Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Page 8
Mörkin milli Eignarhaldsfélags Byrg- isins ehf. og líknarfélagsins Byrgis- ins eru afar óskýr. Eignarhaldsfélag Byrgisins, sem er að fullu í eigu Guð- mundar Jónssonar forstöðumanns, leigði Byrginu nokkra bíla, þar af tvo Land Rover Discovery jeppa árgerð 2006, en bílarnir voru endurnýjaðar árlega og hefur forstöðumaður með- al annars haft aðra bifreiðina til af- nota. Forstöðumaður samdi bæði fyrir hönd eignarhaldsfélagsins og líknarfélagsins um leigu á bílunum. Samkvæmt bókhaldi félagsins nam leiga bílanna nærri fjórtán milljón- um króna. Þá er heildarkostnaður vegna bensín- og olíukaupa Byrgis- ins á sjöttu miljón króna. Tvö kreditkort voru notuð vegna reksturs Byrgisins, annars vegar per- sónulegt kort Guðmundar og hins vegar kort Eignarhaldsfélags Byrgis- ins ehf. Á tímabilinu greiddi Byrgið samtals 24,9 milljónir vegna úttekta á kortunum. Eftir skoðun á kortayfir- litum mátu stjórnendur Byrgisins að um þriðjungur af útgjöldum kredit- korta á tímabilinu væru einkaútgjöld Guðmundar, eða því sem nemur rúmlega átta milljónum króna. Enn eru þó stórar fjárhæðir óútskýrðar og Ríkisendurskoðun tekur skýringarn- ar ekki gildar. Gróf bókhaldsbrot Guðmundur Jónsson annaðist ekki færslu bókhalds, en fjármál fé- lagsins voru þó að miklu leyti í hönd- um hans. Að því er Ríkisendurskoð- un segir voru ársreikningar félagsins prentaðir beint út úr bókhaldskerfi þess án allra skýringa og jafnframt hafi þeir ekki verið endurskoðaðir. Hvorki laun starfsmanna né verk- takagreiðslur hafa verið talin fram til skatts, engir launaseðlar hafa fund- ist og enginn virðist hafa framvísað reikningum vegna verktakagreiðslna. Í bókhaldi og ársreikningi Byrgisins er launakostnaður til starfsmanna fé- lagsins ranglega tilgreindur og sagð- ur vera 5,5 milljónir króna, en sam- kvæmt skýrslunni nemur fjárhæðin 12,7 milljónum króna. Þessu til við- bótar hafa starfsmenn Byrgisins lát- ið bókfæra hjá félaginu útgjöld sem eru því alls óviðkomandi að andvirði 15,6 milljóna króna. Óútskýrð einkagjöld Guðmundur hefur ekki getað gert grein fyrir því hvernig háar fjárhæð- ir sem bókaðar hafa verið í Byrg- inu tengdust starfseminni og vegna skorts á gögnum getur Ríkisendur- skoðun ekki fallist á að þau tengist rekstri Byrgisins. Kostnaður vegna áhalda- og tækjakaupa Byrgisins frá ársbyrjun 2005 nemur samtals um 3,8 milljónum króna. Þar af voru 24 farsímar keyptir fyrir 670 þúsund krónur og gáfu stjórnendur þá skýr- ingu að algengt hafi verið að farsímar starfsmanna hafi horfið og því nauð- synlegt að endurnýja þá reglulega. Við athugun Ríkisendurskoðun- ar var einungis hægt að staðfesta að rúmur helmingur áhalda og tækja, sem keypt voru á tímabilinu væru til staðar. Stjórnendur sögðu það sem upp á vantaði, ýmist hafa skemmst eða skjólstæðingar þeirra fengið það að gjöf að meðferð lokinni. Fréttir DV Samdi við sjálfan sig Guðmundur Jónsson gekk frjálslega um sjóði Byrgisins sam- kvæmt úttekt Ríkisendurskoðunar. Hann á Eignarhaldsfélag Byrgisins sem átti í miklum viðskiptum við líknarfélagið. Guð- mundur er talinn hafa grætt gnótt á viðskiptum Byrgisins við eignarhaldsfélagið. Sígarettur, kjúklingabitar, lúxusjeppar og 24 farsímar voru á kostnað líknarfélagsins. Tvær hafa kærT Guðmund Ólafur Helgi Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, staðfesti í samtali við DV að tvær kærur hafi borist gegn Guðmundi Jónssyni í Byrginu. Báðar kærurnar snúa að kynferðislegri misnotkun Guð- mundar á skjólstæðingum sínum, en hvorug kvennanna kærði Guð- mund vegna meints fjármálamis- ferlis hans. „Tvær konur hafa kært Guð- mund Jónsson og er rannsókn haf- in. Meint brot Guðmundar geta hugsanlega fallið undir 197. grein almennra hegningarlaga, þar sem segir að ef umsjónarmaður eða starfsmaður í fangelsi, geðsjúkra- húsi, vistheimili, uppeldisstofn- un eða annarri slíkri stofnun hafi samræði við vistmann á stofnun- inni varði það fangelsi allt að 4 árum,“ segir hann. Erfitt getur hins vegar verið að fella Byrgið undir þessa grein, því Byrgið er skilgreint sem kristilegt líknarfélag. Að sögn Ólafs Helga getur málið einnig varðað við 198. grein almennra hegningarlaga, en í henni er kveðið á um að sá sem misnoti aðstöðu sína og hafi sam- ræði við skjólstæðing í trúnaðar- sambandi skuli sæta allt að þriggja ára fangelsisvist. Guðmundur hefur ákveðið að kæra aðra konuna fyrir nauðgun. Tekjur oG Gjöld ByrGiSinS 2005 oG fyrSTu Tíu mánuði árSinS 2006 í milljónum króna Bókfærðar tekjur 73,9 Innheimtar óbókfærðar tekjur 22,3 Tekjur alls 96,2 Bókfærð og/eða greidd útgjöld 86,6 Bókfærð og/eða greidd einkaútgjöld -15,6 Ekki bókunarhæft en bókfært -19,9 Útgjöld alls 51,1 Mismunur tekna og gjalda 45,2 Ólafur Helgi Kjartansson Hann segir tvær konur hafa kært Guðmund Jónsson. Eftir skoðun á korta- yfirlitum mátu stjórn- endur Byrgisins að um þriðjungur af út- gjöldum kreditkorta á tímabilinu væru einkaútgjöld Guð- mundar, eða því sem nemur rúmlega átta milljónum króna. Greinargerð Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins sýnir að stórfelld óreiða var á fjármálum félagsins. Stjórnendur Byrgisins eiga eftir að gera fullnægjandi grein fyrir á fimmta tug milljóna króna frá árinu 2005 og fyrstu tíu mánuðum ársins 2006. Guðmundur Jónsson Fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins. ValGeir örn raGnarsson blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.