Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Side 19
Vantar trúverðugleika Ágúst Ólafur Ágústsson hefur setið á Alþingi frá 2003, en hann er þingmaður fyrir Reykjavíkurkjördæmi suður. Á lands- fundi flokksins árið 2005 var hann kjörinn varaformaður Sam- fylkingarinnar og er að auki í stjórn flokksins. Þá hefur hann einnig setið í stjórn þingflokksins og er í fulltrúaráði Samfylking- arinnar í Reykjavík. Ágúst Ólafur er líka tengiliður þingflokksins við félagsskapinn 60+, sem er félag eldri borgara í Samfylking- unni. Virkur á þinginu Á Alþingi hefur Ágúst Ólafur verið mjög virkur og beitt sér fyrir fjölmörgum málum. Má þar nefna afnám fyrningarfrests í kynferðisafbrotum gegn börnum, löggjöf um óháðar rannsókn- arnefndir, löggjöf gegn heimilisofbeldi, aukna vernd heimild- armanna fjölmiðla, lögfestingu Barnasáttmálans, rannsókn á þunglyndi meðal eldri borgara, úttekt á mistökum og öryggi í heilbrigðiskerfinu, afnám auglýsingabanns hjá heilbrigðisstétt- um, sérdeild fyrir unga fanga og lækkun á skattbyrði einstakl- inga. Þá barðist Ágúst Ólafur ötullega gegn niðurlagningu MFS- fæðingarþjónustunnar. Á kjörtímabilinu hefur hann einnig setið í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, allsherjarnefnd svo og í heilbrigðis- og trygginganefnd. Þá er hann varamaður í utanrík- ismálanefnd. Góður drengur sem vill vel Ágúst Ólafur þykir hafa sýnt mikinn eldmóð og áhuga í störf- um sínum í þinginu og fáir sem hafa barist jafn ötullega fyrir jafn mörgum málum. Þrátt fyrir það og varaformennsku í flokknum eru samflokksmenn hans ekki bjartsýnir á framtíð hans sem leiðtoga. Þeir samfylkingarmenn sem DV ræddi við sögðu að enginn efaðist um að Ágúst Ólafur vildi vel og væri góður drengur. Hann hefði bara ekki þann trúverðugleika og sannfæringarkraft sem góður stjórnmálamaður þyrfti að hafa. Það háði honum hvað hann væri ungur og virkaði reynslulítill þótt hann hefði reyndar heilmikla reynslu. Ekki líklegur framtíðarleiðtogi Öllum viðmælendum bar saman um að Ágúst Ólafur væri vel liðinn persónulega og hefði náð ágætum árangri. Hann væri þó ekki sterkur inni í flokknum og engum þeirra sem blaðið ræddi við þótti líklegt að hann tæki einhvern tíma við forystu flokks- ins. Hann væri hugsanlega líklegri en margir aðrir en langt í frá líklegastur. Aftur voru nefndir til dæmis Árni Páll, Björgvin Sig- urðsson og jafnvel Guðmundur Steingrímsson sem kæmu ekki síður til greina. Menn bentu á að enn væru tvö ár í að forystan yrði end- urskoðuð og allt gæti gerst á því tímabili. Einlægni og baráttuhugur Ágústs Ólafs væru góðra gjalda verð en hann hefði ekki það pól- itíska „karisma“ sem væri nauðsynlegt stjórnmála- leiðtogum. Að minnsta kosti ætti hann enn langt í land með að sanna sig. Ágúst Ólafur er kvæntur Þor- björgu S. Gunnlaugsdóttur lögfræðingi og þau eiga tvær dætur, Elísa- betu Unu, 4 ára, og Kristrúnu, 1 árs. Ágúst Ól- afur skipar fjórða sætið á lista Samfylk- ingarinnar í Reykjavík. EJ DV Fréttir föstudagur 19. janúar 2007 19 Talsvert persónufylgi Katrín Júlíusdóttir hefur setið á Alþingi fyr- ir Samfylkinguna síð- an árið 2003. Hún hefur setið í fjárlaga- og iðn- aðarnefnd þingsins, svo og í menntamála-, alls- herjar- og félagsmála- nefnd. Áður en hún tók sæti á Alþingi hafði hún sinnt fjölmörgum trún- aðarstörfum innan jafn- aðarmannahreyfing- arinnar og sat meðal annars í framkvæmda- stjórn Samfylkingar- innar 2000–2003, þar af sem varaformaður 2001–2003. Katrín var formaður Ungra jafnað- armanna, ungliðahreyf- ingar Samfylkingarinnar, 2000-2001 og sat í stjórn Evrópusamtakanna um nokkurra ára skeið. Heilablóðfall tæplega þrítug Katrín þurfti að gera tveggja mánaða hlé á setu sinni á Al- þingi veturinn 2004, þá tæplega þrítug, þar sem hún fékk blóð- tappa við litla heila en blóðtappinn kom í ljós eftir að hún fór að finna fyrir gríðarlegum verkjum í höfði og andliti. Hún sagðist, eftir veikindafríið, hafa tekið veikindunum með mikilli ró og hafa þá afstöðu til lífsins að allir lendi í einhverju erfiðu. Þetta færi einfaldlega í reynslubankann hennar. Í störfum sínum á Alþingi hefur Katrín barist fyrir bættum lífskjörum barnafjölskyldna og bættum kjörum eldri borgara, námsmanna og öryrkja. Þá hefur hún meðal annars barist fyrir aukinni samvinnu við Evrópu með fulla aðild að ESB í huga og barist gegn vaxandi misskiptingu í þjóðfélaginu. Þrátt fyrir þessi góðu baráttumál virðist Katrín ekki á fljúgandi siglingu