að
vega þungt í þessum leik og þeir
fara áfram í dramatískum leik
sem ræðst undir lokin.“
new orleans
saints–pHila-
delpHia
eaGles
philadelphia
vann síðustu
fimm leiki í deildinni. Liðið
vann síðan new York giants,
23-20, í umspili um laust sæti í úr-
slitakeppninni. Philadelphia tap-
aði sex af sextán leikjum sínum í
deildinni í vetur.
new orleans tapaði einnig
sex af sextán leikjum sín-
um í deildinni á tímabil-
inu. Þetta er í fyrsta sinn í
6 ár sem liðið kemst í úrslita-
keppnina og fékk sean Payt-
on, þjálfari liðsins, verðlaun-
in „þjálfari ársins“ fyrir vikið.
Liðin mættust fyrr á leiktíðinni þar
sem new Orleans fór með sigur af
hólmi, 27-24, en það var john Carney
sem tryggði sigurinn með vallarmarki
á lokasekúndunum.
Þórmundur: „new Orleans hefur ver-
ið með lélegt lið í mörg ár. Þetta verður
rosalega jafn leikur. Philadelphia er að
mörgu leyti í svolitlum vanda, liðið missti aðalleikstjórn-
andann og spilar að varaleikstjórnandanum sem hefur
blómstrað töluvert. Það hefur hleypt nýju lífi í liðið.
Philadelphia vinnur þennan leik. Ég veit ekki af hverju
það vinnur, en ég held það bara“
Henry: „Eagles er á of mikilli siglingu fyrir new Orleans
og mun ekki leika eins illa og gegn giants.“
CHiCaGo Bears–seattle seaHawks
Eftir að hafa tapað í super Bowl í fyrra gegn Pittsburgh
steelers, vann seattle níu leiki í deildinni í vetur og tap-
aði sjö. Leikmenn seattle voru heppnir að vinna dall-
as Cowboys í umspili úrslitakeppninnar, en hins vegar
virðist seattle alltaf vera best í úrslitakeppninni.
Þjálfari seattle Mike Holmgren hefur unnið fjórtán leiki í
úrslitakeppninni á ferlinum en tapað þremur.
Lovie smith, þjálfari Chicago, hefur aðeins
einn leik að baki í úrslitakeppninni og
hann tapaðist.
Chicago vann þrettán af sextán leikjum
sínum í vetur og Chicago niðurlægði
meðal annars seattle í deildinni
og vann það 37-6 á heimavelli.
Þórmundur: „Ég held með
Chicago. Þetta fer svolítið eft-
ir því hvaða lið kemur inn á
völlinn hjá Chicago. rex
grossman, leikstjórn-
andi Chicago, spil-
ar kannski leik þar
sem menn gapa
af undrun en svo í
næsta leik á hann
kannski bara
þrjár sending-
ar og allar
misheppn-
aðar.
Chicago er
svolítið sveiflu-
kennt og var í auð-
veldum riðli í deildinni. Ég
ætla að spá Chicago sigri.
Ég held að Chicago vinni
seattle 9-3.“
Henry: „reynslan skipt-
ir hér enn og aftur máli.
grossman, leikstjórnandi
Bears, er ekki nógu góð-
ur til að fara lengra með
liðið.“
ladamian
tomlinson
Hefur skorað 31
snertimark á
tímabilinu, sem
er met í nFl.
rex Grossman
Þykir ekki mjög
stöðugur
leikstjórnandi.
Brian
westbrook
er aðalhlaupari
philadelphia-
liðsins og þarf
að eiga góðan
leik ef eagles á
að vinna new
orleans.
íþróttamolar
Cappello vill selja ronaldo
fabio Cappello, þjálfari real Madrid, bað
ramon Calderon, forseta félagsins, að
selja markahæsta leikmann heims-
meistaramótsins, ronaldo. samkvæmt
ítalska blaðinu as vill Cappello meina
að ronaldo hafi gerst brotlegur við lög
félagsins og haft slæm áhrif á unga
leikmenn þess.
robinho ekki sáttur
aðeins meira af real Madrid og fabio
Cappello. robinho er ekki sáttur við lífið
í Madrid þessa
dagana en hann
komst ekki í
leikhóp real
Madrid gegn
deportivo
síðastliðinn
sunnudag.
Cappello vildi
meina að hann
hefði komið aftur
til æfinga með
hálfum huga og ekki í formi. Eitthvað
sem robinho er ekki sáttur við.
deschamp vill fá Heinze
didier deschamp, þjálfari juventus,
hefur opinberað áhuga sinn á
argentínska
landsliðsmannin-
um hjá Man. utd.
gabriel Heinze.
deschamp sér
Heinze sem
miðvörð en ekki
vinstri bakvörð
eins og sir alex
ferguson hefur
notað hann. Þá er
Heinze með
evrópskt vegabréf sem er kostur.
tiki Barber hættur
Hinn frábæri hlaupari nY giants í nfL-
deildinni tiki Barber hefur ákveðið að
leggja skóna á
hilluna marg-
frægu. Barber lék í
nfL-deildinni í 10
ár og á 13 met
með nY giants.
Hann hljóp 10.449
yarda á þessum
áratug sem setur
hann í 17. sæti yfir
mestu hlaupagikki
nfL-deildarinnar.
koren robinson dæmdur í árs bann
Koren robinson, leikmaður green Bay
Packers, hefur verið dæmdur í eins árs
keppnisbann eftir
að hann var tekinn
ölvaður við akstur.
Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem
robinson kemst í
kast við lögin því
þegar hann var hjá
Minnesota Vikings
var hann dæmdur
í þriggja mánaða
fangelsi fyrir að
reyna að stinga lögregluna af.
margir orðaðir við man. Utd.
Blöðin þreytast ekki á því að orða
miðjumenn víðsvegar í heiminum við
Manchester united. samkvæmt
spænska blaðinu
Catalan daily
sport fylgjast
stjórnarmenn
enska liðsins nú
grannt með stöðu
Xavis hjá
Barcelona. Einnig
hefur rio Mavuba,
miðjumaður
Bordeaux, verið
orðaður við liðið.
svo virðist hins
vegar vera að Manchester united sé að
gefast upp í
baráttunni um að
fá Owen
Hargreaves til
liðsins eftir að
Bayern München,
núverandi félag
Hargreaves, setti
25 milljóna punda
verðmiða á
leikmanninn.