Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 14
föstudagur 19. janúar 200714 Fréttir DV Þrettán sendiherrar án sendiráða tæpur helmingur allra sendiherra Íslands er við skrif stofustörf Í reykjavÍk Þrettán sendiherrar vinna nú í utanríkisráðuneytinu við Rauðar­ árstíg og hafa ekkert sendiráð. Þetta er tæpur helmingur allra sendi­ herra Íslands, en þeir eru alls þrjá­ tíu. Á þessu kjörtímabili hafa verið skipaðir sautján nýir sendiherrar. Davíð Oddsson skipaði tíu þeirra á því rúma ári sem hann var utan­ ríkisráðherra. Halldór Ásgrímsson skipaði fimm og Geir H. Haarde tvo. Á sama tíma hafa átta sendi­ herrar látið af störfum og nokkrir starfsmenn sendiráða hafa flust til innan utanríkisþjónustunnar. Lágmark þriðjungur sendiherra heima Sú hefð hefur skapast í utanrík­ isþjónustunni að hver sendiherra starfi í fjögur til fimm ár í einu landi, flytjist um set og starfi í fimm ár í öðru landi, komi loks til Íslands og vinni í fjögur til fimm ár í utan­ ríkisráðuneytinu. Þannig er það viðtekin venja að í það minnsta þriðjungur allra sendiherra sé á Íslandi, án sendiráða. Ráðuneytið heldur úti 29 sendi­ skrifstofum í 20 löndum. Þar af eru sex skrifstofur sem heyra und­ ir Þróunarsamvinnustofnun Ís­ lands og aðrar sex skrifstofur sem tilheyra fastanefndum og ræðis­ mannsskrifstofum. Margvísleg verkefni Þeir sendiherrar sem heima sitja vinna að ýmsum verkefn­ um í utanríkisráðuneytinu. Til að mynda gegnir Júlíus Hafstein stöðu skrifstofustjóra ferðamála­ og við­ skiptaþjónustu á meðan Berglind Ásgeirsdóttir er skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu og Benedikt Jónsson starfsmaður viðskipta­ skrifstofu. Eiður Guðnason er skrifstofustjóri upplýsinga­, menn­ ingarmála og ræðistengsla. Helgi Ágústsson er við sérstök störf. Utanríkisráðuneytið eykur eyðsluna Það kostaði 2,5 milljarða króna að reka sendiráð og aðalskrifstof­ ur utanríkisráðuneytisins á síðasta ári. Þetta er þriðjungur þeirrar fjár­ hæðar sem ráðuneytinu var ætluð á síðasta ári samkvæmt fjárlögum. Heildarútgjöld ráðuneytisins voru þá sjö og hálfur milljarður. Eins og fram hefur komið hafa útgjöld utanríkisráðuneytisins aukist um 75 prósent á kjörtíma­ bilinu. Þetta er mesta útgjalda­ aukning allra ráðuneyta á þessu tímabili. Næst kemur félagsmála­ ráðuneytið með 40 prósenta út­ gjaldaaukningu. 800 milljóna fasteign í Tókýó Fasteign fyrir sendiráð Íslands í Tókýó kallaði á 800 milljóna króna aukafjárveitingu. Rekstur sendiráðs­ ins þar kostar 113 milljónir króna á ári. Þessi útgjöld voru gagnrýnd við afgreiðslu fjárlaga haust­ ið 2001 og sagði Ög­ mundur Jón­ asson, Vinstri­ hreyf­ ing­ unni ­ grænu framboði, meðal annars að þessi fjárfesting benti til þess að Halldór Ás­ grímsson væri ekki í tengsl­ um við íslenskan raun­ veruleika og væri orðinn of mótaður af fínum hót­ elum. Nú hefur verið ákveð­ ið að opna aðalræðisskrif­ stofu Íslands í Færeyjum. Það verður fyrsta sendiskrif­ stofa erlends ríkis í Færeyjum. Fjárútlát vegna öryggisráðs Þegar Norðmenn náðu kosn­ ingu í ráðið árið 2000 lýsti Hall­ dór Ásgrímsson því yfir að barátta Norðmanna hefði kostað mikið fé og það ylli honum áhyggjum með tilliti til framboðs Íslendinga. Einar Oddur Kristjánsson reið á vaðið og taldi að kostnaðurinn gæti hlaupið á bilinu 800 til 1000 milljónir. Lang­ mest af útgjaldaaukningu utanrík­ isráðuneytisins fellur undir margs konar þróunarmál og aðstoð. Það er talið skipta máli við framboð til öryggisráðsins að við­ komandi ríki hafi staðið rausnar­ lega að þróunaraðstoð og þróun­ arsamvinnu. Samkvæmt samþykkt allsherjarþings Sameinuðu þjóð­ anna frá 1970 er miðað við að ríkar þjóðir leggi 0,7 prósent af landsframleiðslu til þróunarmála. Íslendingar eru komnir hálfa leið að þessu marki, meðal annars fyrir tilstilli Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. sendiherrar geirs Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis Stefán Lárus Stefánsson, sendiherra gagnvart Evrópuráði í Strassborg sendiherrar davÍðs Albert Jónsson, Washington Guðmundur Árni Stefánsson, Stokkhólmi Hannes Heimisson, Helsinki Helgi Gíslason, hættur Kristján Andri Stefánsson, eftirlitsstofnun EFTA, ESA Markús Örn Antonsson, Ottawa Ólafur Davíðsson, Berlín Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Pretoría Sveinn Á. Björnsson, hættur Sighvatur Björgvinsson, Þróunarsamvinnustofnun Íslands sendiherrar halldórs Bergdís Ellertsdóttir, skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu Berglind Ásgeirsdóttir, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu Guðmundur Eiríksson, í leyfi Stefán Skjaldarson, Ósló Tómas Ingi Olrich, París SIGTryGGUr JÓHAnnSSOn blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is Utanríkisráðuneytið tæpur helmingur allra sendiherra þessa lands vinnur í utanríkisráðuneyt- inu við rauðarárstíg. nú vinna þar þrettán sendiherrar. Valgerður Sverrisdóttir Hefur nú verið utanríkisráðherra í rétt rúmt hálft ár. Hún hefur ekki ennþá skipað sendiherra. Geir H. Haarde Bætti tveimur sendiherrum í liðið. Hann var utanríkisráðherra í átta og hálfan mánuð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.