innan Samfylkingarinnar. Viðmælendur blaðsins sögðu hana ekki hafa nægilegt fylgi almennt innan flokksins þótt hún hefði reyndar talsvert persónufylgi. Of mikið í glanstímaritum Sumir gagnrýndu hana fyrir að hafa komið of mikið fram í viðtölum í glanstímaritum þar sem hún talaði meira um lík- amsrækt og kjólana sína en stjórnmálabaráttuna. Hún væri vissulega glæsileg og flott kona en hefði ekki náð sérstökum pólitískum árangri. Nokkrir viðmælenda hrósuðu þó Katrínu fyrir þrautseigju og dugnað og einn nefndi að hún hefði sýnt mikið hugrekki þegar hún tjáði sig opinskátt um veikindi sín í samfélagi sem væri fullt af fordómum. Ekki framtíðarleiðtogi Enginn viðmælenda blaðsins sá þó framtíðarleiðtoga í Katr- ínu. Þeir ítrekuðu samt að engin leið væri að spá um hvernig ferill hennar innan flokksins myndi þróast, enn sem komið væri hefði hún einfald- lega ekki sýnt þann styrk sem til þyrfti sem leið- togaefni. Margir aðrir voru nefndir sem líklegri kandídatar, eins og Helgi Hjörvar, Árni Páll og Björgvin Sigurðsson, ásamt Kristrúnu Heimis- dóttur. Einn flokksbróðir Katrínar sagði þó að hún væri vaxandi stjórnmálamaður og hann væri alls ekki einn um að binda miklar vonir við hana. Katrín er ógift en á soninn Júlíus, sjö ára. Katrín skipar annað sætið á fram- boðslista Samfylkingarinnar í Suð- vesturkjördæmi. EJ Erfið kosningabarátta fram undan Niðurstaða síðustu kosninga var góður sigur fyrir Samfylk- inguna, þótt fylgið hafi dalað nokkuð undir lok kosningabarátt- unnar. Markmið flokksins náðist þó ekki: Framsóknarflokkur- inn áleit samstarf með Sjálfstæðisflokknum heillavænlegra en stjórn með Samfylkingunni. Samfylkingin gengur til komandi kosningabaráttu í nokk- urri lægð. Fylgið hefur heldur minnkað í skoðanakönnunum, flokkurinn er ásakaður um stefnuleysi og formaðurinn liggur undir ámæli fyrir að slá rangan tón í málflutningi sínum. Þeg- ar ekki gengur samkvæmt væntingum verða flokkar að líta í eigin barm. Fylgi flokksins dalaði mikið í aðdraganda sveit- arstjórnarkosninganna, enda var kosningabarátta flokksins í Reykjavík með eindæmum ruglingsleg og illa skipulögð. Án efa hefur þessi misheppnaða kosningabarátta ýtt undir stefnuleys- isímynd Samfylkingarinnar. Bjóði flokkurinn upp á eitthvað viðlíka í komandi kosningabaráttu blasir fylgishrun við. Þegar litið er yfir stefnu og málflutning Samfylkingarinnar standast ásakanir um stefnuleysi heldur illa, sem segir þó auð- vitað ekkert um vinsældir stefnumálanna. Samfylkingin á því við ímyndar- og trúverðugleikavanda að etja. Hér vega um- hverfismálin þyngst, en mörgum hefur fundist flokkurinn ekki vita í hvorn fótinn hann eigi að stíga. Þetta er auðvitað rétt, þó skýr stefna hafi á endanum verið mótuð. Prófkjör Samfylkingarinnar tókust flest heldur illa, þó fram- bjóðendur (sérstaklega sigurvegararnir) hafi keppst við að lýsa því hversu glæsileg prófkjörin hefðu verið. Í síðustu kosningum voru konur í miklum meirihluta í kjósendahópi Samfylking- arinnar. Sé þetta haft í huga eru framboðslistar flokksins hálf- gert grín: ein kona leiðir lista (formaðurinn sjálfur) og konur fá víða að dingla í vonlitlum baráttusætum. Staða kvenna hef- ur því stórversnað í Samfylkingunni frá síðustu kosningum og ástand mála þar ekki skömminni skárra en í Sjálfstæðisflokkn- um. Formaður flokksins verður því upp á eigin spýtur að vinna upp þetta augljósa ójafnvægi kynjanna, en líkast verður það þrautin þyngri. Samfylking á erfiða kosningabaráttu fyrir höndum og verð- ur að reka hana vel og skipulega. Flokkurinn og formaður hans eiga mikið inni og eiga eflaust eftir að sækja í sig veðrið. Að lík- indum mun flokkurinn tapa einhverju fylgi, en – ólíkt síðustu kosningum – ná því markmiði sínu að fella ríkisstjórnina og setjast í ríkisstjórn. Birgir Hermannsson langt frá 40 prósenta markmiði 2003: 31% - 20 þingsæti - 9 þingkonur 2007: nýjasti þjóðarpúls CapaCent gallup: 23,8% - 16 þingsæti Samfylkingin átti stóran þátt í R-listan- um í Reykjavík og í borgarstjórnarkosn- ingunum 2002 vann listinn glæsilegan sigur, með Ingibjörgu Sólrúnu og Stefán Jón Hafstein í fararbroddi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir vann góðan sigur í formannskjöri Samfylkingarinnar á landsþingi flokksins í Egilshöll 2005. Mik- il bjartsýni ríkti meðal flokksmanna eftir landsfundinn. framtíðin? framtíðin? fylgi samfylkingarinnar á landsvísu 1999–2007

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.