Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 22
Sama hvað þú gerir í lífinu þá skiptir mestu að það líti vel út alla leið. Eitt besta dæmið er ef þú ger- ir út vændiskonur. Ímynd melludólga dagsins í dag er byggð á svörtum götudólgum stórborga BNA. Þeir eru viðbjóðslega töff. Ganga í sérsaumuðum, litríkum föt- um, með kögri og loðkraga. Þeir nota hatta með fjöðr- um og tígrismynstri. Þeir ganga í leðri, silki og skórn- ir þeirra eru úr krókódílaskinni. Þeir keyra sérútbúna kadilakka, drekka úr eðalsteinsskreyttum kaleikum úr platínu. Þeir tala æðislegt slangur og heita svakalegum nöfnum á borð við Daddy Mack, Tricktickler Trey, Pimp-A-Lot, Sneed Smooth. Og metrósexú- al hvað? Þessir gæjar hafa látið farða, naglalakka og handsnyrta sig í hartnær 100 ár. Þeir eru klæddir í bleikt og eiga ljósbláa bíla en engum dettur í hug að þeir séu samkynhneigðir. Hug- takið „pimp“ er í dægurmenn- ingu notað um náunga sem er umvafinn konum og á ekkert í vandræðum með það. Þáttur- inn Pimp My Ride á MTV vísar til þess hvernig dólgarnir hlaða skrauti og aukahlutum á sjálfa sig, bílana sína og húsnæði. Þetta er allt í já- kvæðri merkingu. Sjálfsævisaga eins alþekktasta dólgs vesturlanda heitir Pimp. Þar sýnir dólgurinn Iceberg Slim (rapparinn/leikarinn Ice T nefndi plötu eftir hon- um) hvernig þú gróflýgur til þín verðandi vændiskonur. Hvernig kókaín er notað til að fá þær inn í bransann og hvernig heróín er notað til að losna við þær þegar aldur og útlit er farið að draga úr viðskiptum. Vændiskonur selja sig úti á götu, stanslaust, allan daginn, engin sturta eða hvíld fyrr en að vinnudegi loknum. Dólgurinn fær 100% af innkomunni en þær fá í staðinn föt, fæði, gist- ingu og eiturlyf til eigin neyslu. Konurnar eru læstar inni og hýddar með vírum þegar „agavandamál“ koma upp. Löðrungar dólgs eru daglegir og orðið „bitch-slap“ er dregið af þessum reglulegu handarbakshöggum. Ekki hvað þú gerir heldur hvernig Hughes-bræður (sem gerðu Menace to Society) bjuggu til heimildarmynd sem heitir American Pimp. Þar kem- ur skýrt fram hvað lífsstíll dólga er töff, allt þar til talað er við lög- legan dólg í Nevada. Þá fyrst átt- ar áhorfandinn sig almennilega á hvað þetta lið er mikill við- bjóður. Kúrekinn gat ekki falið sig bak við neina parduskápu og gullhringi. Hann var bara öm- urlegur fantur í ljótum buxum og svo hét hann Cody eða Dust- in eða eitthvað álíka vonlaust. Iceberg Slim fer öðruvísi að. Illa lyktandi vændiskon- an sem er að rigna niður í skítakulda á götuhorni biður dólginn að fá að setjast inn í bílinn hjá honum meðan mesta rigningin gengur yfir. Hann dustar ímyndað ryk af öxlunum meðan hann blæs út kannabisreyk og dillar sér við diskófönk. Segir svo ískalt: „Reyndu að ganga á milli regndropanna tík,“ og rennir upp bílrúðunni. Gæ- inn er viðbjóður en mikið djöfull er hann svalur á með- an. Lífsstíll þessara dólga er svo uppfullur af glamúr að erfitt er að sjá illskuna fyrir glingri. Til að negla sein- asta naglann í kistu fantasíunnar um „svala dólginn“ þá horfirðu á Lilja 4-ever eftir Lukas Moodysson. Sam- bærilegt dæmi væri þá eistneskur lúði í rúskinnsmittis- jakka með rennilás á ermunum sitjandi í Hondu Ci- vic hlustandi á Scooter. Hann fær sér illa köttað pólskt læknaspítt og hrognar út úr sér: „Seldu þig eða ég drep þig, hóra.“ Viðbjóður út í gegn, ekkert töff við þetta. Það sjá það allir enda heitir dólgurinn Meelis og kann ekki að segja: „Gakktu milli dropanna!“. föstudagur 19. janúar 200722 Helgarblað DV Á sama tíma og stjórnarandstaðan talar frá sér vit og rænu og enginn hlustar, varla ræðumenn sjálfir, er annað og enn verra að gerast á Alþingi Íslendinga. Alþingi er í herkví eins ráð-herra. Menntamálaráðherra á mikið undir að breytingar á rekstrarformi Ríkisútvarpsins verði að lögum. