Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.2007, Síða 26
Laddi sextugur
Síungur, síkátur og sáttur við lífshlaupið. Þessi
orð lýsa vel afmælisbarninu Ladda, sem verður
sextugur á laugardaginn. Ótrúlegt en satt, það
eru liðin 36 ár frá því að Laddi hóf feril sinn
sem leikari og skemmtikraftur hjá Ríkissjón-
varpinu. Þar skapaði hann ódauðlega karaktera
eins og Þórð húsvörð, Dengsa, Elsu Lund og
Eirík Fjalar, svo fáeinir séu nefndir.
föstudagur 19. janúar 200726 Helgarblað DV
Þ
órhallur Sigurðsson
– Laddi – fæddist í
Hafnarfirði árið 1947.
Hann spilaði og söng
með hljómsveitinni
Föxum og fleirum
áður en hann hóf feril sinn sem
leikari og skemmtikraftur í Ríkis-
sjónvarpinu árið 1971. Hann hefur
leikið í sjónvarpsleikritum og sjón-
varpsþáttum, til dæmis: Spaugstof-
unni, Imbakassanum, Heilsubæl-
inu í Gervahverfi, að ógleymdum
flestum áramótaskaupum frá upp-
hafi. Laddi lék meðal annars í Litlu
hryllingsbúðinni í Gamla bíói árið
1985 og í gamanleikritinu Nörd-
inn. Hann lék illmennið Fagin í
söngleiknum Oliver í Þjóðleikhús-
inu, lék í Grease í Borgarleikhús-
inu árið 2003 og fór með hlutverk í
Kalla á þakinu. Laddi hefur leikið í
fjölmörgum kvikmyndum, til dæm-
is Stellu í orlofi og Stellu í framboði,
Löggulífi, Karlakórnum Heklu, Ís-
lenska drauminum og Regínu.
Sá sem er fæddur 20. janúar þyk-
ir ákaflega skemmtilegur, eins og
lesa má á vefnum spamadur.is, og
það er greinilegt að Laddi á margt
sameiginlegt með lýsingunni sem
þar er að finna:
„Manneskjan er í góðu ásig-
komulagi, hugar vel að útliti sínu og
klæðist fallegum fatnaði. Hún gerir
ekki miklar kröfur en á erfitt með að
fyrirgefa mistök.
Manneskjan tekur illa skipun-
um, vill frekar stjórna sjálf. Hún er
bæði glaðvær og gjafmild og göfug-
lynd með eindæmum. Hér er á ferð-
inni áreiðanlegur förunautur, hag-
sýnn og ákaflega skemmtilegur.“
Það er stór stund að ná sextugs-
aldrinum og margir sem sjálfsagt
munu fagna með Ladda á tíma-
mótunum. Um leið og starfsfólk DV
sendir afmælisdrengnum hlýjar af-
mælisóskir, birtum við hér mynd-
ir úr lífi Ladda og kveðjur frá fólki
sem hefur unnið náið með honum
gegnum tíðina. annakristine@dv.is
„Heill þér sextugum!
Elsku heillakarlinn minn. Mér er allt
annað en hlátur í huga þegar ég pára
þessar fátæklegu línur á blað á þín-
um merku tímamótum, já, sprellikarl-
inn kominn á sjötugsaldur! Hins vegar
tók sig strax upp gamalt bros þegar ég
áttaði mig á því að aldur er svo hrika-
lega afstæður, nánast leikur að ein-
hverjum tölum, sem ekkert mark er á
takandi! Þetta er auðvitað spurning um heilsu-
far, viðhorf, lífsgleði og að njóta líðandi stundar,
en það þekkjum við báðir til hlítar, sem höfum
hlegið meira saman en góðu hófi gegnir. Það hef-
ur verið stórkostlegt að fá að vera þér samferða
svo lengi sem raun ber vitni og ekki síst að kynn-
ast allri þinni fjölskyldu, en þá er ég ekki að tala
um þína yndislegu Sigríði eða börnin þín, heldur
tugi annarra persóna sem þú hefur skapað á lífs-
leiðinni. Já, hugsa sér, Elsa Lund, Dengsi, Eiríkur
Fjalar, Skúli rafvirki og Saxi læknir, þetta fólk tek-
ur ekki í mál að eldast, það er eilíft.
Já, aldrei hefur borið skugga á langa vináttu
okkar og samvinnu og ég tel mig veru-
lega ríkan að eiga ykkur hjónin að vin-
um.
Það vita fáir, að við þurftum aldrei að
skrifa einhvern texta þegar brugðið var á
leik, hvort heldur var í útvarpi, sjónvarpi,
á sviði eða í einkasamkvæmum, svo ná-
tengdir vorum við andlega, því þar sem
tveir einfarar mætast, þar er fjör, eins og
Guðni Ágústsson myndi orða það!
Þú hefur fengið fleiri til að hlæja en flestir aðr-
ir og gefið okkur öllum mikið á þínum farsæla
ferli. Hins vegar eru það forréttindi að hafa feng-
ið að kynnast þínum innri manni, sem býr yfir
mikilli hlýju og kærleika, og slíkt ber að þakka.
Elsku Laddi minn, nú er lífið fyrst að byrja og
ÞÁ VERÐUR FJÖR, svo vitnað sé í Eirík Fjalar. Við
verðum frískir á DAS eða Grund eftir 30 til 40 ár
og þá gerum við allt vitlaust, já, mér skilst að fólk
sé þegar farið að panta rúm eða göngugrindur á
þessum stöðum!
Lifðu heill og hress sem allra lengst,
þinn einlægur vinur, Hemmi.“
Segi eins og Eiríkur Fjalar: Þá verður fjör!
Hljómsveitargæinn Laddi
Bræðurnir Halli og Laddi voru í
hljómsveitinni föxum sem var
vinsæl seint á sjöunda áratugnum.
Páll dungal, Þorgils Baldursson,tóm-
as sveinbjörnsson, Halli og Laddi.
Heilsubælið í Gervahverfi Vinsæll gamanþáttur á stöð 2 fyrir tuttugu árum. Óborganlegur tannlæknir í Litlu hryllingsbúð-
inni árið 1985
Grettukeppni? Vinirnir Ómar ragnarsson og Laddi
Flottur með vatnsgreiðslu
á fermingardaginn
Með Hemma Gunn í fanginu
samband Elsu Lund við Hemma
gunn líður engum úr minni sem
fylgdist með þættinum vinsæla Á
tali hjá Hemma gunn.