Dagblaðið Vísir - DV - 12.01.2007, Síða 48
föstudagur 12. janúar 200748 Heilsa & menntun DV
Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarps-
ins, ákvað fyrir nokkrum árum að
bæta við sig menntun og innritaði
sig í sagnfræði í Háskóla Íslands,
sem hún lauk fyrir rúmu ári. Áður
hafði Elín lokið BS-gráðu í blaða-
mennsku með áherslu á sjónvarp og
útvarp frá The University of Florida í
Gainsville. Því námi lauk hún 23 ára
og hóf strax að loknu námi starf sem
blaðamaður.
„Jú,“ segir hún og brosir, „það
má eiginlega segja að ég hafi farið
í sagnfræðina á gamals aldri. Mig
langaði að auka við mig mennt-
un, auka víðsýnina og læra meira
um nálgun á viðfangsefnunum.
Þess vegna fannst mér sagnfræðin
áhugaverð. Ég hafði líka gert heim-
ildarþætti sem voru sögulegs eðlis
og langaði hreinlega að kunna bet-
ur til verka.“
Þjóðþekktir einstaklingar
meðal nemenda
Þegar Elín hóf nám í sagnfræð-
inni var hún langt í frá aldursforseti
því margir þjóðkunnir einstaklingar
á miðjum aldri voru henni samtíða í
náminu, bæði á BA- og MA-stigi.
„Þarna voru meðal annarra
Jóna Gróa Sigurjónsdóttir, fyrrver-
andi borgarfulltrúi, Sigurður Guð-
mundsson, fyrrverandi forstöðu-
maður Húsnæðisstofnunar, og
Ingólfur Margeirsson rithöfund-
ur og blaðamaður. Skömmu seinna
byrjaði Pétur Hafstein, fyrrverandi
hæstaréttardómari, og Hallur Halls-
son blaðamaður, svo einhverjir séu
nefndir, en ég var aldrei í tímum
með þeim,“ segir Elín og hlær.
Elín lauk meistaraprófi í sagn-
fræði en þurfti að taka nokkur nám-
skeið á BA-stigi til að verða hæf til
þess. „Meistaranám í sagnfræði
er tveggja ára nám, eða 60 eining-
ar, sem ég tók á þremur árum og
var bara nokkuð fljót. Ég var í fullri
vinnu meðan á náminu stóð en not-
aði svokallað blaðamannafrí til að
skrifa meistararitgerðina.“
Þjóðarbókhlaðan heillandi
Elín segir allt öðruvísi að vera í
skóla á miðjum aldri en þegar mað-
ur er ungur og ferskur strax eft-
ir stúdentspróf. „Maður gerir meiri
kröfur til sjálfs sín og er þroskaðri
bæði í nálgun á viðfangsefnunum
og framsetningu. Fyrir mig sem
blaðamann voru allar skriftir frek-
ar auðveldar, en það er alltaf átak
að fara aftur í nám. Það er hins veg-
ar svo gefandi að það er fullkom-
lega þess virði. Ég áttaði mig fljótt á
að ég var þarna til að læra hluti sem
ég kunni ekki fyrir og upplifði mig
aldrei eins og einhvern fréttastjóra
sem hefur töglin og hagldirnar. Ég
þurfti að tileinka mér nýja hluti, og
lagði mig fram, en fannst það ekk-
ert erfitt þrátt fyrir aldurinn,“ seg-
ir hún og hlær. En Elín var auðvitað
ekki nema fjörutíu og fimm ára þeg-
ar hún útskrifaðist og hún er ekki
frá því að á einhverjum tímapunkti
þurfi fólk að leggja meira á sig til að
tileinka sér nýja hluti.
„Það kemur örugglega að því, en
ég fann ekkert fyrir því. Námið hef-
ur aukið víðsýni mína í lífinu al-
mennt og það sem mér þótti einna
skemmtilegast var að kynnast Þjóð-
arbókhlöðunni, læra á hana og geta
nú notað hana til rannsókna. Þar
opnaðist alveg nýr heimur.“
Engin partíkona
Elín kann enga eina skýringu á
því að sagnfræðin virðist heilla svo
marga sem ákveða að setjast á skóla-
bekk eftir langt hlé.
„Það gæti haft með hraðann í nú-
tímanum að gera,“ segir hún hugs-
andi. „Fólk langar að kynnast fortíð-
inni því tíminn flýgur svo hratt. Hér
á Íslandi hafa til dæmis orðið slíkar
stökkbreytingar á stuttum tíma að við
þurfum ekki að fara nema nokkra ára-
tugi aftur til að sjá aðstæður sem eru
gjörólíkar því sem við þekkjum í dag.“
Elínu þótti svo gaman í skólan-
um að hún saknar hans enn, enda
náði hún góðu sambandi við yngri
nemendur. Hún þvertekur þó fyrir
að hafa stundað félagslífið af krafti,
enda engin sérstök partíkona. Hún
er gift og á tvo uppkomna syni sem
búa heima og segir fjölskylduna hafa
sýnt sér mikinn stuðning.
„Menn höfðu kannski mismikla
trú á því hvort ég myndi ljúka námi,
en það var mikil hátíðarstund þegar
ég ústkrifaðist,“ segir hún hlæjandi.
„Nei, ég hélt ekkert rosapartí þá frek-
ar en venjulega, en góða veislu fyrir
nánustu ættingja sem samglöddust
mér innilega.“
Elín mælir skilyrðislaust með því
að fólk setjist á skólabekk á miðjum
aldri. „Þetta er frábærlega gaman
og maður hefur allt að vinna. End-
urmenntun gefur lífinu aukið gildi
og skilar sér alltaf jákvætt, bæði fyrir
mann persónulega og í starfi.“
„Menn höfðu kannski
mismikla trú á því
hvort ég myndi ljúka
námi, en það var mik-
il hátíðarstund þegar
ég ústkrifaðist.“
Heilsa&menntun
– heillandi og spennandi fag
Sagnfræðin
Elín Hirst fréttastjóri
naut sagnfræðinámsins þegar hún
settist aftur á skólabekk.