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir hefur svo oft verið gerð brottræk með þetta sama mál að það er óviðunandi fyrir hana að gefast enn og aftur upp. Staða hennar og sjálfsvirðing í stjórnmálum hangir á þessu máli. Það veit stjórnarand- staðan og þess vegna er verr látið en ella. En hvað sem segja má um menntamálaráðherra er það hjóm eitt miðað við það sem segja má um Alþingi. Ráðherrann leggur ofurkapp á þetta eina mál og þar með meirihluti þingsins. En mörg tákn eru á lofti um að því fari fjarri að meirihluti þingmanna sé sammála ráðherran- um um að gera breytingar á Ríkisútvarpinu. Miklu frekar er þjóðin að verða vitni að því þegar ráðherraræðið tekur yfir þingræðið. Það hefur gerst ítrekað að þingið verður afgreiðsludeild fyrir ráðherrana og það er að gerast núna. Þegar rætt er við einstaka þingmenn í stjórnarflokk- unum er ljóst að þeir hafa ekki sannfæringu fyrir mikilvægi breyting- anna á Ríkisútvarpinu. Formaður menntamálanefndar, sem hefur það hlutverk að bera hið umdeilda mál á borð þingsins, er til að mynda yfirlýstur stuðn- ingsmaður þess að selja Ríkisútvarpið, að ríkið eigi ekkert með að vera í rekstri sem þessum. En þingmaðurinn gerir sér grein fyrir að hann hefur ekkert að segja, hon- um er skipað að haga sér í samræmi við það sem ráðherra vill hverju sinni. Sennilega er það ástæða þess að sæti þingmannsins er í mikilli hættu. Kannski eru kjósendur og þá sérstaklega stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins ekki eins hrifnir af þjónkuninni og ráðherrann. Þingmenn hafa stundum þurft að leggjast lágt. Það getur ekki allt- af verið gott að vera í liði og mega engu breyta, ekkert segja og ekkert gera sem breytir gegn vilja ráðherranna. Síðustu ár hefur verið veru- lega vegið að þingræðinu og ógnarstjórn Davíðs Oddssonar og Hall- dórs Ásgrímssonar á sínu liði var mikil. Enn eimir eftir af harðræðinu eins og glögglega má sjá á þjónkun stjórnarsinna við menntamálaráð- herrann. Alþingi Íslendinga hefur verið upptekið vegna einkamáls Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Þess vegna hefur ekki verið unnt að sinna öðrum málum. Stjórnarandstaðan talar frá sér vit og rænu og enginn hlustar og enginn gerir neitt með það sem sagt er. Enda er ekki ætlast til þess. Þegar búið er að ræða eitt og sama málið í hundrað klukkustundir er komið nóg. Reyndar verður að telja stjórn- arandstöðunni það til tekna að hún er kannski að berjast við að halda uppi sóma Alþingis, nokkuð sem fótgönguliðar stjórnarflokkanna á Al- þingi gera ekki. Það eru áhöld um hvort hlutverkið er betra; að tala og tala í tómið eða sýna algjört tómlæti og láta niðurlægja sig, að henda frá sér öllum meiningum og skoðunum.  SigurjónM.Egilsson Umbrot: dV. Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja. Dreifing: Pósthúsið ehf. - dreifing@posthusid.is. dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Einkamál Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf. Stjórnarformaður: Hreinn loftsson framkVæmDaStjóri: Hjálmar Blöndal ritStjóri og áByrgðarmaður: Sigurjón m. Egilsson fréttaStjóri: Þröstur Emilsson ritStjórnarfulltrÚi: janus Sigurjónsson Alþingi Íslendinga hef- ur verið upptekið vegna einkamáls Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Miklar umræður fara nú fram á vettvangi stjórn- málanna um málefni Byrgisins. Ljóst er að stjórnvöld hafa fullkomlega brugðist í því máli. Fram hefur kom- ið að á árinu 2002 var birt skýrsla með varnaðarorðum um Byrgið og fjárveitingar til þess. Hvers vegna í ósköp- unum brugðust ráðherrar sem ábyrgir eru fyrir mála- flokknum og fjárveitingum ekki þá þegar við? Það er hins vegar ekki nóg að beina gagnrýni að ráðherrum. Stjórnsýslan hefur einnig brugðist, svo og Alþingi sem hefur flotið sofandi að feigðarósi. Þar á bæ hafa menn látið undir höfuð leggjast að krefjast þess að gerðar yrðu faglegar kröfur til meðferðaraðila sem fjármagna starf- semi sína með almannafé. Alþingismenn segja sjálfum sér til málsbóta að þeir hafi verið „í góðri trú“. Byrgið hafi fengið meðmæli góðra og gegnra einstaklinga sem aftur hafi talið að á vegum þess væri unnið gott starf. Sjálfur var ég í hópi þessara þingmanna. Hins vegar hafa smám saman ver- ið að renna á mig tvær grímur varðandi fjárveitingar af þessu tagi og flutti ég þingmál á þingárinu 2003–4 um að fram færi könnun „á forvarnar- og meðferðarúrræð- um fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur“ sem miði að því að ná „betri árangri með markvissara skipulagi og virkara eftirliti.“ Vísað út á gaddinn Loks eftir að fram komu ásakanir opinberlega um kynferðislega misnotkun innan veggja Byrgisins rumskuðu stjórnvöld og hófst þá fyrir alvöru um- ræða um málefnið. En hvert hefur hún beinst fyrst og fremst? Hún hefur fyrst og síðast snúist um krónur og aura. Mönnum þykir afleitt hvernig misfarið hafi verið með almannafé. Peningamálin eru sett í rannsókn og saksóknari stígur fram á völlinn. Allt er þetta fullkom- lega eðlilegt. En hvað með hina mannlegu hlið? Stend- ur virkilega ekki til að rannsaka hana? Þá misnotkun og ofbeldi sem fjöldi fólks kann að hafa sætt í stofnun sem verið hefur undir handarjaðri hins opinbera? Ætla lög- regluyfirvöld ekkert að aðhafast varðandi þennan þátt málsins sem þó hlýtur að teljast langalvarlegastur? Einn- ig hlýtur að vekja athygli forgangsröðun félagsmálaráð- herra að því leyti að í stað þess að setja utanaðkomandi tilsjónarmann yfir Byrgið þegar hinar alvarlegu ásakanir komu fram og fullvissa vistmenn um að þeim yrði búið öryggi á meðan framtíðarlausn væri í mótun var engu slíku til að dreifa. Aðeins peningar komust að, ekki fólk- ið. Því var einfaldlega vísað út á gaddinn. Varnarlaust gagnvart umhverfinu Síðan er hitt: Hér eftir verður að gera þá kröfu að þá aðeins verði fjármunum veitt til meðferðaraðila eftir að áður hafi farið fram ítarleg rannsókn á hæfi þeirra og fagmennsku til að sinna slíkum verkefnum. Við meg- um ekki gleyma því að um er að ræða meðferð fyrir sársjúkt fólk, einstaklinga sem eru í mikilli neyð, háð- ir vímuefnum og oft án húsnæðis. Þetta fólk er varn- arlaust gagnvart umhverfi sínu. Það er ábyrgðarhluti hvernig að því er staðið að fela það í hendur stofnunum eða samtökum. Enda þótt kristilegir söfnuðir á borð við Samhjálp og aðra ámóta aðila hafi unnið þarft starf þá er kominn tími til að spyrja hvort það sé rétt að fela trúarsöfnuðum að annast á vegum hins opinbera meðferð vímuefna- sjúklinga. Finnst okkur rétt að trúarhópar sinni þessum verkefnum? Er alveg sama hvaða trúarsöfnuðir taki þau að sér? Ef ekki, eftir hvaða mælikvarða ætlum við þá að gera upp á milli trúfélaga? Þessi spurning gerist æ áleitnari einfaldlega vegna þess að Hvítasunnusöfnuðurinn er nú að verða stærsti verktaki á vegum ríkis og Reykjavíkurborgar á þessu sviði. Ríki og borg eru markvisst að draga saman eig- in segl um leið og þau trúvæða þessa starfsemi. Þannig var meðferðarheimilinu í Gunnarsholti lokað svo dæmi sé tekið, gistiheimili fyrir heimilislausa í Reykjavík að sama skapi en í báðum tilvikum var vistmönnum beint inn í faðm trúfélaga! Ég vil leggja ríka áherslu á að ég er engan veginn að gera lítið úr starfi trúfélaga sem sinnt hafa meðferðar- starfi og ég geri mér fullvel grein fyrir því sem þau hafa gert vel. En þegar um er að ræða að ríki eða sveitarfélög finni athvarf og meðferðarúrræði fyrir veika einstakl- inga, fólk sem er fullkomlega varnarlaust og iðulega ekki sjálfrátt gerða sinna, hlýtur að vera gerð krafa um að þeir sem slík verkefni fá í hendur séu óvilhallir, bæði í stjórnmálalegu og trúarlegu tilliti. Skólavörðustíg 21 Sími 551 4050 • Reykjavík Tilboð á völdum sængurfatnaði Erpur Þ. EyVindarson tónlistarmaður skrifar „gakktu á milli regndropanna, tík!“ Ögmundur Jónasson alþingismaður skrifar Peningamálin eru sett í rannsókn og saksóknari stígur fram á völlinn. Hvort er mikilvægara, peningar eða fólk? Kjallari Þessir gæjar hafa lát- ið farða, naglalakka og handsnyrta sig í hartnær 100 ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.